Schumacher skrifaði nafnið sitt á hjálm Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. apríl 2025 10:33 Skammstöfun Michaels Schumacher má sjá niðri til vinstri á hjálminum. Michael Schumacher skrifaði nafn sitt með hjálp eiginkonu sinnar, Corrinu, á hjálm til styrktar góðu málefni.
Schumacher var einn fjölmargra sem skrifaði á hjálm Sir Jackies Stewart sem verður seldur á uppboði til að afla fjár fyrir góðgerðarsamtök Stewart sem beita sér í baráttunni gegn heilabilun. Hjálmurinn, sem Stewart, sem varð þrisvar sinnum heimsmeistari í Formúlu 1, verður sýndur fyrir kappaksturinn í Barein í dag. Hinn 85 ára Stewart mun einnig aka Tyrrell-bílnum sem hann varð heimsmeistari í 1973 einn hring fyrir kappaksturinn. „Það var dásamlegt að Michael gat áritað hjálminn fyrir þessa verðugu baráttu, fyrir sjúkdóm sem engin lækning er við. Konan hans hjálpaði honum og þar með voru nöfn allra heimsmeistara sem eru enn á lífi á hjálminum,“ sagði Stewart. Hann hleypti samtökunum Race Against Dementia af stokkunum eftir að eiginkona hans byrjaði að glíma við heilabilun.
Akstursíþróttir Skíðaslys Michael Schumacher Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Handbolti Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Handbolti Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira