Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Smári Jökull Jónsson skrifar 22. febrúar 2025 17:38 Elmar Atli Garðarsson skoraði fyrir Vestra. Vísir/Hulda Margrét Vestri vann sigur á Fjölni í Lengjubikar karla í dag. Þá gerðu Njarðvíkingar góða ferð á heimavöll Framara í Úlfarsárdal.
Vestri og Fjölnir mættust í A-deild Lengjubikarsins í Egilshöll en Fjölnismenn eru nýbúnir að ráða Gunnar Má Guðmundsson sem þjálfara eftir að Úlfur Arnar Jökulsson var rekinn á dögunum. Leikurinn var markalaus eftir fyrri hálfleikinn en á fyrstu tólf mínútum síðari hálfleiks skoruðu þeir Elmar Atli Garðarsson og Silas Songani fyrir Vestra og komu gestunum í 2-0. Vladimir Tufegdzig skoraði þriðja mark Vestra á 85. mínútu en Máni Austmann Hilmarsson skoraði sárabótamark fyrir Fjölni undir lokin. Lokatölur 3-1 fyrir Vestra en þetta er fyrsti sigur liðsins í Lengjubikarnum til þessa. Í Árbænum voru KA-menn í heimsókn og þar skoraði Viðar Örn Kjartansson fyrir KA undir lok fyrri hálfleiks og kom norðanmönnum í 1-0. Guðmundur Tyrfingsson jafnaði metin fyrir Fylki í síðari hálfleik og lokatölur 1-1 í Árbænum. Í Úlfarsárdal var Lengjudeildarlið Njarðvíkur í heimsókn hjá Frömurum. Omar Diouck kom Njarðvík í 1-0 strax á 3. mínútu en Róbert Hauksson jafnaði metin hálftíma síðar og staðan í hálfleik 1-1. Þegar skammt var eftir skoraði hinn 17 ára gamli Freysteinn Ingi Guðnason síðan sigurmark Njarðvíkur og tryggði gestunum 2-1 sigur. Þetta var fyrsti sigur Njarðvíkur í Lengjubikarnum en Fram er á toppi riðilsins með sex stig eftir fjóra leiki.
Lengjubikar karla Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“