Réttindabarátta strandveiðimanna Eyjólfur Ármannsson skrifar 7. júní 2024 08:31 Strandveiðitímabilið hófst í byrjun maí sl. í sextánda sinn. Mikil veiði hefur verið enda mikið af fiski á öllum miðum handfærabáta og útlit fyrir stöðvun veiða mánaðamótin júní-júlí auki matvælaráðherra ekki aflamagn til strandveiða og tryggi 48 veiðidaga í sumar. Í fyrra voru veiðar stöðvaðar 11. júlí og hittiðfyrra 21. júlí. Ekkert hefur orðið af kosningaloforðum VG, sem farið hefur með matvælaráðuneytið allt kjörtímabilið, um að efla strandveiðar og sagði: „Nýta má strandveiðar til að efla jafnrétti og stuðla að nýliðun í sjávarútvegi. Matvælaráðherra tekur ákvörðun um strandveiðar í reglugerð, en þar veitir ráðherrann heimild til veiða á handfæri 12 daga í mánuði á tímabilinu maí, júní, júlí og ágúst, það aflamagn sem ráðstafað er til strandveiða hvert ár. Samkvæmt ákvörðun ráðherra er það einungis 10.000 tonn af þorski, sama magn og í fyrra. Hver bátur má hafa fjórar handfærarúllur (4 krókar á rúllu) og ekki má veiða meira en 650 kg í þorskígildum af kvótabundnum tegundum að undaskildum ufsa í hverri veiðiferð, sem ekki má vara lengur 14 tíma. Það jafngildir 774 kílóum af slægðum þorski fyrir hvern veiðidag. Strandveiðar hafa sannað gildi sitt Strandveiðar hafa svo sannarlega sannað gildi sitt en um 700 bátar hafa að verið gerðir út á strandveiðar undanfarin ár. Strandveiðiútgerð hefur aukið fjölbreytni í sjávarútvegi á landsbyggðinni. Öll umgjörð strandveiða er gangsæ. Allur landaður afli strandveiðibáta er veginn á hafnarvog, engin heima- og endurvigtun er leyfð sem getur fylgt mikil hækkun ísprósentu. Aflinn er seldur á markaðsverði á fiskmörkuðum, en ekki á lægra verði Verðlagsstofu skiptaverðs sem útgerðir með vinnslu njóta. Bæði þessi atriði geta augljóslega aukið mikið bókhaldslega arðsemi fyrirtækja. Strandveiðar eru umhverfisvænar, valda minnstu raski í hafrýminu, hafa minnsta kolefnissporið. Þær eru hagkvæmar og hámarka verðmæti aflans og hafa reynst hinum dreifðu sjávarbyggðir gríðarlega vel, og hleypt lífi í brothættar byggðir víða um land yfir sumartímann. Veiðarnar lífga upp á bæjarlífið í sjávarbyggðum landsins og landanir smábáta vekja forvitni bæði bæjarbúa og erlendra ferðamanna. Strandveiðimenningin hefur endurnýjað tengsl landsmanna við fiskveiðar og hafið, sem er mikilvægt fyrir eyju í Norður-Atlantshafi. Réttindabarátta strandveiðimanna og sjávarbyggða Strandveiðar veita fjölbreyttum hópi strandveiðimanna tækifæri til handfæraveiða og atvinnufrelsi til að stunda þá vinnu sem þeir kjósa yfir sumarið. Baráttan fyrir frjálsum handfæraveiðum er réttindabarátta. Þetta er barátta fyrir jafnræði og atvinnufrelsi en takmarkanir á atvinnufrelsi mega ekki ganga lengra en nauðsyn krefur. Þetta er einnig barátta fyrir búseturétti í sjávarbyggðum landsins, sem byggist á atvinnufrelsi og nálægð við sjávarauðlinda. Í 75. gr. stjórnarskrá lýðveldisins Íslands segir: „Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum, enda krefjist almannahagsmunir þess.“ Takmörkun á atvinnufrelsi verður að byggja á almannahagsmunum. Verndun fiskistofna þarf að ná til veiðarfæra sem ógna fiskistofnun, ekki þeirra sem ekki ógna þeim. Handfæraveiðar á bát með nokkrum krókum á fjórum rúllum ógna ekki fiskistofnum við landið. Takmörkun handfæraveiða með 10.000 þorskafla er skerðing á atvinnufrelsi sem gengur lengra en nauðsyn krefur og því gegn atvinnufrelsi í landinu. Handfæraveiðar smábáta búa við náttúrulegar takmarkanir veðurs og sjólags, auka takmörkunar á veiðidögum, lengdar veiðiferðar og magns í veiðiferð. Hér er ekki um ólympískar veiðar að ræða, takmarkanirnar sjá til þess. Núverandi strandveiðikerfi var sett á í kjölfar álits Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá 2007, sem sagði að stjórnkerfi fiskveiða bryti á jafnræði borgaranna samkvæmt mannréttindasamningi Sameinuðu þjóðanna. Strandveiðikerfi með 48 veiðidögum, sem aldrei nást vegna lítilla aflaheimilda, nær hvorki markmiði sínu um jafnræði né fjölda veiðidaga. Takmörkun á krókaveiði í skjóli verndunar fiskistofna sem stendur ekki ógn af krókaveiðum réttlætir ekki takmörkun á atvinnufrelsi. Það eru ekki almannahagsmunir. Handfæraveiðar ógna ekki fiskistofnum. Réttur til handfæraveiða á stoð í réttarvitund almennings og er aldagamall. Í Jónsbók frá 1281, lögbók Íslendinga í árhundruð, segir: „Allir menn eigu at veiða fyrir utan netlög at ósekju.“ Þennan rétt ber að virða. Sjávarbyggðirnar byggja tilvist sína á fiskveiðum og nálægð við fiskimið og auðlindir hafsins. Þetta er barátta fyrir rétti íbúa sjávarbyggða, þar sem byggð hefur alla tíð byggst á fiskveiðum, til sjálfsbjargar og fyrir jöfnum búseturétti. Frjálsar handfæraveiðar og efling strandveiða virða þennan rétt. Fiskiveiðistjórnarkerfið nær ekki markmiðum sínum Markmið laga um fiskveiðistjórnun er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu nytjastofna á Íslandsmiðum og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Kvótakerfinu var komið á til að vernda fiskistofna fyrir ofveiði. Verndunin hefur ekki leitt til uppbyggingar fiskistofna. Kvótakerfinu var komið á fót til árið 1984. Aflamark í þorski var þá lækkað í um 200.000 tonn til að byggja upp þorskstofninn. Í dag - 40 árum síðar - eru veiðiheimildir í þorski um 200.000 tonn. Á áratugunum fyrir kvótakerfið var þorskveiði á Íslandsmiðum um 400.000 tonn á ári, og mun hærri á sum árin. Árangurinn af kvótakerfinu þegar kemur að uppbyggingu þorskstofnsins er því enginn. Nákvæmlega enginn. Þetta árangursleysi ætti að leiða til umræðu og endurskoðunar á vísindunum sem kvótakerfið byggir á og kvótakerfinu sjálfu. Enginn áhugi er á því hjá ráðandi öflum og umræða og gagnrýni á vísindin og kerfið þekkist ekki í helstu fjölmiðlum landsins. Frjálsar handfæraveiðar stuðla að markmiði fiskveiðistjórnarlaga með því að tryggja atvinnu og byggð í landinu. Þær hleypa nýju lífi í brothættar sjávarbyggðir og styrkja dreifða byggð í landinu með sjálfstæðum smáútgerðum og fjölbreyttari útgerð. Kvótakerfið, sem sett var til verndar fiskistofnum, á að ná til þeirra veiðiaðferða og veiðarfæra sem ógna fiskistofnunum. Handfæraveiðar með önglum ógna ekki fiskistofnum og ber því að gefa frjálsar, eins og áður sagði. Rökin fyrir núgildandi takmörkun handfæraveiða eru ekki fyrir hendi og ættu handfæraveiðar að vera fyrir utan kvótasetningu. Handfæraveiðar veita upplýsingar um ástand fiskistofna við strendur landsins sem ætti að nýta betur. Mokveiði undanfarnar vikur og sjálfátt þorsks veita upplýsingar um ástand þorskstofnsins. Kominn er tími á strandveiðirall líkt og togararall og netarall. Sátt um fiskveiðistjórnarkerfið mun nást með sanngjörnu veiðigjaldi og aðgengi að fiskveiðiauðlindinni með frelsi til handfæraveiða með náttúrulegum og eðlilegum takmörkunum. Breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu í átt að réttlæti fyrir þjóðina og sjávarbyggðir landsins verða að byggja á jafnræði og atvinnufrelsi. Það verður gert með því að virða rétt almennings til handfæraveiða við Íslandsstrendur. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Eyjólfur Ármannsson Sjávarútvegur Flokkur fólksins Mest lesið Síðustu vígi vísdómsins Sigurður Ingvarsson Skoðun Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun Íslenskt rafmagn á alþjóðlegum markaði Tinna Traustadóttir Skoðun Flugfarþegar í hrakningum Hafsteinn Karlsson Skoðun Krónunum kastað fyrir aurinn Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Gagnrýnda kynslóðin og glötuðu kennararnir Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Framúrskarandi skóli án hugsunar? Perla Hafþórsdóttir Skoðun Þunginn af áherslu heilbrigðisyfirvalda á líkamsþyngd Berglind Soffía Blöndal,Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir Skoðun „Leigupennar“ eða einfaldlega fólk sem vill ræða málið? Daði Freyr Ólafsson Skoðun Beljan og Bertolli Árni Stefán Árnason Skoðun Skoðun Skoðun Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Flugfarþegar í hrakningum Hafsteinn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt rafmagn á alþjóðlegum markaði Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Er uppruni orðinn að saknæmi? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Framúrskarandi skóli án hugsunar? Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Samfélag ótta eða hugrekkis Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Síðustu vígi vísdómsins Sigurður Ingvarsson skrifar Skoðun „Leigupennar“ eða einfaldlega fólk sem vill ræða málið? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Beljan og Bertolli Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Er gott að búa í Kópavogi? Sigurður Kári Harðarson skrifar Skoðun Þunginn af áherslu heilbrigðisyfirvalda á líkamsþyngd Berglind Soffía Blöndal,Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir skrifar Skoðun Gagnrýnda kynslóðin og glötuðu kennararnir Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Hrós er ekki bara fyrir byrjendur Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Krónunum kastað fyrir aurinn Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Alþjóðleg lög eða ráðleggingar? Marko Medic skrifar Skoðun Kveikt í trúverðugleika Samfylkingarinnar – slökkviliðið er sem betur fer á leiðinni Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Skolfið á beinunum? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar stuðningur skiptir raunverulega máli Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Ekki enn einn skandal, heldur upphaf breytinga Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Hin eilífa kosningabarátta innan KSÍ Sævar Þór Sveinsson skrifar Skoðun Sannleikur um slökkvistöð í Kópavogi Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Söguskýringar Samfylkingarinnar Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Nú er tíminn! Ása Valgerður Sigurðardóttir skrifar Skoðun Að standa af sér storminn Gerður Björk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Skaðabótalög – breytingar til hagsbóta fyrir neytendur? Tinna Björk Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fullveldið og 27. greinin Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Prince Polo, var táknmynd spillingar kommúnismans í Evrópu Júlíus Valsson skrifar Skoðun Byggjum framtíð á ís – fyrir börnin okkar og samfélagið allt Anna Maria Hedman skrifar Skoðun Hvað er planið? Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldi er ekki starfslýsing Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Sjá meira
Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun
Þunginn af áherslu heilbrigðisyfirvalda á líkamsþyngd Berglind Soffía Blöndal,Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir Skoðun
Skoðun Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þunginn af áherslu heilbrigðisyfirvalda á líkamsþyngd Berglind Soffía Blöndal,Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir skrifar
Skoðun Kveikt í trúverðugleika Samfylkingarinnar – slökkviliðið er sem betur fer á leiðinni Andri Steinn Hilmarsson skrifar
Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun
Þunginn af áherslu heilbrigðisyfirvalda á líkamsþyngd Berglind Soffía Blöndal,Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir Skoðun