Setti sig í samband við ráðgjafa Biden til að mótmæla gagnrýni á AGD Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. júní 2024 07:10 George og Amal Clooney. Getty/WIreImage/Taylor Hill Leikarinn George Clooney setti sig í samband við ráðgjafa Joe Biden Bandaríkjaforseta á dögunum til að kvarta yfir afstöðu Bandaríkjastjórnar gagnvart ákvörðun Alþjóðaglæpadómstólsins að óska eftir handtökuskipun á hendur Benjamin Netanyahu.
Samkvæmt umfjöllun New York Times setti Clooney, sem hefur verið ötull stuðningsmaður forsetaefna Demókrataflokksins, sig í samband við Steve Ricchetti en sá var lykilmaður í fjáröflun fyrir forsetaframboð Biden fyrir forsetakosningarnar árið 2020. Clooney er sagður hafa haft samband gegnum textaskilaboð og gert athugasemdir við þá ákvörðun stjórnvalda að gagnrýna Alþjóðaglæpadómstólinn, eftir að yfirsaksóknarinn Karim Khan ákvað að óska eftir því að dómurinn gæfi út handtökuskipun á hendur leiðtogum Hamas og Ísraelsstjórnar. Heimildarmenn New York Times segja skilaboðin frá Clooney ekki hafa haft nein áhrif á stefnu Bandaríkjastjórnar en það vekur athygli að eiginkona leikarans, mannréttindalögfræðingurinn Amal Clooney, sat í ráðgjafanefnd sem kom að rannsókn saksóknaraembættisins. Talsmaður Clooney neitaði að tjá sig um málið þegar eftir því var leitað en sagði leikarann enn ákveðinn í því að verða viðstaddur fjáröflunarviðburð fyrir Biden þann 15. júní næstkomandi, þar sem Barack Obama verður einnig meðal gesta.
Átök í Ísrael og Palestínu Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Joe Biden Hollywood Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira