Forsætisráðherra veislustjóri í fimmtugsafmæli aldarinnar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. mars 2024 12:27 Lýsandi fyrir stemmninguna í gær. Örn Úlfar og Atli Steinn með einkennistákn rokkarans og afmælisbarnsins á höndunum. Örn Úlfar Hún var af dýrari gerðinni afmælisveislan sem Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður á Morgunblaðinu blés til í Hörpu í gærkvöldi. Forsætisráðherra sá um veislustjórn, fyrrverandi forseti var á meðal gesta og margur gesturinn vafalítið lítið til timbraður eftir veisluhöldin.
Atli Steinn hefur um árabil verið búsettur í Noregi þaðan sem hann skrifar greinar af öllum toga í Morgunblaðið. Hann hefur vakið athygli fyrir lipra textasmíð og orðheppni. Ferilskrá Atla Steins hefur verið litrík frá því hann útskrifaðist úr MR fyrir þrjátíu árum. Vinir hans á Facebook eiga auk þess sjaldan dauða stund enda Atli Steinn í frásagnargír innan sem utan vinnu og frá mörgu að segja. Guðbjörn Guðbjörnsson óperusöngvari var á meðal gesta í veislunni í gærkvöldi og var ekki að skafa af því í færslu á Facebook í dag. Hann segir Atla Stein í hópi tíu skemmtilegustu, gáfuðustu og merkustu manna sem hann hefur hitt á lífsleiðinni. „Atli Steinn opnaði með drepfyndnu uppistandi, salurinn hreinlega veltist um af hlátri. Ég hugsaði með mér að ekki myndi ég vilja halda ræðu í kjölfarið á þessari fullkomlega heppnuðu opnun,“ segir Guðbjörn. Hann vissi ekki hvaðan á hann stóð veðrið þegar veislustjórinn birtist. „Veislustjórinn var þá kynntur til leiks og það reyndist vera engin önnur en Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra landsins. Þau stunduðu íslenskunám saman. Katrín hélt eitthvað það flottasta og fyndnasta 'laudatio' sem ég hef nokkru sinni heyrt við slíkt tækifæri,“ segir Guðbjörn. Gísli Jökull Gíslason náði upptöku af Katrínu flytja lofgjörð um afmælisbarnið sem sjá má að neðan. „Eftir að hafa hlustað á Katrínu í gær hugsaði ég með mér að einmitt þarna værum við með allra, allra besta efnið í forseta landsins. Katrín var í ræðu sinni í senn einlæg og heiðarleg en að auki bráðfyndin og sýndi hversu gott vald hún hefur á íslenskri tungu. Aðdáunarvert. Ég hvet Katrínu Jakobsdóttur því til að fara í framboð til forseta Íslands. Af öllum öðrum sem nefndir hafa verið til sögunnar, ber hún hreinlega höfuð og herðar yfir það allt saman.“ Já, greinilegt að Guðbirni líst vel á Katrínu en hún var ekki eina úr hópi frægri gesta. Ólafur Ragnar Grímsson forseti leit við og náðist mynd af afmælisbarninu, kærustunni Anitu Sjøstrøm Libell Andersen, Guðbirni og Ólafi Ragnari. Guðbjörn og Ólafur Ragnar ásamt afmælisbarninu og spúsu hans. Guðbjörn Guðbjörnsson Meðal annarra gesta var Martin Eyjólfsson sendiherra, Atli Bergmann veiðimaður, Kamilla Einarsdóttir rithöfundur, Örn Úlfar Sævarsson auglýsingagúrú, Frosti Logason fjölmiðlamaður, Marta María Winkel ásamt manni sínum Páli og auðvitað fjöldinn allur af ritstjórn Morgunblaðsins. Náðist flott hópmynd af blaðamönnum miðilsins og helst að ritstjóranna Davíðs og Haraldar væri saknað á myndinni. Aðrir voru mættir og í banastuði. Lengi mætti telja upp gesti enda Atli Steinn komið víða vel á náms- og starfsferli sínum. Erpur Eyvindarson söng svo um að allir væru að fá sér og fleiri smelli með XXX Rottweilerhundum. Sem sagt, stuð og stemmning.
Tímamót Harpa Fjölmiðlar Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Hvað veistu um… pitsur? Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Fleiri fréttir „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Sjá meira