Erlent

Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Marco Rubio er mættur til Tyrklands.
Marco Rubio er mættur til Tyrklands. AP/Khalil Hamra

Fyrstu beinu friðarviðræðurnar í rúm þrjú ár á milli fulltrúa Rússlands og Úkraínu fara fram í Tyrklandi í dag. Takmarkaðar væntingar ríkja um árangur viðræðnanna, en hvorki Pútín Rússlandsforseti né Selenskí Úkraínuforseti taka beinan þátt í viðræðunum. Trump Bandaríkjaforseti segist vilja hitta Pútín eins fljótt og hægt er.

Samningamenn Rússlands og Úkraínu hittast í Istanbúl á næstu klukkustundum ásamt fulltrúa Bandaríkjanna, en það eru gestgjafar Tyrkja sem leiða viðræðurnar. Fram kemur í umfjöllun BBC að nú sé hins vegar hafinn þríhliða fundur sendinefnda Úkraínu, Bandaríkjanna og Tyrklands í Dolmabahce-höllinni í Istanbúl. Á fundinum eru Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Keith Kellogg, erindreki Trumps gagnvart Úkraínu, Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu og Andriy Yermak, yfirmaður forsetaskrifstofu Selenskí, auk Hakans Fidan, utanríkisráðherra Tyrklands.

Fjölmiðlar fylgjast grannt með gangi mála í Tyrklandi þessa vikuna.Getty/Burak Kara

Rubio sagði í gær að hann hefði „ekki miklar væntingar“ til viðræðnanna á milli Rússlands og Úkraínu í dag. Væntingarnar eru almennt sagðar í lágmarki en í gær sagði Trump Bandaríkjaforseti að engin hreyfing myndi komast á viðræðurnar fyrr en hann sjálfur myndi hitta Pútín í persónu. Í morgun sagði Trump að hann vilji hitta Pútín sem fyrst. 

Sendinefndir í stað forsetanna

Í aðdraganda viðræðnanna sem fram eiga að fara í dag hafði Pútín lagt til að viðræður við Úrkaínu færu fram í Tyrklandi. Því svaraði Selenskí með því að skora á Pútín að hitta sig í persónu, hann myndi sjálfur mæta til Tyrklands í dag til að eiga samtal við Pútín. Ekki vildi Pútín verða við því og í staðinn senda þeir báðir sendinefndir.

Selenskí sagðist fyrr í vikunni hafa ákveðið að senda erindreka á fund við rússneska sendinefnt þótt Pútín hafi ákveðið að senda lágt setta erindreka. Það sagðist Selenskí hafa gert af virðingu við Donald Trump og Recep Tayyip Erdogan, forseta Bandaríkjanna og Tyrklands. Hann hafi litla sem enga trú á raunverulegum friðarvilja Rússa á meðan þeir séu ekki einu sinni reiðubúnir að fallast á vopnahlé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×