Lífið

Frétta­maður í næstlé­legasta flokknum en Væb stór­stjörnur

Bjarki Sigurðsson skrifar
Væb-bræður heilla.
Væb-bræður heilla. Getty

Bræðurnir í Væb og föruneyti þeirra eru algjörar stórstjörnur á Eurovision í Basel, miðað við áhuga fjölmiðla á þeim og fagnaðarláta þegar þeir mæta á svæðið. 

Síðustu ár hefur það verið hluti af opnunarhátíð Eurovision að keppendur gangi svokallaðan túrkis dregil þar sem gestir og gangandi geta hvatt þau til dáða. Nafn dregilsins er væntanlega komið til vegna þess að dregillinn sem gengið er eftir er túrkisblár.

Í ár var hlutunum háttað öðruvísi en venjulega og í raun ekið eftir lengsta dregli Eurovision-sögunnar. Aksturinn hófst við Rathaus Basel, ráðhúsið í Basel, og endaði í Eurovision-þorpinu þar sem keppendur lentu í fanginu á fjölmiðlum sem höfðu beðið heillengi eftir þeim.

Fréttastofa náði tali af nokkrum keppendum en vegna nýs fyrirkomulags voru viðtölin heldur færri en venjan er. Fjölmiðlum var skipt í sjö flokka og var fréttamaður í sjötta flokki, næst„lélegasta” flokknum. 

Keppendur fóru í gegnum alla flokkana í dagskrá sem hófst klukkan 14, en þá voru íslenskir fjölmiðlar einmitt komnir á sinn stað. Það var ekki fyrr en tæpum þremur tímum síðar sem sjötti flokkur fékk sitt fyrsta viðtal.

Þá voru fjölmiðlar orðnir afar þreyttir á biðinni og keppendur enn þreyttari eftir að hafa klárað fimm flokka á undan. Því voru fjölmargir sem yfirgáfu dregilinn áður en sjötti flokkurinn fékk séns. Nokkrir slepptu líka hluta sjötta flokks til að gefa sjöunda flokknum (miðlar sem sérhæfa sig í Eurovision, bloggarar og fleiri) nokkur viðtöl.

Þreytan lét flesta þó ekki stoppa sig og kláraðu dæmið með stæl, til að mynda Væb-bræðurnir og hópurinn þeirra. Allir sem vildu ræða við þá fengu viðtal og það var alveg sama hvað þeir voru búnir að vera lengi að, þeir voru alltaf jafn hressir og til í stuðið. Fjölmiðlamenn um allan heim virðast dýrka hópinn, því það var enginn sem fékk lófatak þegar gengið var inn í sjötta flokkinn, nema Væb-ararnir. Sannkallaðar stórstjörnur hér í Basel. 

Hér fyrir neðan má sjá þau viðtöl sem fréttamaður náði á túrkis dreglinum í ár. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.