„Frábær leikmaður en Jokic átti að vinna þessi verðlaun“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 26. maí 2025 16:33 Verðmætasti leikmaðurinn Shai Gilgeous-Alexander átti verðlaunin ekki skilið að mati Leifs Inga Árnasonar. getty / skjáskot Shai Gilgeous-Alexander var valinn verðmætasti leikmaður NBA deildarinnar á leiktíðinni. Sérfræðingarnir í Lögmáli leiksins ræddu valið og voru ekki á eitt sammála.
Shai kom til Oklahoma City Thunder, sem var sigursælasta lið tímabilsins með 68 sigra, í skiptum fyrir Paul George árið 2019. Hann hefur síðan vaxið og dafnað í Oklahoma og tekið fram úr Paul George í gæðum. „Það borgaði sig og er enn að borga sig því þeir sitja á valréttum úr þeim skiptum… Ef þeir taka titilinn núna held ég að þetta séu bara bestu skipti sögunnar“ sagði körfuboltasérfræðingurinn Tómas Steindórsson. Leifur Steinn Árnason tók undir með Tómasi að skiptin hafi verið OKC afar hagstæð, en benti á að tölfræði Shai hafi ekki endilega átt að skila honum verðlaunum sem verðmætasti leikmaðurinn. „Shai er frábær leikmaður en Jokic átti að vinna þessi verðlaun að mínu mati“ sagði Leifur. Þáttastjórnandinn Kjartan Atli benti þá á að árangur liðsins skipti líka máli í valinu, Shai hafi verið „besti leikmaðurinn í yfirburða besta liðinu í deildinni.“ „MVP-inn á að vera úr besta liðinu“ tók Tómas Steindórsson undir. Umræðan hélt áfram, Kjartan og Tómas sammála gegn Leifi sem féllst ekki á valið, og hana má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Þátturinn Lögmál leiksins er svo á dagskrá á Stöð 2 Sport 2 klukkan átta í kvöld. Klippa: Lögmál leiksins ræðir valið á verðmætasta leikmanninum
NBA Mest lesið Ólympíumeistari stórslösuð eftir grjóthrun Sport Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Handbolti Hvernig hefur Liverpool efni á Alexander Isak? Enski boltinn Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik Körfubolti Með á fótboltaspjöldum þrátt fyrir ákæru vegna nauðgunar Enski boltinn UEFA tapaði milljörðum króna á Evrópumóti kvenna Fótbolti Flóðbylgjuviðvörunin hefur ekki áhrif á leik Liverpool Enski boltinn Gott að koma til Íslands en skrýtið að mæta Blikunum Fótbolti Dagskráin í dag: Ómögulegt verkefni Breiðabliks og ensk úrvalsdeildarlið Sport Vefsíða Arsenal hrundi í miðju Gyokeres æði Enski boltinn Fleiri fréttir Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals LeBron hitti umboðsmann Jokic í Frakklandi Landsliðsmenn buðust til að ræða við Craig: „Var ekki að fara grátbiðja hann í annað sinn“ Kristófer sendir frá sér yfirlýsingu: „Ekki ætlun mín að valda usla“ Kristófer opnar sig um ágreininginn: „Vonbrigði og vanvirðing“ Shaq lofar að mæta í kjól ef Gobert verður valinn Mynd af yngstu dóttur Kobe Bryant vekur lukku Mættur aftur tuttugu árum seinna Sagt að hann spili ekki aftur meðan Craig er með liðið Stólarnir styrkja íslenska kjarnann með Geks Mario og Jaka í æfingahópnum fyrir EM Ásakaði LeBron um steranotkun í gríni Þreyttur á fallbaráttu og furðulegum ákvörðunum Sutton snýr aftur á Krókinn Svona er riðill Íslands í undankeppni EM Daðraði við Dallas áður en hann skrifaði undir hjá Lakers á nýjan leik Frá Skagafirði á Akranes Paul ætlar að klára ferilinn hjá Clippers Gömul Boston Celtics stjarna semur við Los Angeles Lakers Þjóðverjar sendu íslensku strákana niður í B-deildina Fyrsta konan til að þjálfa karlalið í Brasilíu „Borgið okkur það sem þið skuldið okkur“ Strákarnir tryggðu sér úrslitaleik um sæti í A-deild EM með stórsigri Vill eyða draugasögunni um að Grindavík spili ekki í Grindavík í vetur Sjá meira