Innlent

Ætla að ráðast í um­fangs­mikla rann­sókn á gagnaþjófnaðinum

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Margrét Einarsdóttir formaður nefndar um eftirlit með lögreglu.
Margrét Einarsdóttir formaður nefndar um eftirlit með lögreglu. Vísir/Sigurjón

Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu ætlar að ráðast í umfangsmikla frumkvæðisathugun á gagnaþjófnaði frá sérstökum saksóknara. Ríkissaksóknari hefur sagt sig frá rannsókn málsins og vísað því til lögreglunnar á Suðurlandi. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur ákveðið að taka málið til umfjöllunar.

Margrét Einarsdóttir formaður nefndar um eftirlit með lögreglu segir að nefndin hafi hist í morgun eftir að hafa fengið gögn frá ríkissaksóknara sem tengjast víðtækum gagnaþjófnaði frá sérstökum saksóknara á árunum 2009-2011. Upplýst var um lekann í Kastljósi á RÚV í vikunni. Ákveðið hafi verið að bregðast strax við.

„Við ákváðum að fara af stað með frumkvæðismál þar sem við ætlum að kalla eftir upplýsingum frá lögreglunni hvað varðar varðveislu viðkvæmra gagna eyðingu þeirra og fleira. Það sem við viljum aðallega fá upplýsingar um er hvernig meðferð gagnanna er háttað í dag, “ segir Margrét.

Umfangsmikil rannsókn framundan

Búast megi við að umfangsmikilli rannsókn.

„Nú fer að stað mikil vinna innan lögreglunnar að fara yfir þessi mál og okkar hlutverk er að fylgjast með að sú vinna eigi sér stað og það sem komi út úr henni sé ásættanlegt. Það þurfa allir að koma að borðin. Lögreglan, dómsmálaráðherra, eftirlitsnefndin. Það gefur auga leið að þetta er eitthvað sem allir á öllum vígstöðvum líta mjög alvarlegum augum. Við munum leggjast á eitt til að koma í veg fyrir að svona nokkuð  komi upp aftur,“ segir Margrét.

Fleiri rannsaka málið

Ríkissaksóknari ákvað í dag að vísa tveimur málum er varðar gagnaþjófnaðinn til lögreglunnar á Suðurlandi. Í svari hennar til fréttastofu kemur fram að til rannsóknar séu ætluð brot á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Stjórnskipunar og eftirltisnefnd hefur líka ákveðið að taka gagnaþjófnaðinn fyrir á fundi sínum á mánudag samkvæmt upplýsingum frá formanni nefndarinnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×