Formúla 1

Hamilton segir sögu­sagnir um ó­sætti vera þvaður

Aron Guðmundsson skrifar
Adami og Hamilton í Mónakó um síðastliðna helgi
Adami og Hamilton í Mónakó um síðastliðna helgi Vísir/Getty

Sjöfaldi For­múlu 1 heims­meistarinn Lewis Hamilton, ökuþór Ferrari, gefur lítið fyrir sögu­sagnir sem birst hafa í fjölmiðlum um meint ósætti hans og aðal sam­starfs­mann hans hjá ítalska risanum, Ric­car­do Adami.

Hamilton hefur átt brös­ótta byrjun hjá Ferrari eftir að hann skipti þangað yfir frá Mercedes fyrir yfir­standandi tíma­bil. Fyrir utan sigur í sprett­keppni í Kína hefur lítið gott verið að frétta hjá Hamilton innan brautar og hefur bíll Ferrari liðsins ekki verið að hjálpa þar.

Greinan­legt hefur verið á sam­skiptum Hamilton og verk­fræðingsins Ric­car­do Adami á nokkrum tíma­punktum yfir tíma­bilið hingað til að pirringur hefur gert vart við sig hjá Bretanum og sam­skipti þeirra á meðan á Mónakó kapp­akstrinum stóð um síðastliðna helgi urðu til þess að sögu­sagnir um meint ósætti fóru á flug.

Adami er maðurinn sem er ein­hvers konar stra­tegískur ráðgjafi Hamilton yfir keppnis­helgar For­múlu 1. Þeir eru í miklum sam­skiptum á meðan á keppnum For­múlu 1 stendur og geta slík sam­skipti oft verið erfið.

Sam­band Hamilton og Adami er nýtt af nálinni en Bretinn hafði átt gott sam­starf með Peter Bonnington á meðan á tíma hans stóð hjá Mercedes. Að­spurður um hvort það væri eitt­hvað óút­kljáð milli sín og Adami þvertók Hamilton fyrir það.

„Ég hef orðið var við þessar sögu­sagnir. Þetta er kjaftæði. Við eigum gott sam­starf,“ svaraði Hamilton en um komandi helgi fer fram keppnis­helgi á Spáni.

„Það er frábært að vinna með honum. Hann er frábær gæi og við erum að leggja hart að okkur en stundum náum við ekki settu marki hverja helgi.“

Auðvitað erum við ósammála þegar kemur að ákveðnum hlutum, líkt og er í öllum sam­böndum en við leysum þann ágreining. Við erum í þessu saman, viljum báðir vinna meistara­titil saman og lyfta liðinu upp á næsta stig.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×