Af hverju endurhæfing fyrir krabbameinsgreinda? Erna Magnúsdóttir skrifar 5. febrúar 2025 08:02 Í tilefni af alþjóðlegum degi krabbameins er vert að vekja athygli á þverfaglegri heildrænni endurhæfingu hjá Ljósinu sem er eina sérhæfða endurhæfingarmiðstöðin á þessu sviði í landinu. Að greinast með krabbamein getur snúið tilverunni á hvolf þar sem daglegt líf verður ekki það sama og áður og kvíði og óvissa getur yfirtekið hugann. Lífið breytist og verður sennilega aldrei alveg eins og það var en þá er stuðningur fjölskyldu og vina ómetanlegur og gott faðmlag, uppbyggjandi heimsóknir og spjall við sína nánustu og vini getur verið mikil hjálp til að komast yfir erfiðasta hjallann. Fólk sem greinist með krabbamein gengur oft í gegnum miklar breytingar í eigin lífi eitthvað sem kemur óvænt og læknisfræðilegar meðferðir geta leitt til skerts starfsþreks vegna aukaverkana. Vegna mismunandi þarfa hefur verið kappkostað við að hafa þverfaglegan starfshóp sem sinnir endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda en veitir aðstandendum einnig stuðning og fræðslu. Af hverju endurhæfing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin skilgreinir endurhæfingu sem: Aðgerðir er gera einstaklingum kleift, sem glíma við færniskerðingu eða eru í hættu á að verða fyrir henni, að ná og viðhalda hámarksfærni í umhverfi sínu. Endurhæfing er lykilatriði til að gera einstaklingum kleift að vera í eða snúa aftur í eigið nærumhverfi, vera sjálfbjarga, geta stundað nám eða vinnu og verið virkur þátttakandi í samfélaginu þrátt fyrir takmarkanir. Ýmsar rannsóknir sem gerðar hafa verið í gegnum árin benda sterklega til þess að þverfagleg endurhæfing hafi ávinning fyrir krabbameinsgreinda einstaklinga, bæði sálfélagslega og líkamlega. Á það bæði við um líkamlegar æfingar og andlegan stuðning sem getur dregið úr kvíða og þunglyndi. Þannig getur endurhæfingin aukið virkni og þátttöku í daglegum athöfnum óháð tegund krabbameins. Að sama skapi getur skortur á endurhæfingu eftir krabbameinsgreiningu haft langtíma neikvæðar sálfélagslegar afleiðingar. Til þess að tryggja að krabbameinsgreindir og fjölskyldur þeirra njóti ríkulegra lífsgæða ætti endurhæfing að vera hluti af allri krabbameinsmeðferð. Krabbameinsgreindir geta þurft á langvarandi endurhæfingu að halda eftir greiningu þó svo að þarfirnar geti verið ólíkar eftir tímabilum, því þessir einstaklingar eru ólíkur hópur í læknisfræðilegu tilliti. Í öllum tilfellum ætti tilgangur endurhæfingar að valdefla einstaklinginn og aðstandendur þeirra. Þannig er endurhæfing heildrænt úrræði þar sem horft er á einstaklingana í endurhæfingu með tilliti til daglegs lífs, fjölskyldu og úrræða sem snerta atvinnu, áhugamál og fleira. Endurhæfing á að vera hluti af heilbrigðisþjónustunni sem krabbameinsgreindir fá. Að efla lífsgæðin Það skiptir alla máli að búa við ríkuleg lífsgæði, að vera mikilvægur og hafa merkingu og tilgang í gegnum dagleg verkefni. Virk þátttaka í athöfnum dagslegs lífs, leik og vinnu er hluti af samfélagslegri menningu sérhvers einstaklings og er æskileg eða jafnvel nauðsynleg fyrir vellíðan hans. Þessu ferli er ógnað þegar sjúkdómar steðja að. Heilsa og lífsgæði eru hugtök sem tengjast og rannsóknir sýna að fólk er ánægðara með lífið ef það tekur reglulega þátt í líkamlegri hreyfingu eða annarri innihaldsríkri iðju. Þeir sem eru haldnir langvinnum sjúkdómum lýsa sér gjarnan sem heilbrigðum ef þeir eru færir um að vera virkir og stunda iðju sem er þeim mikilvæg. Hins vegar upplifir fólk sig veikt og á hliðarlínunni í lífinu ef það hefur ekki tækifæri til að taka þátt í innihaldsríkri iðju. Þátttaka og dagleg virkni fær einstaklinga til að hætta að líta á sig sem sjúklinga en horfa þá frekar á sig sem einstaklinga sem lifa með veikindum. Því er mikilvægt að hafa aðgang að eflandi aðstæðum og að það skipti máli í bataferli að vera innan um aðra og vera virkur. Margir af þeim sem greinast með krabbamein eiga erfitt með að snúa aftur til vinnu. Þau þurfa stuðning og hvatningu en ekki síst skilning á vinnustaðnum, bæði af hálfu vinnuveitanda og samstarfsfólks. Í hagfræðilegu samhengi er endurhæfing og virkni til vinnu gífurlega mikilvæg. Hvernig virkjum við fólk til þátttöku í lífsins verkefnum Ljósið endurhæfingarmiðstöð hefur yfir að ráða þverfaglegum hópi fagaðila sem aðstoðar við að finna bjargráð sem stuðla að betri líðan bæði andlega og líkamlega. Fræðsla, ráðgjöf, samtöl, líkamleg þjálfun, sköpun og jafningjastuðningur eru áhersluatriði í endurhæfingunni. Oft koma upp erfiðleikar er varða íþyngjandi aukaverkanir og má þar nefna andlegt og líkamlegt orkuleysi, svefnvandamál, samskiptaörðugleikar við nánastu aðstandendur, frumkvæðisleysi og streita sem unnið er með af mikilli fagmennsku.Ljósið er byggt í grunnin á hugmyndafræði iðjuþjálfunar og má segja að að því leyti skeri endurhæfingarmiðstöðin sig úr þegar hún er borin saman við aðrar eldri endurhæfingarstofnanir þar sem læknisfræðileg hugmyndafræði tíðkast sem grunnur. Allir þekkja tæki og tól sjúkraþjálfunar sem efla og bæta líkamlega getu, og allir vita að þegar þeir fara til sálfræðinga þá færðu viðtöl oft maður á mann. En hvaða tól nota iðjuþjálfar? Iðjuþjálfun mikilvæg heilbrigðisstétt. Það hefur sýnt sig að hin þverfaglega nálgun í Ljósinu endurhæfingarmiðstöð hefur gefist vel. Þar eru allar stéttir jafn mikilvægar. En oft hafa iðjuþjálfar þurft að svara fyrir hvernig þau nýta þekkingu sýna og úrræði til að endurhæfa fólk. Iðjuþjálfar Ljóssins leitast við að minnka neikvæðar afleiðingar iðjusviptingar og einangrunar í kjölfar greiningar og vegna krabbameinsmeðferða á fjölbreyttan hátt. Í Ljósinu er iðjuþjálfun í hóp mikilvægur hluti starfsins og hverfist gjarnan um handverk, fræðslu og jafningjastuðning þar sem hægt er að sameina fjölmarga valdeflandi og mikilvæga líkamlega og félagslega endurhæfingarþætti. Þá er frátalið gildi handverks og sköpunarinnar sjálfrar sem rannsóknir sýna að minnki depurð, þunglynd, kvíða, verki og gagnist í áfallavinnu samhliða hefðbundinni samtalsmeðferð. Jafnvægi í daglegri iðju Ástæður fyrir iðjuröskun geta verið fjölbreyttar, s.s. skerðingar á færni, líkamlegar, andlegar, félagslegar hindranir, en fela flestar í sér missi sjálfsákvörðunarvalds og stjórnar á eigin aðstæðum. Þá getur verið valdeflandi að velja sér handverk í Ljósinu miðað við áhuga og getu. Þar er í grunninn verið að vinna með úthald, þrautseigju, sjálfstraust og svona mætti lengi telja. Það er þekkt að áreitisþol minnkar og fólk getur orðið viðkvæmara fyrir utanaðkomandi áreitum, t.d. birtu, hljóð, lykt, og farið að einangra sig. Að vinna við sköpun er oft þjálfun á t.d. úttaugaskaða en lyfjameðferðir og skurðaðgerðir geta orsakað úttaugaskaða og þannig getur fólk fundið fyrir máttleysi, dofa og/eða sársauka, yfirleitt í höndum og fótum með tilheyrandi færnisskerðingu og nauðsynlegri aðlögun umhverfis og iðju. Í handverkstímum er farið í leiðir til að takast á við breytta færni og unnið með að efla áhugahvöt út frá einstaklingsbundnum styrkleikum svo hægt sé að styðja við iðju og þátttöku í samfélaginu bæði í endurhæfingarferlinu og þegar því lýkur. Jafningjastuðningur Manneskjur eru tengslategund og það skiptir máli fyrir alla að finna hóp til að tilheyra og samsama sig við. Þegar fólk greinist með krabbamein skipta tengsl þeirra við aðra máli þar sem fjölskylda og vinir geta myndað ómetanlegt stuðningsnet. Hins vegar sýna rannsóknir sífellt fram á mikilvægi þess að mynda einnig tengsl við jafningja. Jafningjar eru þeir sem standa í sambærilegum sporum og geta hvatt áfram, sagt frá lifaðri reynslu, verið fyrirmyndir og lærisveinar. Handverk og fræðslunámskeið Ljóssins eru eiginlegur hluti endurhæfingarinnar þar sem jafningjahópar verða til og fólki gefst kostur á að ræða saman, skiptast á hugmyndum, bjargráðum, ráðleggingum og stuðningi. Ljósið er 20 ára í ár og við sem störfum í Ljósinu getum litið stolt til baka því mikið hefur áunnist í endurhæfingu krabbameinsgreindra á þessu tímabili. Höfundur er framkvæmdastýra Ljóssins, endurhæfingar og stuðningsmiðstöð. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Krabbamein Mest lesið Þvílíkt „plan“ fyrir íslensk heimili Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Heiðursgestur Viðreisnar vill heimsveldi Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Veðmál barna – hættulegur leikur sem hægt er að stöðva Jóhann Steinar Ingimundarson Skoðun Allt leikur í umburðarlyndi – eða hvað? Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson Skoðun Háttvirta nýja þingkonan, María Rut Kristinsdóttir Ólafur Grétar Gunnarsson Skoðun Lyfjafræðingar - traustur stuðningur í flóknum heimi Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir Skoðun Ísland og móðurplanta með erindi Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun Bless bless jafnlaunavottun Sigríður Margrét Oddsdóttir Skoðun Pistil eftir frétt um Davíð Tómas körfuknattleiksdómara Sigurður Ólafur Kjartansson Skoðun Miðstýrt skólakerfi eða fjölbreytni með samræmdu gæðamati? Bogi Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sterk staða Hafnarfjarðar Orri Björnsson skrifar Skoðun Bless bless jafnlaunavottun Sigríður Margrét Oddsdóttir skrifar Skoðun Miðstýrt skólakerfi eða fjölbreytni með samræmdu gæðamati? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Heiðursgestur Viðreisnar vill heimsveldi Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Veðmál barna – hættulegur leikur sem hægt er að stöðva Jóhann Steinar Ingimundarson skrifar Skoðun Allt leikur í umburðarlyndi – eða hvað? Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Lyfjafræðingar - traustur stuðningur í flóknum heimi Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkt „plan“ fyrir íslensk heimili Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Ísland og móðurplanta með erindi Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Háttvirta nýja þingkonan, María Rut Kristinsdóttir Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur krabbameinsrannsókna – eitthvað sem mig varðar? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Af hverju ættum við að stunda geðrækt, rétt eins og líkamsrækt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Villa um fyrir bæjarbúum Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Olíufyrirtækin vissu Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Pistil eftir frétt um Davíð Tómas körfuknattleiksdómara Sigurður Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Bullandi hallarekstur í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Styrkjum stöðu leigjenda Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Hættulegustu tækin í umferðinni Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi Sesselja segja? Hallbjörn V. Fríðhólm skrifar Skoðun Vaxtastefna Seðlabankans – á kostnað launafólks Hilmar Harðarson skrifar Skoðun Suður-Íslendinga sögurnar Hans Birgisson skrifar Skoðun Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela: Auðlindaránið í heimsvaldastefnunni og hræsnin í „stríðinu gegn fíkniefnum“ Sæþór Benjamín Randalsson skrifar Skoðun Stöndum vörð um tónlistarmenntun barna og ungmenna – opið bréf til borgarstjóra Sigrún Grendal skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun leggur til 95 prósent samdrátt í sjókvíaeldi á laxi Jón Kaldal skrifar Skoðun Velkomin til Helvítis Guðný Gústafsdóttir skrifar Skoðun Olíuleit við Ísland? Hallgrímur Óskarsson skrifar Skoðun Hækka launin þín þegar fasteignamatið á íbúðinni þinni hækkar? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Hvað mun Pútín gera næst með því að ögra samstöðu NATO?: Rússnesk innrás í lofthelgi NATO og hlutverk Íslands í öryggi bandalagsins Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Manneklan er víða Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Sótt að hagsmunum atvinnulausra Steinar Harðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju ættum við að stunda geðrækt, rétt eins og líkamsrækt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Pistil eftir frétt um Davíð Tómas körfuknattleiksdómara Sigurður Ólafur Kjartansson skrifar
Skoðun Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela: Auðlindaránið í heimsvaldastefnunni og hræsnin í „stríðinu gegn fíkniefnum“ Sæþór Benjamín Randalsson skrifar
Skoðun Stöndum vörð um tónlistarmenntun barna og ungmenna – opið bréf til borgarstjóra Sigrún Grendal skrifar
Skoðun Hafrannsóknastofnun leggur til 95 prósent samdrátt í sjókvíaeldi á laxi Jón Kaldal skrifar
Skoðun Hvað mun Pútín gera næst með því að ögra samstöðu NATO?: Rússnesk innrás í lofthelgi NATO og hlutverk Íslands í öryggi bandalagsins Jun Þór Morikawa skrifar