Rosaleg troðsla í NBA: „Greyið sem var undir honum“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. febrúar 2025 11:31 Eins og sjá má voru tilþrif Shaedons Sharpe mjög tilkomumikil. ap/Jess Rapfogel Ein svakalegasta troðsla tímabilsins í NBA-deildinni í körfubolta leit dagsins ljós í leik Washington Wizards og Portland Trail Blazers í gær. Shaedon Sharpe, leikmaður Portland, tróð þá af miklu afli yfir Justin Champagnie, leikmann Washington. „
Ég byrjaði bara að hlæja: Vá, maður. Greyið sem var undir honum. Þetta var frekar ótrúlegt,“ sagði Chauncey Billups, þjálfari Portland, um troðslu Sharpes. Þegar tæpar tíu mínútur voru eftir af 2. leikhluta komst Sharpe inn í sendingu Champagnies. Hann dripplaði boltanum einu sinni og tókst svo á loft og tróð yfir Champagnie með látum. Sharpe var nánast láréttur í loftinu þegar hann tróð og lenti nokkuð harkalega á gólfinu eftir troðsluna tilkomumiklu sem má sjá hér fyrir neðan. SHAEDON SHARPE MY GOODNESS 🤯😱 pic.twitter.com/xNk9YbTBfX— NBA (@NBA) February 27, 2025 „Ég sá að gaurinn var fyrir svo ég stökk bara upp og reyndi að troða. Og hann fór inn,“ sagði Sharpe hinn hógværasti um troðsluna sem hefur vakið mikla athygli. Sharpe gerði meira en bara að troða yfir aumingja Champagnie því hann skoraði 36 stig sem er persónulegt met hjá honum. Hann tók einnig átta fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Portland hafði betur í leiknum, 121-129, og hefur nú unnið þrjá leiki í röð. Liðið er í 12. sæti Vesturdeildarinnar með 26 sigra og 33 töp. Í vetur er Sharpe með 16,9 stig, 3,7 fráköst og 2,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Portland valdi Sharpe með sjöunda valrétti í nýliðavalinu 2022.
NBA Mest lesið Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Fótbolti Fleiri fréttir Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Sjá meira