Innlent

Af­staða fær 600 þúsund í verð­laun frá Reykja­víkur­borg

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, veitti verðlaununum viðtöku við athöfn í Höfða í dag.
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, veitti verðlaununum viðtöku við athöfn í Höfða í dag. Reykjavík

Afstaða, félag um bætt fangelsismál og betrun, hlaut í dag 600 þúsund krónur að gjöf fyrir að hljóta mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2025. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri afhenti Guðmundi Inga Þóroddssyni, formanni félagsins, verðlaunin í Höfða fyrr í dag fyrir starf Afstöðu í þágu fanga og aðstandenda þeirra.

Verðlaunin eru afhent í dag, 16. maí, á mannréttindadegi Reykjavíkurborgar en markmiðið með deginum er að „vekja athygli á mannréttindum borgarbúa og mannréttindastefnu borgarinnar,“ að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Það var mannréttindaráð borgarinnar sem samþykkti á fundi sínum að Afstaða hlyti verðlaunin í ár en þau eru veitt árlega til einstaklinga, hópa, félagasamtaka eða stofnana sem þykja hafa á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi.

„Afstaða heimsækir reglulega öll fangelsi landsins og veitir stjórnvöldum aðhald sem öflugur málsvari bættra fangelsismála á Íslandi. Afstaða, sem í ár fagnar 20 árum, samanstendur af sjálfboðaliðum, jafningjum og fagfólki og leggur félagið áherslu á jafningjastuðning, endurhæfingu og endurkomu einstaklinga í samfélagið eftir afplánun,“ segir meðal annars í rökstuðningi valnefndar, en nánar er fjallað um verðlaunin á vef borgarinnar.

Upplýsingatorg fékk viðurkenningu

Við sama tækifæri var einnig afhent svokölluð Aðgengisviðurkenning Reykjavíkurborgar. Það er Katarzyna Beata Kubis sem hlýtur viðurkenninguna í ár fyrir upplýsingatorg sem ætlað er forráðafólki og aðstandendum fatlaðra barna. Upplýsingatorgið miðlar upplýsingum um þjónustu á einum stað þar sem efnið er aðgengilegt á íslensku og ensku.

Fram kemur í tilkynningunni að viðurkenningunni sé ætlað að gera aðgengismálum hærra undir höfði og varpa ljósi á það sem vel er gert í málaflokknum. Verkefnið var unnið af Þroskahjálp í samvinnu við Mennta- og barnamálaráðuneytið sem veitti styrk til þess árið 2023.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×