Lífið

Nadía og Arnar selja fal­legt hús í Hafnar­firði

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Nadía og Arnar eiga saman einn dreng.
Nadía og Arnar eiga saman einn dreng.

Knattspyrnukonan Nadía Atladóttir og kærastinn hennar, Arnar Freyr Ársælsson  markaðsstjóri Core, hafa sett parhús sitt við Þrastarás í Hafnarfirði á sölu. Húsið var byggt árið 2003 en hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum. Ásett verð er 145,9 milljónir króna.

Nadía spilar með meistaraflokki Vals, en hún gekk til liðs við félagið síðasta sumar eftir farsælan feril með uppeldisfélagi sínu, Víkingi. Þar var hún lykilleikmaður þegar liðið tryggði sér sæti í Bestu-deildinni og vann bikarmeistaratitilinn í ágúst 2023. Samhliða knattspyrnunni stunda Nadía meistaranám í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og rekur jafnframt barnafataverslunina MóMama.

Nadía og Arnar kynntust þegar þau æfðu bæði með FH og eiga saman einn dreng.

Nadía og Arnar festu kaup á eigninni í október 2023 og greiddi þá 112 milljónir króna.

Heimili fjölskyldunnar er hlýlega innréttað með ljósum jarðlitum og dökkum við sem gefur því notalegt og nútímalegt yfirbragð.

Um er að ræða 182,5 fermetra parhús, þar af 24,6 fermetra bílskúr. Á baklóðinni er skjólsæll garður með nýjum 80 fermetra viðarpalli.

Eldhús, stofa og borðstofa renna saman í eitt þar sem aukin lofthæð og stórir gluggar hleypa inn mikilli birtu í rýmið. Í eldhúsinu er dökk viðarinnrétting sem nær upp í loft og ljósum stein á borðum. Fyrir miðju er vegleg eyja með góðu vinnuplássi og setuaðstöðu.

Í húsinu eru tvö barnaherbergi með innbyggðum fataskápum og rúmgott hjónaherbergi með sér fataherbergi. Útgengt er úr hjónaherberginu út á pall. Úr holinu liggur hringstigi upp á milliloft sem nýtist bæði sem skrifstofa eða notalegt sjónvarpshol.

Baðherbergið er einstaklega fallegt, prýtt ljósum flísum og dökkri viðarinnréttingu. Sturtuglerið er rifflað og innrammað með svörtum, grönnum ramma sem gefur baðherberginu nútímalegan og elegant svip.

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.