Úlfur Úlfur endurgerði senu úr tónlistarmyndbandi Queen Boði Logason skrifar 16. febrúar 2024 09:52 Úlfur Úlfur ætla að halda útgáfutónleika í Gamla bíói þann 5. apríl næstkomandi. Úlfur Úlfur „Við höfum gert nokkur helvíti góð myndbönd með Magga Leifs en þetta er okkar besta verk hingað til, ekki spurning,“ segir Arnar Freyr Frostason annar af forsprökkum hljómsveitarinnar Úlfur Úlfur.
Vísir frumsýnir í dag myndband við lagið Myndi Falla af nýjustu plötu sveitarinnar, Hamfarapopp. Platan er fjórða plata rappdúettsins en hana skipa áðurnefndur Arnar Freyr og Helgi Sæmundur Guðmundsson. Leikstjóri myndbandsins er Magnús Leifsson en hann á heiðurinn af eftirminnilegum myndböndum strákanna, meðal annars við lögin Tarantúlur, Brennum Allt og Bróðir. Myndbandið er ansi frumlegt og fara þeir Arnar Freyr og Helgi í ódauðleg hlutverk Spaugsstofumeðlima, endurskapa senu úr Queen tónlistarmyndbandi, halda á Golden Retriever hundum í rúllustiga og á börnunum sínum á Hótel Holti. Magnús Leifsson leikstýrir Arnari Frey og Helga Sæmundi í myndbandinu.Úlfur Úlfur „Þarna eru mörg metnaðarfull skot og ótal vísanir í poppkúltúr sem áhorfendur geta dundað sér við að ná eða misskilja. Mér finnst við hitta nýjar taugar sem við höfum látið vera fram að þessu. Þetta er líka uppáhalds lagið mitt á plötunni, fyrsta lagið sem við sömdum fyrir hana og lagið sem varð einhverskonar viðmið fyrir restina,“ segir Arnar Freyr. Þór Elíasson sá um kvikmyndatöku, Sigurður Eyþórsson klippti, Tinna Ingimars sá um gervahönnun, Brynja Skjaldar gerði búninga, Aron Martin Ásgerðarson gerði leikmynd og Undir sáu um tæknibrellur. Þessa dagana eru Úlfur Úlfur að fylgja á eftir plötunni sem kom út í október og er myndbandið liður í því ferli. Næst á dagskrá eru útgáfutónleikar 5. apríl í Gamla bíói.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Menning Sýningar á Íslandi Mest lesið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Drengurinn sem dó Lífið Nakinn á kóræfingu Lífið Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira