Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 19. maí 2024 17:53 Amanda Andradóttir hlóð í þrennu fyrir Val í dag. Vísir/Pawel Valur og Þróttur unnu afar örugga sigra er liðin mættu til leiks í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í dag. Þróttur vann 5-0 sigur gegn Fylki og Valskonur skoruðu átta gegn Fram.
Katherine Cousins kom Valskonum yfir gegn Fram strax á 15. mínútu leiksins áður en Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir skoraði tvö mörk með stuttu millibili. Fanndís Friðriksdóttir og Ísabella Sara Tryggvadóttir sáu svo til þess að staðan í hálfleik var 5-0 með sitthvoru markinu. Amanda Andradóttir Jacobsen átti svo sviðið í síðari hálfleik. Hún skoraði sjötta mark liðsins á 47. mínútu, það sjöunda á 69. mínútu og hún fullkomnaði svo þrennuna á 78. mínútu og þar við sat. Niðurstaðan því 8-0 sigur Vals sem flaug inn í átta liða úrslitin. Þá vann Þróttur 5-0 sigur gegn Fylki þar sem Sierra Marie Lelii, María Eva Eyjólfsdóttir og Kristrún Rut Antonsdóttir sáu um markaskorun liðsins í fyrri hálfleik. Freyja Karín Þorvarðardóttir bætti svo fjórða markinu við snemma í síðari hálfleik og Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir skoraði fimmta markið í uppbótartíma. Ásamt Val og Þrótti tryggðu Afturelding og FH sér einnig sæti í átta liða úrslitum. Afturelding vann 1-0 sigur gegn Víkingi og FH lagði FHL 3-2, en síðasti leikur 16-liða úrslitanna fer fram í kvöld þegar Stjarnan tekur á móti Breiðabliki.
Mjólkurbikar kvenna Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira