Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Atli Ísleifsson skrifar 12. maí 2025 07:18 Abdullah Öcalan, leiðtogi PKK, hvatti í febrúar liðmenn samtakanna til að leggja niður vopn og að samtökin verði leyst upp. Hann hefur setið í fangelsi frá árinu 1999. AP Ákvörðun hefur verið tekin um að leysa upp PKK, Verkamannaflokk Kúrda, og að liðsmenn þess skuli leggja niður vopn.
Þetta var ákveðið á ráðstefnu samtakanna í norðurhluta Íraks í síðustu viku að því er kúrdíska fréttaveitan Firat segir frá. PKK hefur lengi barist fyrir sjálfstæðu ríki Kúrda og kann þetta að marka endalok átaka sem hafa staðið milli Kúrda og tyrkneskra stjórnvalda í um fjörutíu ár. Sagt var frá því í febrúar að Abdullah Öcalan, leiðtogi PKK, hafi hvatt liðmenn samtakanna til að leggja niður vopn og að samtökin verði leyst upp. Öcalan hefur setið í fangelsi á eynni Imrali í Marmarasundi í Tyrklandi frá árinu 1999 þar sem hann afplánar lífstíðardóm. Fáeinum dögum eftir yfirlýsingu Öcalan í febrúar var greint frá því að PKK hafi lýst yfir vopnahléi gegn því að samið yrði um ramma um friðarviðræður. Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti fagnaði á sínum tíma yfirlýsingunni. PKK var stofnað á áttunda áratugnum og hafði það að markmiði að koma á sjálfstæði Kúrda í Tyrklandi. Bæði stjórnvöld í Bandaríkjunum og Evrópusambandinu hafa skilgreint PKK sem hryðjuverkasamtök. Rúmlega 40 þúsund manns hafa látið lífið í átökum uppreisnarsveita Kúrda og Tyrkja síðustu áratugi, en átökin stóðu hvað hæst á níunda og tíunda áratugnum.
Tyrkland Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira