Lífið

Gengst við kókaínfíkn sinni

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Måns Zelmerlöw á sviði í Söngvakeppni Sjónvarpsins fyrr í ár.
Måns Zelmerlöw á sviði í Söngvakeppni Sjónvarpsins fyrr í ár. V'isir/Andri

Eurovision-sigurvegarinn Måns viðurkennir að hafa glímt við kókaínfíkn eftir að hafa áður neitað því. Fyrrverandi eiginkona Måns sakaði hann um vímuefnaneyslu, framhjáhöld og ofbeldi. Måns neitar því að hafa beitt fjölskyldu sína ofbeldi og segist ekki hafa neytt vímuefna fyrir framan börn sín.

Måns Zelmerlöw hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu. Popparinn sem sigraði Eurovision árið 2015 með laginu „Heroes“ lenti í öðru sæti á eftir grínhljómsveitinni KAJ í Melodifestivalen í Svíþjóð á dögunum. Hann brást illa við ósigrinum og sagðist sérstaklega hissa á atkvæðum alþjóðlegra dómnefnda. 

Hann hélt svo uppteknum hætti dagana á eftir og sendi gagnrýnendum sínum pillu á samfélagsmiðlum. Skömmu síðar kom í ljós að Måns hefði skilið við eiginkonu sína Ciöru skömmu fyrir tónleikana. Þau höfðu verið saman í tíu ár og eiga tvö börn saman.

Fyrrverandi eiginkona Måns, leikkonan Ciara Janson, opnaði sig í mars um skilnað þeirra hjóna og sagðist ekki geta þagað lengur yfir skilnaðinum og ástæðum hans.

„Ég get ekki lengur horft upp á fjölskyldu mína lifa í fjandsamlegu umhverfi þar sem þau verða vitni að fíkniefnamisnotkun, andlegu og líkamlegu ofbeldi og endalausu framhjáhaldi,“ skrifaði hún í tilkynningu sem hún birti á Instagram.

Måns neitaði þá öllum ásökunum Ciöru en á mánudag viðurkenndi hann í viðtali við sænska dag­blaðið Göte­borgs-Posten að hafa notað kókaín.

„Ég hef verið á móti fíkniefnum alla mína ævi, en fyrir tveimur árum birtist efnið í tónleikaferðalagarútunni. Allir hinir voru að nota það. Þetta er alvanalegt í mínum bransa þannig það var erfitt að prófa þetta ekki, sagði Måns við blaðið.

Þá sagði hann að hann hefði leitað sér aðstoðar og hefði unnið bug á fíkn sinni. Hann sagðist stoltur af því að hafa unnið bug á fíkninni og myndi aldrei snerta kókaín aftur. Hann áréttaði að hann hefði aldrei notað vímuefni fyrir framan börn sín og neyslan hefði einungis tengst djamminu.

Måns spilaði í Laugardalshöll á úrslitakvöldi Söngvakeppni sjónvarpsins árið 2017 og tók þar tvö lög sem má heyra hér að neðan:


Tengdar fréttir

Måns mættur á markaðinn

Sænska poppstjarnan Måns Zelmerlow og breska leikkonan Ciara Zelmerlow standa nú í skilnaði. Þau höfðu verið saman í tíu ár og eiga saman tvö börn.

Svíar senda gríngrúppu í stað Måns í Eurovision

Sænsk-finnska gríngrúppan Kaj mun koma fram fyrir Svíþjóð í Eurovision í Basel í maí. Kaj vann sænsku forkeppnina, Melodifestivalen, í kvöld. öðru sæti var Måns Zelmerlöw sem vann Eurovision árið 2015 með lagið Heroes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.