Fertugasti leikur Glódísar og félaga í röð án taps Valur Páll Eiríksson skrifar 23. september 2024 18:03 Bayern vann öruggan sigur í kvöld og er eitt á toppnum. Oliver Hardt/Getty Images for DFB Bayern München vann öruggan 5-1 sigur á Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta síðdegis. Liðið er eitt á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir fyrstu þrjár umferðirnar.
Bayern getur unnið þýska meistaratitilinn þriðja árið í röð en liðið fór taplaust í gegnum síðasta tímabil. Það var því óvænt þegar Selina Cerci kom Hoffenheim 1-0 yfir í leik dagsins í München á 28. mínútu. Mark Cerci var af dýrari gerðinni og má sjá ásamt öllum öðrum mörkum leiksins í spilaranum að neðan. Bayern fékk vítaspyrnu á 42. mínútu leiksins og enska landsliðskonan Georgia Stanway skoraði af öryggi af vítapunktinum til að jafna leikinn. Skömmu eftir það, á lokamínútu fyrri hálfleiksins, kom danska stjarnan Pernille Harder Bæjurum í forystu. Staðan 2-1 í hléi. Harder var aftur á ferðinni þegar hún tvöfaldaði forskot Bayern þegar tólf mínútur voru liðnar af síðari hálfleik og þá fullkomnaði hún þrennu sína á 88. mínútu. Sydney Lohmann negldi síðasta naglann í kistu Hoffenheim er hún innsiglaði 5-1 sigur Bayern Munchen í uppbótartíma. Bayern München hefur nú leikið 40 leiki í röð án taps í þýsku úrvalsdeildinni en síðasta tapið kom í október 2022 þegar liðið tapaði 2-1 fyrir Wolfsburg.
Þýski boltinn Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Fleiri fréttir Tryggði Japan jafntefli með því að skalla boltann af höfði liðsfélaga og inn „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu „Smá þolinmæði sem þarf“ Real Madrid keypti Cucurella af Chelsea Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Japanir mættir til að vinna heimsmeistaramótið, ekki til að skemmta sér Leikmenn Portúgal bera Diogo Jota-armbönd á HM Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Ísak Bergmann trúlofaður Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ Sjá meira