Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Magnús Jochum Pálsson skrifar 16. september 2026 15:38 Lena Dunham og eiginmaður hennar, hinn perúsk-breski Luis Felber, eru orðin foreldrar. Getty Lena Dunham, rithöfundur, leikkona og höfundur sjónvarpsþáttanna Girls, eignaðist dóttur með eiginmanni sínum, Luis Felber, með hjálp staðgöngumóður í sumar. Dunham hefur verið opinská um glímu sína við endómetríósu og fór í legnám til að losna við króníska verki sem fylgja sjúkdómnum.
Dunham greindi frá tíðindunum í skoðanagrein í tímaritinu Vogue í dag og með greininni birtist mynd af hjónunum með dóttur sinni og hundi. Dunham skrifar í greininni um fæðingu dótturinnar og aðdragandann að henni. „Þrettán dögum eftir settan dag, andspænis sólmyrkva og loftsteinaregni, kunngerði hún komu sína. Ég sat á sjúkrarúmi milli fótanna á konu sem ég þekkti ekki ári fyrr og beið eftir að sjá bregða fyrir þessari manneskju sem ég hafði beðið með einhvers konar þolinmæði en líka alls engri,“ skrifar Dunham um dóttur sína. Fæðingardagur dótturinnar kemur ekki fram í greininni en almyrkvi á sólu varð 12. ágúst síðastliðinn og sama dag var lofsteinadrífa Persíta sem er árlegt fyrirbæri. Fór í legnám vegna krónískra verkja Dunham og Felber kynntust vorið 2021 og giftu sig um haustið eftir sjö mánaða samband. Dunham hefur í gegnum tíðina verið opinská um heilsu sína og hvernig hún hefur haft áhrift á barneignaráætlanir hennar. Dunham gaf fyrr á árinu út æviminningarnar Famesick þar sem hún skrifaði um glímu sína við endómetríósu og hvernig hún hefði beðið lækna um legnám vegna gríðarlegs sársaukans sem fylgir sjúkdómnum. Dunham sagði frá aðgerðinni sem hún fór og ákvörðuninni að baki henni í sjónvarpsþættinum Today í vor. „Það er áhugavert því þetta er rammað inn eins og valkostur sem þú velur þér en ef þú ert sárkvalin allan sólarhringinn þá er þetta í rauninni ekki valkostur því það getur enginn lifað svona,“ sagði Dunham í viðtalinu. „Og það sem brýtur í mér hjartað er að það eru svo margt fólk sem lifir svona því fresturinn eftir greiningu á endómetríósu er að meðaltali tíu ár.“ Hún hefði alltaf séð það fyrir sér að verða móðir þannig að aðgerðinni hefði fylgt mikil sorg. „Á þessu augnabliki vó sársaukinn svo þungt að ég lagði þær hugsanir til hliðar. Það var einungis eftir aðgerðina sem ég fann fyrir því hvað hefði skeð. Sumt fólk dreymir ekki um að verða mæður en ég hafði gert og það var stór hluti af minni sjálfsmynd að ég ætlaði að verða það einn daginn,“ sagði hún. Hún hefur reglulega talað um þrá sína eftir því að stækka fjölskyldu sína og sagði sumarið 2025 að hún og Felber væru stödd í því ferli. Nú rúmu ári síðar eru þau orðin foreldrar í fyrsta sinn.
Barnalán Bandaríkin Hollywood Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Hætt saman eftir 5 ára samband Lena Dunham er hætt með kærastanum. 9. janúar 2018 10:00 Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Sjá meira