Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. nóvember 2024 14:54 Sveindís Jane Jónsdóttir byrjaði á bekknum hjá Wolfsburg en kom inn á í hálfleik. getty/Massimo Insabato Wolfsburg sigraði Potsdam, 3-1, í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar eru með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar.
Sveindís kom inn á sem varamaður í hálfleik. Hún hefur aðeins verið í byrjunarliðinu í einum deildarleik á tímabilinu. Í viðtali við Vísi í gær sagðist þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, Þorsteinn Halldórsson, ekki enn vera farinn að hafa áhyggjur af stöðu Sveindís hjá Wolfsburg en viðurkenndi að hann vildi sjá hana spila meira. Wolfsburg hefur unnið átta af fyrstu tíu deildarleikjum sínum, gert eitt jafntefli og tapað einum leik. Þær grænu eru fimm stigum á undan næstu liðum, Frankfurt, Bayern München og Bayer Leverkusen en þau eiga öll leik til góða. Dagný Brynjarsdóttir lék síðustu sextán mínúturnar fyrir West Ham United sem laut í lægra haldi fyrir Brighton, 3-2, í ensku úrvalsdeildinni. West Ham lenti 2-0 undir í leiknum en Katrina-Lee Gorry jafnaði með tveimur mörkum með skömmu millibili eftir rúman klukkutíma. En gamla brýnið Fran Kirby tryggði Brighton sigurinn með marki á 82. mínútu. María Þórisdóttir lék ekki með Brighton sem er í 3. sæti deildarinnar með sextán stig, þremur stigum á eftir toppliði Manchester City. West Ham er í 9. sætinu með fimm stig.
Þýski boltinn Enski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira