Nýjar vísbendingar í áratugagömlu íslensku morðmáli Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 21. mars 2024 14:18 Sigursteinn Másson hefur í áraraðir rannsakað morðið á Gunnari Tryggvasyni leigubílstjóra. Nú hafa nýjar vísbendingar og ný vitni komið fram. Vísir/Morgunblaðið Ný vitni hafa stigið fram í áratugagömlu óupplýstu morðmáli sem vakti mikinn óhug meðal þjóðarinnar. Sigursteinn Másson, sem nú hefur einnig fengið aðgang að öllum rannsóknargögnum lögreglunnar varpar nýju ljósi á málið í nýrri þáttaröð sem hefur göngu sína í kvöld.
Fyrsti þátturinn í nýrri þáttaröð Sigursteins Mássonar, íslensk sakamál, verður frumsýndur á Sjónvarpi Símans í kvöld. Sigursteinn ræddi þættina í Reykjavík síðdegis í gær. Um sex þætti er að ræða þar sem fjögur mál verða tekin fyrir. Hann segir sum málanna kunnugleg en önnur verða ný fyrir áhorfendum. Þáttaröðin byrjar á 56 ára gömlu máli, sem þeir sem fylgst hafa með störfum Sigursteins þekkja vel. Hann tók það fyrir á Storytel árið 2020 en málið var einnig hluti af fyrstu seríu Sannra Íslenskra sakamála árið 1999. Aftaka á Laugalæk Málið sem um ræðið er hið svokallaða Leigubílstjóramorð, morðið á leigubílstjóranum Gunnari Tryggvasyni á Laugalæk. Talið er að Gunnar hafi verið skotinn í hnakkann með skammbyssu þann 18. janúar 1968 um borð í leigubíl sínum. Þegar lík hans fannst var bílinn, sem var staðsettur í miðju íbúðahverfi, enn í gangi og gjaldmælirinn enn á. Sumir hafa líkt morðinu á Gunnari við aftöku, en engin ummerki voru um slagsmál eða átök í leigubílnum. Sá sem framdi verknaðinn náðist aldrei. „Þetta var mjög óhuggulegt og vakti mikinn óhugnað meðal þjóðarinnar árum saman. Leigubílstjórar voru ákaflega óöruggur með sig, það var farið að ræða um allskonar öryggismál í leigubílum, skilrúm og annað sem átti að hindra að þetta myndi gerast aftur og svo framvegis,“ segir Sigursteinn. Þetta er mál sem hefur ekki sofnað. Einn var handtekinn í tengslum við málið á sínum tíma, maður að nafni Sveinbjörn Gíslason. Byssan, morðvopnið, fannst í læstu hanskahólfi í bíl Sveinbjörns. „Þannig það er líklegt, getum við sagt, að hann hafi komið að málinu,“ segir Sigursteinn. „En hann játaði aldrei og hélt sig statt og stöðugt við það að hann hefði fundið byssuna í bílnum, hún hefði horfið skömmu áður en morðið á Gunnari Tryggvasyni var framið og dúkkar síðan upp í bílnum aftur. Það var auðvitað margt með ólíkindum í þessu, en einhvernveginn var það þannig að staðfastur framburður hans og skortur á sönnunargögnum gerðu það að verkum að hann var sýknaður í málinu.“ Nýjum vísbendingum ekki fylgt eftir vegna heimsfaraldurs Árið 2020 komu fram fréttir þess efnis að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu væri að kanna hvort tilefni væri til að taka málið upp aftur í kjölfar nýrra vísbendinga. Sigursteinn segir að lögregla hafi kallað eftir gögnum en því hafi ekki verið fylgt eftir þar sem Covid-19 faraldurinn hafi sett strik í reikninginn og málið því dottið upp fyrir. „Nú hinsvegar hefur það gerst að lögreglan hefur ákveðið að veita mér aðgang að öllum gögnum málsins og það er að skila sér inn i þessa þáttagerð.“ Þá greinir Sigursteinn frá því að fleiri en eitt vitni hafi stigið fram með upplýsingar sem varpa nýju ljósi á málið. Um það verði fjallað í tveimur fyrstu þáttunum. Fjallað var um morðið á Gunnari Tryggvasyni í þættinum Ópplýst lögreglumál sem sýndur var á Stöð 2 árið 2013. Þáttinn má sjá hér að neðan.
Lögreglumál Einu sinni var... Reykjavík Leigubílar Storytel Tengdar fréttir Lögreglan klúðraði morðinu á Laugalæk „Mér fannst þetta alltaf skrýtið mál og hafði áhuga á því. Þegar ég fór síðan að setja mig inn í málið og sjá hlutina í samhengi sá ég að þetta var mikið drama," segir Þorsteinn Bergmann Einarsson 61 árs gamall verkfræðingur frá Selfossi. 6. nóvember 2007 11:36 Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira
Lögreglan klúðraði morðinu á Laugalæk „Mér fannst þetta alltaf skrýtið mál og hafði áhuga á því. Þegar ég fór síðan að setja mig inn í málið og sjá hlutina í samhengi sá ég að þetta var mikið drama," segir Þorsteinn Bergmann Einarsson 61 árs gamall verkfræðingur frá Selfossi. 6. nóvember 2007 11:36