Hálf áttræður Warnock gæti snúið aftur tveimur mánuðum eftir að hann hætti Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. maí 2024 22:46 Það gengur ekkert hjá Neil Warnock að hætta. Ian MacNicol/Getty Images Gamla brýninu Neil Warnock gengur bölvanlega að hætta afskiptum af fótbolta, en þessi 75 ára gamli knattspyrnustjóri gæti snúið aftur aðeins mánuði eftir að hann sagðist vera sestur í helgan stein.
Warnock þykir líklegur til að taka að sér hlutverk hjá utandeildarliði Torquay United í kjölfar þess að Bryn-samsteypan tekur yfir félagið. Samsteypan, sem samanstendur af fólki úr viðskiptalífinu á svæðinu, hefur keypt félagið með fyrirvara um samþykki kröfuhafa. Warnock var síðast þjálfari skoska liðsins Aberdeen, en hann tók við liðinu til bráðabirgða. Warnock stýrði liðinu í átta leikjum, en hann tók við þann 5. febrúar og lét af störfum rúmum mánuði síðar, þann 9. mars síðastliðinn. Hann sagðist vera sestur í helgan stein eftir starf sitt hjá Aberdeen. "He knows our club very well, he knows our region very well." pic.twitter.com/cKLk0eGYDF— talkSPORT (@talkSPORT) May 11, 2024 Nú stefnir hins vegar í að Warnock hætti við að hætta afskiptum af fótbolta. Þessi reynslumikli þjálfari hefur á löngum ferli sínum stýrt 20 liðum, þar á meðal Leeds, Crystal Palace og Sheffield United. Hann stýrði meðal annars Torquay United árið 1993 og gæti því snúið aftur til félagsins rúmum 30 árum eftir að hann stýrði því.
Enski boltinn Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Körfubolti Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Fjórir frá hjá Blikum á morgun Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum KSÍ missti af meira en milljarði króna City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Man United ósátt við Marokkó og FIFA „Fyrir mér er Flamengo stærra en Real Madrid“ Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Félag Arnórs Ingva og Ísaks seldi þjálfara sinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Milljarðs evra munur á liðunum: Börsungar lentu í brasi gegn þriðju deildar liði Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Bonmatí og Dembele best í heimi Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Rodgers tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Sjá meira