Kjósum með mannréttindum á laugardaginn Bjarndís Helga Tómasdóttir og Kári Garðarsson skrifa 29. nóvember 2024 11:52 Á Íslandi hefur frelsi hinsegin fólks til að vera það sjálft og lagaleg réttindi tekið stakkaskiptum á síðustu árum, í kjölfar þrotlausrar áratugalangrar baráttu. Hér eru lagaleg réttindi og samfélagslegt samþykki hinsegin fólks orðin með því besta sem fyrirfinnst í heiminum. En það þýðir ekki að Ísland sé einhver hinsegin útópía, samfélag þar sem engar ógnir steðja að mannréttindum hinsegin fólks. Mannréttindi hinsegin fólks sæta árásum í ríkjum nálægt okkur Þegar rætt er um ógn við mannréttindi hinsegin fólks detta fólki líklega fyrst í hug ríki eins og Rússland og Ungverjaland. En staðreyndin er að nú þegar liggur hinsegin fólk undir árásum frá stjórnvöldum og stjórnmálafólki í ríkjum sem við teljum standa okkur nær. Nú þegar er raunverulega verið að draga til baka réttindi hinsegin fólks, eða sækja þannig gegn þeim að það jaðrar við ofsóknir gegn ákveðnum hópum. Á Ítalíu hafa stjórnvöld til dæmis afnumið réttindi samkynja foreldra til að vera skráðir löglegir foreldrar barna sinna, og takmarkað þann rétt við líffræðilegt foreldri barnsins. Löggjöf sem gera átti það ólöglegt að mismuna fólki eftir kynhneigð og kynvitund var kastað út úr ítalska þinginu við fögnuð þingmanna. Í Bandaríkjunum hafa verið lögð fram 668 lagafrumvörp gegn trans fólki á þessu ári, sem beinast að því að hindra þau í að fá heilbrigðisþjónustu, koma í veg fyrir fræðslu um tilveru þeirra, og takmarka eða afnema lagalega viðurkenningu og rétt þeirra til að taka þátt í samfélaginu. Þá gerðu repúblikanar harkalega aðför að réttindum trans fólks að sérstöku áhersluefni í kosningaherferð sinni síðustu vikurnar fyrir forsetakosningarnar. Líklegt þykir að hæstiréttur Bandaríkjanna muni taka rétt samkynja para til að ganga í hjónaband til umfjöllunar á sama grundvelli og þegar almennur réttur til fóstureyðinga var afnuminn, áður en langt um líður. Í Bretlandi birtist nú árlega gríðarlegur fjöldi neikvæðra frétta og greina gegn trans fólki í fjölmiðlum og stjórnmálamenn ýta markvisst undir ósamstöðu og fordóma í garð trans fólks í opinberri umræðu til að beina athygli frá öðrum stærri og flóknari málaflokkum. Afleiðingin er meðal annars sú að hatursglæpir gegn trans fólki hafa aukist um 100% frá 2019. Á sama tíma hefur aðgengi trans fólks að heilbrigðisþjónustu verið skert á ýmsan hátt og sjálfsvígum fjölgað í beinu samhengi. Það er því ekki verið að tala um eitthvað huglægt eða óáþreifanlegt þegar við segjum að mannréttindi hinsegin fólks séu í hættu. Það er staðreynd að mannréttindi hinsegin fólks liggja undir mjög raunverulegum og alvarlegum árásum víða í samfélögum sem við hér á landi samsömum okkur yfirleitt við og verðum óhjákvæmilega fyrir miklum menningarlegum og stjórnmálalegum áhrifum frá. Stjórnmálamenn bera ábyrgð á því að standa vörð um mannréttindi Alls staðar þar sem þessi neikvæða þróun á sér stað hafa stjórnmálaflokkar tekið þátt í neikvæðri umræðu um hinsegin fólk, jafnvel markvisst, eða sofið á verðinum og ekki staðið gegn henni. Í öllum tilfellum eru það stjórnmálaflokkar við völd sem taka ákvarðanir um afnám eða afturköllun lagalegra réttinda hinsegin fólks. Í öllum tilfellum bera stjórnmálaflokkar ábyrgð á því að standa vörð um mannréttindi allra í samfélaginu og því miður bregðast þeir of oft þeirri skyldu þegar tækifæri gefast til atkvæðaveiða í gruggugu vatni. Það gildir því miður nákvæmlega eins um Ísland og önnur lönd. Stjórnmálaöfl sem bregðast mannréttindum Það eru veruleg vonbrigði, og augljóst hættumerki, að sjá í kosningabaráttunni hér á Íslandi síðustu vikur síendurtekin stef í stjórnmálaumræðunni sem augljóslega koma frá sömu rót og beita sömu rökum gegn mannréttindum hinsegin fólks og gert er m.a. í löndunum sem voru nefnd hér að ofan. Á undanförnum vikum hafa fulltrúar nokkurra stjórnmálaflokka kvartað hástöfum yfir meðvitund um mannréttinda- og jafnréttismál, gegn sjálfsákvörðunarrétti trans fólks, gegn því að hatursorðræða í garð minnihlutahópa í samfélaginu sé refsiverð, og gegn einföldum hugtökum eins og inngildingu sem miða að því að allir þegnar samfélagsins geti tekið jafnan þátt í því eða hafi jöfn tækifæri til þess. Þetta kalla þau „vók“, vælustjórnmál eða pólitískan rétttrúnað. Við köllum þetta það sem það er: Að tala gegn mannréttindum. Í fyrsta skipti í sögunni hefur pólitískt framboð á Íslandi talað fyrir því að afturkalla áunnin réttindi hinsegin fólks, nánar tiltekið að banna heilbrigðisþjónustu fyrir trans börn og ungmenni - þvert á vísindalega þekkingu og af fullkomnu ábyrgðarleysi gagnvart velferð þeirra barna sem þurfa á þjónustu heilbrigðiskerfisins og stuðningi samfélagsins að halda. Það er grafalvarlegt. Stjórnmálaöfl sem standa með mannréttindum Samtökin ’78 óskuðu fyrir skömmu eftir svörum framboðana við spurningum um hvort þau styðji við mannréttindi hinsegin fólks. Sum framboðin sendu ítarleg og jákvæð svör, önnur voru afar loðin í svörum, jafnvel eins og þau væru að forðast umræðuna. Svör framboðanna má sjá á vefnum https://samtokin78.is/kosningar-2024/. Við hvetjum öll sem styðja jöfn mannréttindi allra í samfélaginu og hafa áhuga á viðhorfum stjórnmálaflokkanna til mannréttinda hinsegin fólks til að kynna sér afstöðu flokkanna, ræða hana við fjölskyldu og vini og vekja fólk í nærumhverfi sínu til vitundar um mikilvægi mannréttinda nú daginn fyrir kosningar. Reynslan frá nágrannalöndum okkar sýnir skýrt og greinilega að það er ekki nóg að stjórnmálaflokkar hampi því að þeir styðji réttindabaráttu hinsegin fólks, svona almennt. Það er nauðsynlegt að stjórnmálafólk sem vill standa með mannréttindum geri það í verki, hafi kjark til að rísa upp gegn þeirri umræðu sem nú þegar heyrist og sést á Íslandi gegn jöfnum réttindum hinsegin fólks á við aðra í samfélaginu og andmæla þannig að eftir því sé tekið. Mannréttindi eru því miður ekki sjálfsögð, þau verða ekki til af sjálfum sér og það þarf ótrúlega lítið til að brjóta þau niður ef vilji stjórnmálaafla við völd stendur til þess. Stjórnmálamenn sem vilja ekki að mannréttindi hinsegin fólks á Íslandi fari sömu leið og t.d. í Bandaríkjunum, Bretlandi og Ítalíu, þurfa að þora að standa upp og segja það. Þora að leggja pólitíska framtíð sína á vogarskálar jafnra mannréttinda allra í samfélaginu. Við kjósum með mannréttindum hinsegin fólks Það er eðlileg og skilyrðislaus krafa Samtakanna ’78, samtaka alls hinsegin fólks á Íslandi, að stjórnmálaöfl sem sækjast eftir því fá völd til að stjórna samfélaginu sem við erum hluti af, segi okkur hvort þau styðja að við höfum jöfn mannréttindi á við aðra. Stjórnmálaflokkar sem geta ekki svarað þeirri einföldu spurningu með skýlausu já, fá ekki okkar atkvæði. Það ætti ekki að koma neinum á óvart. Myndir þú kjósa einhvern sem ætlar ekki að standa með eða vill jafnvel takmarka mannréttindi þín, eða fjölskyldu þinnar og vina? Ísland er sem betur fer samfélag þar sem allt fólk á að geta notið virðingar og jafnra réttinda. Til þess að svo verði áfram þurfum við að kjósa eftir þeim gildum sem við höfum í hávegum. Við hvetjum stjórnmálafólk til ábyrgrar umræðu um alla í samfélaginu og við hvetjum kjósendur til þess að velja vel hvert atkvæði þeirra fer. Við kjósum með mannréttindum. Hvað með þig? Bjarndís Helga er formaður Samtakanna ‘78. Kári Garðarsson er framkvæmdastjóri Samtakanna ‘78. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skoðun: Alþingiskosningar 2024 Mannréttindi Hinsegin Bjarndís Helga Tómasdóttir Kári Garðarsson Mest lesið Valdhafar sem óttast þjóð sína eiga ekki skilið völdin Ágústa Árnadóttir Skoðun Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun Engin haldbær rök fyrir því að dánaraðstoð skaði líknarmeðferð Ingrid Kuhlman Skoðun Gervigreindarskólinn Alpha: Framtíðarsýn fyrir íslenska grunnskóla Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Til hamingju með daginn á ný! Árni Guðmundsson Skoðun Aðlögun á Austurvelli Heiða Ingimarsdóttir Skoðun Halldór 14.06.2025 Halldór Gefðu blóð, gefðu von: saman björgum við lífum Davíð Stefán Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreindarskólinn Alpha: Framtíðarsýn fyrir íslenska grunnskóla Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Valdhafar sem óttast þjóð sína eiga ekki skilið völdin Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Til hamingju með daginn á ný! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Gefðu blóð, gefðu von: saman björgum við lífum Davíð Stefán Guðmundsson skrifar Skoðun Versta sem gæti gerzt Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Aðlögun á Austurvelli Heiða Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen skrifar Skoðun Auðlindin er sameign – en verðmætasköpunin er ekki sjálfgefin Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Brotin stjórnarandstaða í fýlu Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Úthlutun Matvælasjóðs Fjóla Einarsdóttir skrifar Skoðun Engin haldbær rök fyrir því að dánaraðstoð skaði líknarmeðferð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Réttlæti næst ekki með ranglæti Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Fagleg rök fjarverandi við opinbera styrkveitingu Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson skrifar Skoðun Heilbrigðistækni getur gjörbylt aðgengi og gæðum í heilbrigðisþjónustu Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ísland smíðar – köllum á hetjurnar okkar Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Yfir 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Hvenær kemur að okkur? Hjördís María Karlsdóttir skrifar Skoðun Frjór jarðvegur fyrir glæpagengi til að festa rætur Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Án greiningar, engin ábyrgð Gísli Már Gíslason skrifar Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar Skoðun Verkin sem ekki tala Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Gleymdu að vanda sig Vanda Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Vindhögg Viðskiptaráðs Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Skref aftur á bak fyrir konur með endómetríósu Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Staða leikskólamála í Reykjanesbæ Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindaraðstoð: Kennarinn endurheimtir dýrmætan tíma Björgmundur Guðmundsson skrifar Sjá meira
Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun
Gervigreindarskólinn Alpha: Framtíðarsýn fyrir íslenska grunnskóla Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Skoðun Gervigreindarskólinn Alpha: Framtíðarsýn fyrir íslenska grunnskóla Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen skrifar
Skoðun Auðlindin er sameign – en verðmætasköpunin er ekki sjálfgefin Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson skrifar
Skoðun Heilbrigðistækni getur gjörbylt aðgengi og gæðum í heilbrigðisþjónustu Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Yfir 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu Inga Hlín Pálsdóttir skrifar
Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar
Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir skrifar
Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun
Gervigreindarskólinn Alpha: Framtíðarsýn fyrir íslenska grunnskóla Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun