Tilraun til 40 ára býður skipbrot - allir þegja Björn Ólafsson skrifar 6. janúar 2025 07:30 Árið 1983 var ákveðið að setja kvóta á þorsk, til að sporna við „ofveiði“. En veiðin hafði „dottið niður í aðeins“ 300 þús tonn. Markmið kvótasetningar var að byggja upp veiðiþol þorskstofnsins. Hafró gaf sér að jafnstöðuafli úr þorskstofninum ætti að vera um 450 þús tonn á ári.(Sigfús A. Schopka fiskifræðingur) Kvóti var síðan settur á samkvæmt reiknireglum árið 1984. Hafró lagði til að viðmiðunarkvótinn yrði um 200/250 þús tonn. Viðmiðunarkvótinn hefur nánast staðið í stað alla tíð síðan, eða í 40 ár. Stjórnleysi í þorskveiðum gaf 400-546 þús tonna afla áratugum saman. Frá stríðslokum og fram til 1980, eða í yfir 30 ár samfleytt, ár eftir ár voru veidd um 400-546 þús tonn af þorski hér við land. Erlendir togarar gátu þá veitt nánast upp í fjöru og með þeirri möskvastærð sem þeim hentaði. Því var mikill smáþorskur veiddur á öllu þessu tímabili, hvort sem hann var nýttur eða hent í sjóinn aftur. Svona var umgengnin um fiskimiðin áratugum saman. Síðan þá höfum við unnið tvö þorskastríð, komið öllum erlendum veiðiskipum af miðunum, sett reglur um möskvastærðir, friðað hrygningarhólf, beitt skyndifriðunum svæða, notað alla nútíma tækni til að rannsaka og efla þorskstofninn, tekið algjöra stjórn á umgengni við fiskimiðin. Jafnstöðuaflinn sem Hafró sagði þorskstofninn bera; 450 þús tonn, er enn jafn fjarlægur og fyrir 40 árum. Þorskaflinn hefur síðast liðinn 40 ár verið að meðaltali um 50% af því sem hann var í amk 30 ár samfleytt fyrir kvótasetningu. Hafró týndi hálfri milljón tonna af þorski 2021/22. Samkvæmt tölum Hafró hefur stærð þorskstofnsins þróast svona: Samkvæmt þessum tölum hefur þorskstofninn minnkað um 61. þús tonn, eftir 40 ára uppbyggingarstefnu. Árið 2019 gaf Hafró út að hrygningastofn þorsksins hafi ekki verið stærri í 60 ár, eða frá árinu 1959. Hafró hafði árin áður ítrekað að stofninn væri á uppleið. Tveimur árum síðar, 2021, segir Hafró að reyndar hafi stofninn verið ofmetinn, líklega sem nemur um 500 þús tonnum. Bara frávik. Forsendur sem notaðar höfðu verið, taldi Hafró þurfa að breyta. Ýmsir stuðlar og breytur í formúlunni voru ekki alveg að gefa rétt mynd af stöðunni. Árgangar nokkurra ára fyrr hefðu verið minni en reiknað var með. Á einni nóttu hurfu sem sagt hálf milljón tonna af þorski úr sjónum við landið. Reyndar höfðu komið fram frávik í gegnum árin, en aldrei neitt í líkingu við þessa stærð. Frávikið nam meira en 2ja ára veiði þors. Tug milljarða aflaverðmæti. Ef Seðlabankinn væri jafn mistækur í sinni áætlanagerð, er hætt við að trúverðugleiki hans væri ekki beint til útflutnings. Umhverfisáhrif. Nú mætti halda að allt tal um hlýnun jarðar hafi kannski haft áhrif á hversu illa hefur gengið að efla þorskstofninn. Þó hitastigið hér sé ekki að taka þátt í umræddri hlýnun. Hvað segir Hafró um umhverfisárhif á þorskinn? Á vefsíðu stofnunarinnar má sjá og lesa: „Þorskurinn kann best við sig við í 4-7°C hita en finnst þó við allt frá 0°C til 16 og jafnvel 20°C hita. Hann er ekki heldur mjög viðkvæmur fyrir seltu því hann getur verið í fullsöltum sjó sem og í söltu vatni árósa” Þá segir Hafró: “Breytingar á hitastigi og seltu í hafinu við Ísland undanfarin 20 ár má rekja til náttúrulegra sveiflna.” Í janúar 2024, segir Jónas Páll Jónasson, sviðsstjóri botnsjávarsviðs Hafró: “….er bjartsýnn á framtíð íslenska þorsksins, þrátt fyrir að sjór fari hlýnandi hér við land eins og víðast annars staðar. Svo í þeim efnum er ekkert sem ætti að koma vísindamönnum Hafró né þorskinum á óvart. Þorskurinn hefur sem sagt lifað við þessar náttúrulegu breytingar, lengur en menn muna eða vita. Ráðherrar hafa gefið Hafró alræðisvald til að fyrra sig ábyrgð. Fagráðherrar sjávarútvegsmála hafa aldrei haft dug og eða þor, til að gagnrýna ráðgjöf og vinnuaðferðir Hafró. Þó tilefnin séu ærin. Það er svo mun auðveldara að fara eftir ráðgjöfinni, eftirláta embættismönnum vald yfir einni mestu auðlind þjóðarinnar, hugsunarlaust, fría sig ábyrgð. Skipbrot-staðreyndir Grundvöllur fyrir að kvótasetja þorskinn, var að byggja upp stofninn með öllum ráðum og kenningum okkar “færustu” fiskifræðinga. Niðurstaða 40 ára tilraunar er sú að aflinn náði aldrei meiru en um 50% af aflanum sem veiddur í yfir 30 ár, áður en kvótinn var reyndur. Jafnstöðu afli úr stofninum sem Hafró taldi vera um 450 þús tonn, líkt og stofninn gaf áratugum saman, er hvergi í sjónmáli. Og, stofninn er minni en þegar tilraunin hófst. Tilraun til 40 ára hefur mistekist, staðreynd. Sé sömu tilraun framhaldið með sama móti næstu 40 árin, búast sérfræðingar við annarri niðurstöðu? Varla vinnur Íslensk Erfðagreining eftir þeirri forskrift. Ríkisstjórn breytinga? Þora Valkyrjurnar? Valkyrjustjórnin ætlar að auka krókaveiðar. Viðbrögð Hafró og SFS eru fyrirséð. Hundar sleppa ekki fiskiroði svo glatt. Þorir ný ríkisstjórn að gera það liggur í augum uppi að þurfi að ráðast í ? Að láta fara fram skoðun, rannsókn á afhverju tilraunin með kvótasetningu þorsks, og fleiri fiskitegunda hefur gjörsamlega mistekist. Hér getur verið um gífurlegar upphæðir fyrir ríkissjóð að ræða. Eins og staðan er nú, er ómögulegt fyrir nokkurn um að fullyrða hversu mikið veiðiþol helstu fiskauðlindir landsmanna geta gefið. Eða á að taka næstu 40 ár í að gera sömu tilraun og vona eins og jólasveinn eftir annarri niðurstöðu? Í ljósi þessa, ætti ríkisstjórnin ekki að hika við að auka þorskkvóta handa krókaveiðibátum. Frávikin í veiðiráðgjöf, spám, stofnstærðarmælingum þorsks, eru slík. Hvort sem kvóti krókabáta væri aukinn um 10-20 þús tonn, rúmast sá afli vel innan allra frávika, skekkjumarka, sem eru í vísundunnið er eftir. Höfundur er útgerðartæknir, fyrrverandi sjómaður og framleiðslustjóri í fiskvinnslu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun