Reitir hrista upp í skipuritinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. júlí 2024 16:30 Sigurlaug Helga Pétursdóttir er orðinn yfirlögfræðingur Reita og Birgir Þór Birgisson er framkvæmdastjóri þróunarsviðs. Reitir fasteignafélag hefur innleitt nýtt skipurit sem felur í sér að tveir framkvæmdastjórar kveðja félagið og aðrir hækka í tign eða færa sig um set. Þá kemur liðsstyrkur frá HS Orku.
Í tilkynningu frá Reitum segir að í kjölfar stefnumótunarvinnu og nýrrar stefnu um kraftmikinn vöxt á næstu árum hafi fasteignafélagið innleitt nýtt skipurit. „Nýju skipuriti er ætlað að efla vöxt félagsins með skýrri verkaskiptingu og skilvirkum ákvörðunartökuferlum. Samfara nýju skipuriti verða breytingar í framkvæmdastjórn og fækkar þar um eina stöðu.“ Viðskiptaþróunarsvið hefur verið sameinað þróunarsviði. Verkefni þróunarsviðs eru m.a. arðsemisgreining fasteignaþróunar- og nýsköpunartækifæra ásamt þróun og verkefnastýringu þeirra fram að framkvæmdarstigi. „Stefnumörkun á sviði sjálfbærni, innleiðing sjálfbærnimarkmiða og utanumhald sjálfbærnimælikvarða tilheyrir jafnframt sviðinu þó sú vinna sé unnin þvert á fyrirtækið.“ Birgir Þór Birgisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þessa sameinaða sviðs. Birgir hefur umfangsmikla reynslu í þróun og verklegum framkvæmdum. Hann hefur starfað sem yfirverkefnastjóri hjá HS Orku frá 2020 en starfaði áður m.a. hjá Jarðborunum og Mannviti. Birgir er með M.Sc. próf í iðnaðarverkfræði frá KTH Royal Institute of Technology í Svíþjóð. Birgir mun hefja störf um miðjan ágúst. Friðjón Sigurðarson, fráfarandi framkvæmdastjóri þróunarsviðs Reita, hefur óskað eftir lausn frá störfum. Friðjón hefur starfað hjá Reitum síðan 2013, og stýrt mörgum af stærstu þróunarverkefnum félagsins og lagt grunn að þeirri miklu uppbyggingu þróunareigna sem framundan er. Friðjóni eru færðar bestu þakkir fyrir gott samstarf og framlag hans til uppbyggingar Reita. Ingveldur Ásta Björnsdóttir, sem starfað hefur hjá Reitum sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, tekur við framkvæmdastjórn nýs sviðs, Viðskiptavina. Markmið sviðsins er að bæta upplifun viðskiptavina með því veita viðskiptavinum greiðari aðgang að samfelldri þjónustu. Undir sviði viðskiptavina heyrir umsjón með útleigu og ný þjónustueining sem ætlað er að og breikka þjónustu við núverandi og nýja viðskipavini í takt við þarfir þeirra hverju sinni. Kristófer Þór Pálsson er nýr framkvæmdarstjóri nýs sviðs, Fjárfestingar og Greiningar. Markmið sviðsins er að tryggja áframhaldandi fjárfestingu í arðbærum eignum, sem er einn af hornsteinum vaxtastefnu félagsins. Sviðið mun einnig afla gagna og framkvæma ýmsar greiningar til að undirbyggja ákvarðanatöku þvert á félagið og til að meta árangur stefnumótandi aðgerða. Kristófer hefur verið framkvæmdarstjóri viðskiptasviðs hjá Reitum síðan 2016. Ragnheiður Margrét Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs og regluvörður félagsins, hefur óskað eftir lausn frá störfum. Ragnheiður hóf störf fyrir félagið í aðdraganda skráningar þess í kauphöll og hefur hún verið lykilstarfsmaður í vaxtarferli Reita undanfarinn áratug. Ragnheiði er þökkuð afar góð störf í þágu félagsins og ánægjulegt samstarf í gegnum árin. Sigurlaug Helga Pétursdóttir, lögmaður, sem starfað hefur hjá Reitum síðan 2015, tekur við stöðu yfirlögfræðings og forstöðumanns lögfræðisviðs ásamt því að gegna hlutverki regluvarðar félagsins. Skipun hennar í hlutverk regluvarðar hefur verið tilkynnt til Fjármálaeftirlitsins og tók gildi frá og með 2.júlí 2024. Breytingar á skipuriti Reita hafa þegar tekið gildi. Reitir er leiðandi fyrirtæki í fasteignaþróun ásamt rekstri og eignarhaldi atvinnuhúsnæðis. Innan eignasafns Reita eru um 460 þúsund fermetrar atvinnuhúsnæðis í rekstri auk 700 íbúða og 140 þúsund fermetra atvinnuhúsnæðis í þróun. Reitir leggja áherslu á sjálfbæra uppbyggingu innviða og langtíma leigusambönd þar sem sameiginlegur ávinningur leigutaka, Reita og samfélagsins eru lykilatriði. Fyrirtækið er almenningshlutafélag skráð í Kauphöll síðan 2015. Eigendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir.
Fasteignamarkaður Reitir fasteignafélag Vistaskipti Mest lesið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Samstarf Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Sjá meira