Hópnauðganir/svartheimar! Davíð Bergmann skrifar 22. apríl 2025 11:02 Í kvöldfréttum 16. apríl á Stöð 2 kom fram að hér á landi hefðu verið framdar 6 hópnauðganir á þessu ári og yfirmaður kynferðisdeildar lögreglu, Bylgja Hrönn, segir þetta vera aukningu frá fyrri árum, eins og kom fram í frétt Stöðvar 2. Gerendurnir eru sagðir vera á aldrinum átján til fertugs og ég geri ráð fyrir því að langstærsti hluti þeirra sé karlmenn, eins og hefur komið fram í rannsóknum í gegnum tíðina. Ef við skoðum tölfræðina sem kom fram í fréttinni hjá Stöð 2 þá kom fram að hópnauðganir hafa verið frá árinu 2020 til dagsins í dag: 2020 - 9 2021 - 9 2022 - 7 2023 - 6 2024 - 10 2025 - 6 og það eru bara liðnir 4 mánuðir af árinu Þetta hlýtur að hringja aðvörunarbjöllum hjá okkur: Miðað við hvað maður veit nú þegar um þessi mál, og það þarf ekki nema að líta til greinar í Mannlífi 8. apríl, þá hlýtur maður að staldra við og hugsa hvert við erum að stefna og hver orsökin er fyrir þessari þróun hér á landi. „Samkvæmt heimildum Mannlífs átti hin meinta nauðgun sér stað í Höfðahverfinu í Árbænum. Þá eiga allir mennirnir sem voru handteknir að vera af erlendum uppruna. Konan er íslensk. Samkvæmt heimildum Mannlífs er grunur um að henni hafi verið byrluð ólyfjan. Einn maðurinn var samkvæmt heimildum Mannlífs vinur konunnar.“ Þetta er tekið úr Mannlífsgrein þar sem meint hópnauðgun þriggja erlendra manna er í rannsókn í Höfðahverfi í Árbænum. Eins veit ég af annarri hrottalegri nauðgun þar sem 3 erlendir menn hópnauðguðu íslenskri konu. Ef til rannsóknar eru sex hópnauðganir á þessu ári og maður veit fyrir víst að tvö af þeim eru framin af erlendum ríkisborgurum, hlýtur maður að spyrja sig um hin fjögur málin. Nú þekki ég ekki til þeirra mála en ef við horfum til annarra landa í kringum okkur, eins og Svíþjóðar, þá var hlutfallið þar 74% samkvæmt blaðinu Expressen að erlendir ríkisborgarar væru gerendur í hópnauðgunarmálum. Ég minni jafnframt á að við erum 400.000 en Svíar voru í nóvember 10.588.230og hlutfall innflytjenda er miklu hærra þar í landi en hér. Þegar það er verið að tala um hópnauðganir eru gerendurnir tveir eða fleiri og Bylgja Hrönn sagði í þessari frétt að það væru meira að segja til rannsóknar mál þar sem gerendurnir eru fleiri en þrír. En að sjálfsögðu kom þjóðerni þeirra ekki fram í þessari frétt, eins væri forvitnilegt að vita hvar á landinu þessi brot hafa farið fram og í hvaða umhverfi því ég myndi telja það hafa gott forvarnargildi fyrir almenning í framtíðinni og hvað ber að varast. RÚV lýgur ekki Svo ég haldi áfram að vitna í fjölmiðla þá langar mig að benda á það sem kom fram á RÚV sem ég fann undir samfélagsmál á netinu og ég setti linkinn hérna undir. https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-04-15-hatursordraeda-falin-i-villandi-tolfraedi-a-tiktok-441607 Ég sá þetta reyndar fyrst í þættinum hans Frosta Logasonar Harmageddon, þar sem hann var að benda á að við værum komin út í skurð í þessari umræðu og þar er ég svo hjartanlega sammála honum og ég skora á fólk að hlusta á hvað kom þar fram: Hatursorðræða falin í villandi tölfræði á TikTok Þar er RÚV að hrekja villandi upplýsingar á samfélagsmiðlum að þeirra sögn og auðvitað skal rétt vera rétt en það sem reynist rétt samkvæmt RÚV finnst mér vera nóg um og full ástæða til að staðnæmast og skoða nánar. Dæmi hver fyrir sig núna Erlendir ríkisborgarar sem hófu afplánun í fangelsum hér á landi voru 52,7% á síðasta ári, upplýsingar fengnar frá Fangelsismálastofnun, svo erum við að tala um plássleysi í fangelsum landsins og ætlum að byggja fangelsi fyrir á þriðja tug milljarða og fyrir hverja á það að vera! Hlutfall gæsluvarðhaldsfanga var 69,8%, fyrir árið 2024, af erlendum uppruna. Svo ég haldi áfram að vitna í RÚV, kom þar fram að í Svíþjóð séu gerendur í nauðgunum 58% erlendir. Sænska blaðið Expressen segir að 74% hópnauðgana séu framdar af erlendum gerendum. Jafnframt sagði RÚV frá því að tilraun hafi verið gerð til að hafa upplýsingar frá opinberum aðilum í Svíþjóð um þessar tölur en sænska afbrotavarnaráðið birtir ekki upplýsingar um þjóðerni og uppruna gerenda. Hverjum er það til tekna að hafa þöggun um þennan málaflokk og svo erum við að tala um hryðjuverkaógn frá hvítum hægri öfgamönnum! Hver er þróunin og af hverju? Getur verið að hér á landi sé að eiga sér stað sama þróun eins og á hinum Norðurlöndunum og ætli það hafi eitthvað með innflutning fólks hingað til lands að gera? Getur verið að menning og trúarbrögð spili þar inn í eins og hefur gerst annars staðar í Evrópu og sér í lagi í Svíþjóð, Þýskalandi og Bretlandi? Eða er þessu öðruvísi farið hér á landi? Ég ætla ekki að fullyrða það hér en maður hlýtur að spyrja sig þessara spurninga, eða er það kannski bannað og skyldi það flokkast undir hatursglæp að gera það? Staðreyndin er samt að í tveimur af þessum sex málum sem eru til rannsóknar í dag veit ég fyrir víst að gerendurnir eru erlendir og miðað við tölfræðina frá Svíþjóð, þar sem kemur fram í blaðinu Expressen að 74% hópnauðgana þar í landi séu framin af erlendum ríkisborgurum, hvert er þá hlutfallið hér á landi t.d. frá árinu 2020? Ef það er verið að tala um aukningu hér á landi helst það í hendur við þann innflutning af fólki af erlendum uppruna eða af þeim erlendu ríkisborgurum sem hafa verið að setjast hér að. Ef svo er hefur það eitthvað með að gera að þetta fólk kemur úr ólíkum menningarheimum og gildismat þeirra er með öðrum hætti en því sem við eigum að venjast. Getur verið að þeir sem eiga í hlut horfi öðruvísi á hlutskipti karla og kvenna í samfélaginu en við gerum svona almennt. Án þess að ég ætli að fullyrða nokkuð hérna hver orsökin sé þá hljótum við að gera þá kröfu að fá þessar upplýsingar komi fram til að verja okkar nánustu. Ég tek það skýrt fram að ég er ekki að tala um neitt sérstakt þjóðerni hérna eða trúarbrögð. Svartheimar undirheimanna Síðan má líka velta fyrir sér hvort þetta hafi eitthvað með þá glæpamenningu að gera sem hefur verið að ryðja sér til rúms hér á landi og hvort þetta hafi ekkert með þjóðerni að gera. Það er vitað mál að klámmenningin og viðbjóðurinn sem þrífst í undirheimunum er slíkur og maður hefur oft verið vitni að því í mínum störfum í gegnum áratugina og afleiðingar af slíku eru oft skelfilegar og það sem gerist inni í svartheimum undirheimanna kemur sjaldnast upp á yfirborðið. Fyrst að við erum komin inn í þann heim hlýtur maður að spyrja sig þessara spurninga: Getur verið að með tilkomu sterkari efna og hættulegri, eins og koma fram hjá yfirlækni á Vogi, að þróunin væri orðin ískyggilegri og efnin séu aðgengilegri og ódýrari? Hér er ekki um tilviljun að ræða Þetta er ekki tilviljun, nei, þetta er ískaldur veruleikinn og það segir okkur að við þurfum að fara að vakna upp frá þeim gamla draumi að Ísland sé gamla góða, saklausa Ísland; við erum það ekki, við erum inni í hringyðju skipulagðs glæpaheims hér á landi eins og annars staðar. Það eru engin landamæri í þeim heimi og menn leita allra leiða til að koma sinni vöru á markaðinn og þeim er drull þó að efnið sé stórhættulegt. Nú þarf að fara í aðgerðir sem bíta í undirheimunum svo um munar og það mætti alveg fjármagna þær aðgerðir að fullu fyrst að við getum verið að setja fé í erlendan her því þetta fjallar um líf barna okkar og framtíð þeirra. Að lokum verðum við að þora að taka þessa umræðu þó að hún sé erfið og það að ætla að vera með þöggun er engum til framdráttar og allra síst því dýrmætasta sem við eigum, æsku barna okkar. Höfundur er áhugamaður um betra samfélag og Miðflokksmaður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Davíð Bergmann Mest lesið Vegatollar Borgarlínu - Refsiaðgerð gegn venjulegu fólki Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson,Hlynur Áskelsson Skoðun Innrás og forsetarán í Venesúela – hvað tekur við? Gylfi Páll Hersir: Skoðun Bayes-reglan og rökrétt hugsun Arnar Sigurðsson Skoðun Edrúar febrúar – um fíkn, neyslu og bata Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir Skoðun Veit fólk á samfélagsmiðlum allt um getnaðarvarnir? Jórunn Oddsdóttir,Steinunn Zophoníasdóttir Skoðun RESCALED Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Af sköpunargleði Viðskiptaráðs Jean-Rémi Chareyre Skoðun Gróska í starfsemi leikskóla Reykjavíkurborgar – áfram leikskólar Steinn Jóhannsson,Ólafur Brynjar Bjarkason Skoðun Af hverju var snjóflóðið á Flateyri ekki rannsakað? Sóley Eiríksdóttir Skoðun Þegar börn læra réttindi sín – og við lærum með þeim Lilja Marta Jökulsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Milljarðar í stjórnsýslu eða í þjónustu? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þjóð að þyngjast – Fjárhagslega óhagkvæmt að fjárfesta ekki í heilsutengdum forvörnum Janus guðlaugsson skrifar Skoðun Ákall Marco Rubio um sterkari Evrópu — hvað þýðir það fyrir Ísland? Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Af sköpunargleði Viðskiptaráðs Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Þegar börn læra réttindi sín – og við lærum með þeim Lilja Marta Jökulsdóttir skrifar Skoðun Edrúar febrúar – um fíkn, neyslu og bata Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið sjálft skapar álagið Eydís Sara Óskarsdóttir skrifar Skoðun Varnir Evrópu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Sjálfbærni sem samkeppnisforskot fyrir minni fyrirtæki Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gróska í starfsemi leikskóla Reykjavíkurborgar – áfram leikskólar Steinn Jóhannsson,Ólafur Brynjar Bjarkason skrifar Skoðun RESCALED Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Matvælaöryggi og forvarnir Hanna Lóa Skúladóttir,Guðrún Adolfsdóttir skrifar Skoðun Sjálfseignarbændur eða leiguliðar Kristófer Alex Guðmundsson