Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Samúel Karl Ólason skrifar 20. desember 2024 13:41 Lögregluþjónar fyrir utan skólann í Zagreb þar sem árásin átti sér stað í morgun. AP/Damir Krajac Sjö ára stúlka lét lífið og fimm aðrir nemendur og kennari særðust þegar ungur maður vopnaður hnífi réðst á þau í skóla í Zagreb, höfuðborg Króatíu, í morgun. Árásarmaðurinn hefur verið handtekinn en hann er sagður hafa gengið inn í skólann og byrjað að stinga börn inn í fyrstu skólastofunni sem hann sá.
Af þeim sem særðust er enginn sagður í lífshættu. Árásir sem þessar eru mjög sjaldgæfar í Króatíu. AP fréttaveitan segir árásarmanninn hafa gengið inn í skólann um klukkan 9:50 að staðartíma, eða 8:50 að íslenskum tíma, og hefur honum verið lýst sem ungum fyrrverandi nemanda í skólanum. Hann ku vera nítján ára gamall. Tilefni árásarinnar liggur ekki fyrir. Andrej Plenkovic, forsætisráðherra Króatíu, hefur sagt að lögreglan sé að reyna að komast til botns í því hvað gerðist og hvernig. Reuters hefur eftir Davor Bozinovic, innanríkisráðherra, að árásarmaðurinn hafi átt við geðræn vandamál að stríða og hafi reynt að svipta sig lífi í fyrra. Eftir árásina hljóp hann á brott og logaði sig inni á nærliggjandi heilsugæslustöð. Þar reyndi hann að bana sér með hnífi sínum en var stöðvaður af lögregluþjónum.
Króatía Erlend sakamál Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira