Fulltrúi Íslands í áfalli eftir aðalfund sem fór í háaloft: „Eins og eldur í púðurtunnu“ Valur Páll Eiríksson skrifar 29. maí 2025 09:25 Auður Tinna, formaður Borðtennissambandsins, segist blessunarlega hafa setið fundinn rafrænt. Samkvæmt fregnum frá Katar óttuðust einhverjir gesta um öryggi sitt þegar allt fór í háaloft á aðalfundi Alþjóðaborðtennissambandsins. Samsett/Vísir Aðalfundur Alþjóðaborðtennissambandsins, ITTF, sem fram fór í Doha í Katar í fyrradag leystist upp í algjöra vitleysu eftir formannskjör sambandsins þar sem heimamaður þurfti að lúta í lægra haldi. Sigurvegari kosninganna flúði fundinn af hræðslu um öryggi sitt. Katarar hyggjast kæra niðurstöðuna og fulltrúi Íslands á fundinum trúði vart eigin augum þegar öskrandi, tapsárir menn tóku yfir fundinn. „
Skammarlegur dagur: Árásargirni í Doha, Katarar mótmæla kjöri Petru Sörling og hóta fulltrúum“ er fyrirsögn þýska blaðamannsins Jens Weinreich sem rekur síðuna Sport and Politics. Weinreich var á staðnum og lýsir hreint ótrúlegri uppákomu á ársþingi sambandsins í Doha í Katar á þriðjudaginn var. Þar var heimamaðurinn Khalil Al-Mohannadi, sitjandi varaformaður, í formannsframboði gegn sitjandi formanni Alþjóðaborðtennissambandsins, ITTF, hinni sænsku Petru Sörling. Katarar virðast hafa haldið að kosningin væri formsatriði fyrir Al-Mohannadi og brugðust ókvæða við þegar búið var að telja upp úr kössunum. Khalil Al-Mohannadi tapaði naumlega í formannskjörinu, var gríðarlega ósáttur, og mikill múgæsingur myndaðist á þinginu.Fred Lee/Getty Images Lygilega litlu munaði; Petra Sörling vann kosninguna með 104 atkvæði gegn 102 - 50,49 prósent atkvæða gegn 49,51 prósenti. Hræddist um öryggi sitt Samkvæmt frétt Weinreich braust út ófremdarástand, þar sem heimamenn frá Katar voru fremstir í flokki, eftir að úrslit kosninganna lágu fyrir. Sörling hafi þurft, ásamt fleirum, hreinlega að flýja samkomusalinn vegna látanna. Hún hafi farið í fylgd starfsfólks sænska sendiráðsins á hótel sitt vegna hræðslu um öryggi sitt. „Sum atkvæðanna voru greidd á netinu, sem er eðlilegt á slíkum viðburðum, þar sem ekki öllum er heimangengt. Þetta var helsta ástæðan fyrir mótspyrnu þeirra sem töpuðu kosningunni. Greinilega gátu Katar, Al-Mohannadi, Al-Mulla og allir hinir ekki ímyndað sér að tapa. Þeir vissu hvað þeir höfðu gert og fjárfest til að vinna. Auðveldara að stýra öllu á staðnum. Nú kenna þeir um meintu misræmi og stjórnun stafrænna kjósenda,“ segir í grein Weinreich. Hann virðist þá ýja að því að Katarar hafi keypt sér atkvæði í Doha. Tóku yfir og öskruðu í hljóðnemann Fundarstjóri hafi þá fengið það óþvegið og ekki síður Kevin Carpenter, yfirmaður heilindanefndar ITTF, sem fékk allsherjar gusu úr skálum reiði Kataranna sem og annarra stuðningsmanna Al-Mohannadi. Carpenter kallaður öllum illum nöfnum og vegið allverulega að heilindum hans í starfi, ef marka má skrif Weinreich. Katararnir voru hreint ekki ánægðir með niðurstöðu kosninganna.Skjáskot Sonur formannsframbjóðandans Al-Mohannadi hafi verið fyrstur manna að mótmæla, sem hafi fljótt undið upp á sig. Landi hans Adbulla Al-Mulla, yfirmaður tilnefningarnefndar ITTF, þeystist upp á svið, hrifsaði til sín hljóðnema og tók óumbeðinn yfir fundinn. Al-Mohannadi hafi svo fengið hljóðnemann frá honum og öskrað fram á gang. Stuðningsmenn Kataranna í salnum hafi þá æst sig allverulega, en eftir því sem lætin jukust hafi fjöldi fulltrúa á þinginu þegar verið haldinn á brott vegna æsingsins. Í YouTube-spilaranum hér má sjá upptöku af fundinum í heild. Upptakan er tæpir ellefu klukkutímar en ólætin hefjast þegar um 9:56:10 er liðið á upptökuna. Ellefu klukkustunda fundur sem endaði í vitleysu Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, formaður Borðtennissambands Íslands, sat fundinn fyrir Íslands hönd, en þó rafrænt. Hún átti nýlega barn og átti vegna þess ekki heimangengt til Doha. Hún var ein þónokkurra aðila sem mættu á fundinn rafrænt, alls voru þeir 21. Fundurinn stóð yfir í ellefu klukkustundir. Hann hófst klukkan níu að staðartíma (klukkan sex á íslenskum tíma) og stóð yfir til klukkan átta. Auður sat því við tölvuna til klukkan fimm að eftirmiðdegi eftir að hafa komið sér fyrir árla morguns á þriðjudaginn var. Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, formaður Borðtennissambands Íslands og Ina Jozepsone, formaður lettneska borðtennissambandsins.Aðsend Fundurinn hafi gengið eðlilega fyrir sig, þó heldur hægar en vanalega. Venju samkvæmt hafi einhverjar tillögur að lagabreytingum verið samþykktar og aðrar ekki, og fólk átt skoðanaskipti um þær. Þegar kom að því að kynna niðurstöður formannskosninganna fór hins vegar allt fjandans til. „Þetta var bara eins og eldur í púðurtunnu. Þetta sprakk bara. Maður eftir mann eftir mann rétti hvorum öðrum míkrafóninn. Þeir voru að steyta hnefann, voru ógnandi og yfirgangssamir. Svo held ég að hafi tekið við menn af götunni sem höfðu hvorki seturétt né tilkall til að tjá sig á þessum fundi sem voru farnir að skipta sér af líka,“ segir Auður Tinna í samtali við íþróttadeild. Ekki íþróttinni til sóma Formenn sambanda sem voru á bandi Katarans, þar á meðal frá Sádi-Arabíu og Ungverjalandi, voru á meðal þeirra sem tóku til máls og gengu heldur hranalega fram líkt og áður segir. „Mér þótti þessi hegðun formanna þessara sambanda ekki íþróttinni til sóma. Það er flott hjá katarska mótframbjóðandanum að há harða kosningabaráttu og ná svona mörgum atkvæðum. Það er bara hið besta mál. En menn verða að kunna að tapa,“ segir Auður sem trúði vart sínum eigin augum þegar hún fylgdist með þinginu leysast upp á skjánum, og sá þá einnig hvernig hver fulltrúinn á fætur öðrum gekk út úr salnum á meðan þessu stóð. Al-Mulla gekk hvað harðast fram, með miklum yfirgangi.Skjáskot „Ég hugsa að ef ég hefði verið í salnum hefði ég orðið svolítið skelkuð. Petra yfirgaf staðinn á endanum og ég sá þarna bara hóp af mönnum að steyta hnefann að fundarstjóra. Þetta var nú ekki mjög flott,“ „Ég spjallaði í gær við vin minn, Fróða Jensen, formann færeyska sambandsins og hann líkti þessu við það þegar Trump tapaði bandarísku forsetakosningunum; múgæsinginn og þessa stemningu að kunna ekki að tapa. Þetta var óíþróttamannslegt í einu orði sagt,“ segir Auður. „Maður sá einn og einn að yfirgefa salinn og ég held þetta hafi verið góður einn og hálfur tími sem þeir voru að rífa kjaft. Við Fróði veltum því einmitt fyrir okkur: Hvenær ætlar þessi vitleysa að enda?