Árni verður hægri hönd Decks Árni Sæberg skrifar 13. september 2024 09:07 Forstjóri sameinaðs félags verður Brian Deck, sem nú er forstjóri JBT, og Árni Sigurðsson, forstjóri Marels, verður framkvæmdastjóri sameinaðs félags. Vísir Árni Sigurðsson, forstjóri Marels, verður næstráðandi í sameinuðu félagi JBT og Marels verði af sameiningu.
Í tilkynningu Marels til Kauphallar segir að JBT og Marel hafi að undanförnu unnið saman að undirbúningi fyrirhugaðrar sameiningar félaganna og í gær hafi JBT birt tillögu að skipulagi JBT Marel, sem sé aðgengileg hér. Skipulagsbreytingarnar sem lagðar eru til séu háðar því að af sameiningu félaganna verði, og myndu taka gildi eftir uppgjör viðskiptanna. Árni verður „forseti“ Árni, sem varð forstjóri Marels í nóvember síðastliðnum eftir brotthvarf Árna Odds Þórðarsonar úr forstjórastóli og rétt fyrir tilkynningu um mögulegt yfirtökutilboð, mun samkvæmt tillögunni verða „president“ eða „forseti“ sameinaðs félags. Hans eini yfirmaður verður framkvæmdastjóri JBT, Brian Deck, sem verður áfram framkvæmdastjóri í sameinuðu félagi. Frestur til 11. nóvember JBT tilkynnti í ágúst síðastliðnum að að Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefði samþykkt beiðni félagsins um framlengingu á gildistíma valfrjáls tilboðs til hluthafa Marels í allt útgefið og útistandandi hlutafé í félaginu. Gildistíminn var til 2. september en í tilkynningu segir að hann hafi verið framlengdur til mánudagsins 11. nóvember næstkomandi klukkan 17, ellegar þess dags þegar þrjár vikur eru frá því að skilyrði tilboðsins sem snúa að samþykki eftirlitsyfirvalda hafa verið uppfyllt eða fallið hefur verið frá tilboðinu.
Marel Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Sjá meira