skrifar Skoðun Veit fólk á samfélagsmiðlum allt um getnaðarvarnir? Jórunn Oddsdóttir,Steinunn Zophoníasdóttir skrifar Skoðun Umferð akandi, hjólreiðar fólki, rafhlaupahjolafolki og gangandi vegfarendur Össur Pétur Valdimarsson skrifar Skoðun Rússnesk skemmdarverk, innviðir og Ísland Kristinn Hróbjartsson skrifar Skoðun Af hverju var snjóflóðið á Flateyri ekki rannsakað? Sóley Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bayes-reglan og rökrétt hugsun Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Samgöngumál á Suðurlandi Þórir N. Kjartansson Vík skrifar Skoðun Innrás og forsetarán í Venesúela – hvað tekur við? Gylfi Páll Hersir: skrifar Skoðun Hjúkrunarrýmum fækkaði árin 2019-2024 - miðað við fjölgun aldraðra Alma D. Möller skrifar Skoðun Lilja er Framsókn Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra fjarlægist atvinnulífið Bergþór Ólason skrifar Skoðun Að fljóta sofandi að feigðarósi í boði Viðskiptaráðs Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Traust, trúverðugleiki og heilindi Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Er Reykjavík virkilega dreifð? Gögn segja annað Finnur Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Vegatollar Borgarlínu - Refsiaðgerð gegn venjulegu fólki Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson,Hlynur Áskelsson skrifar Skoðun Við styðjum kollega okkar á bráðamóttöku Landspítalans! Guðrún Árný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Byggjum upp færni til sjálfsstæðrar búsetu – ekki bara hjúkrunarheimili Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Reykjavík er hvorki gjaldþrota né ofurþétt Guðni Freyr Öfjörð skrifar Sjá meira
Vegatollar Borgarlínu - Refsiaðgerð gegn venjulegu fólki Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson,Hlynur Áskelsson Skoðun
Veit fólk á samfélagsmiðlum allt um getnaðarvarnir? Jórunn Oddsdóttir,Steinunn Zophoníasdóttir Skoðun
Gróska í starfsemi leikskóla Reykjavíkurborgar – áfram leikskólar Steinn Jóhannsson,Ólafur Brynjar Bjarkason Skoðun
Skoðun Þjóð að þyngjast – Fjárhagslega óhagkvæmt að fjárfesta ekki í heilsutengdum forvörnum Janus guðlaugsson skrifar
Skoðun Ákall Marco Rubio um sterkari Evrópu — hvað þýðir það fyrir Ísland? Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar
Skoðun Gróska í starfsemi leikskóla Reykjavíkurborgar – áfram leikskólar Steinn Jóhannsson,Ólafur Brynjar Bjarkason skrifar
Skoðun Veit fólk á samfélagsmiðlum allt um getnaðarvarnir? Jórunn Oddsdóttir,Steinunn Zophoníasdóttir skrifar
Skoðun Umferð akandi, hjólreiðar fólki, rafhlaupahjolafolki og gangandi vegfarendur Össur Pétur Valdimarsson skrifar
Skoðun Vegatollar Borgarlínu - Refsiaðgerð gegn venjulegu fólki Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson,Hlynur Áskelsson skrifar
Skoðun Byggjum upp færni til sjálfsstæðrar búsetu – ekki bara hjúkrunarheimili Gunnlaugur Már Briem skrifar
Vegatollar Borgarlínu - Refsiaðgerð gegn venjulegu fólki Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson,Hlynur Áskelsson Skoðun
Veit fólk á samfélagsmiðlum allt um getnaðarvarnir? Jórunn Oddsdóttir,Steinunn Zophoníasdóttir Skoðun
Gróska í starfsemi leikskóla Reykjavíkurborgar – áfram leikskólar Steinn Jóhannsson,Ólafur Brynjar Bjarkason Skoðun