“ Óvænt kosningabarátta Auður segir Petru Sörling, formann sambandsins hafa staðið sig vel í embætti í þau tæpu fjögur ár sem hún hefur verið formaður þess. Það hafi því verið óvænt að þessi kosningabarátta hafi orðið svo spennandi í Doha. „Petra Sörling er búin að standa sig frábærlega í þrjú og hálft ár. Hún hefur aukið sýnileika borðtennis mjög á heimsvísu, hann hækkaði mjög í vinsældum á síðustu Ólympíuleikum. Hún er búin að safna meiri pening, metfé á árinu 2024 og 2025, og leikmenn fá meira greitt fyrir að vinna titla. Það er líka meira sem fer í útbreiðslumálin, þar er Ísland til að mynda að njóta góðs af,“ segir Auður en borðtennis hefur verið í mikilli sókn hér á landi líkt fram kom í frétt RÚV á dögunum. Petra Sörling var naumlega endurkjörin, og þykir hafa gert vel í starfi síðustu ár.Cameron Smith/Getty Images „Það er í raun mjög óvenjulegt, eins og Washington Post segir, að sitjandi formaður í Ólympíuíþrótt sem hefur aðeins setið í fjögur ár og þykir hafa staðið sig vel fái mótframbjóðanda. Hvað þá frambjóðanda sem nær 102 atkvæðum gegn hennar 104,“ segir Auður en grein Washington Post sem hún vísar til má sjá hér. Rafræna kosningin til fyrirmyndar Rafræn kosning hefur nýst hjá sambandinu frá því á tímum kórónuveirufaraldurs en það eru þau fjaratkvæði sem Katarar setja helst út á. Auður Tinna segir fyllsta öryggis hafa verið gætt við það rafræna kjörið í gær. „Það tókst mjög vel í gær að því leitinu til að maður þurfti að auðkenna sig, hlaða upp mynd af vegabréfinu sínu, gefa upp allskyns persónuupplýsingar og staðfesta svo með netfangi til að sýna að þetta væri örugglega formaðurinn sem væri að skrá sig inn,“ segir Auður, sem kaus sjálf rafrænt. Mikil reiði var eftir forsetakosninguna og fjölmargir sem hreinlega öskruðu á fundarstjórann.Skjáskot Þrætueplið stafi hins vegar af því að aðeins 201 af 207 þátttakendum í kosningunni hafi svarað þegar lesin var upp, eftir stafrófsröð, hver þátttökuþjóð fyrir sig í upphafi fundar (klukkan sex að íslenskum tíma). „En fundarstjórinn sagði þá strax í upphafi að aðrir gætu bæst við því fleiri höfðu skráð sig til þátttöku,“ segir Auður. Fundurinn enn ókláraður og Katarar halda málinu til streitu Vegna alls þess sem gekk á undir lok fundar í gær, hversu mikið hann dróst á langinn og ástandsins sem á honum myndaðist, tókst ekki að klára öll þau mál sem lágu fyrir. Þrátt fyrir ellefu klukkustunda langan fundinn stendur utan kosning í önnur stjórnarembætti sambandsins, sem þarf nú að gera á aukaaðalfundi sem ætti að fara fram á næstu mánuðum. Al-Mulla steytir hér hnefann að fundastjóra.Skjáskot „Það kom tilkynning frá Alþjóðasambandinu í dag þar sem segir að boðað verði til aukaaðalfundar til þess að kjósa restina af stjórninni, sem ekki náðist í gær út af þessari vitleysu. En katarska sambandið sendi póst í dag þar sem þau virðast ekki tilbúin að lúta niðurstöðunni enn. Þau segja að það hafi verið formgallar á rafrænu kosningunni,“ segir Auður og því útlit fyrir að málinu sé ekki lokið. Katarar muni áfram berjast gegn niðurstöðunni. „Mér finnst þetta bara skýrt dæmi um lögmætar og lýðræðislegar kosningar og ég styð Petru Sörling til góðra verka. Þetta var ekki sómasamlegt í gær en ég hlakka til að taka þátt í aukaaðalfundinum og kjósa restina af stjórn,“ segir Auður.
Borðtennis Katar Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Sjá meira