Útlendingastofnun setur fjölskyldusameiningar Palestínumanna í forgang Heimir Már Pétursson skrifar 12. desember 2023 19:30 Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir fjárhagslega neyðaraðstoð við Palestínumenn hafa verið aukna og Útlendingastofnun sett fjölskyldusameiningar Palestínumanna hér á landi í forgang. Vísir/Vilhelm Utanríkisráðherra segir að Ísland og Norðurlöndin muni styðja tillögu Egyptlands og Máritáníu um tafarlaust vopnahlé á Gaza og jafnvel vera meðflutningsmenn á tillögunni. Stjórnvöld hafi aukið framlög til neyðaraðstoðar við Palestínu og Útlendingastofnun sett sameiningu fjölskyldna fólks frá Palestínu í sérstakan forgang.
Ísraelsmenn hafa yfir að ráða einum öflugasta herafla heims. AP/Ohad Zwigenberg Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segist hafa rætt við Eli Cohen utanríkisráðherra Ísraels og fengið þar tækifæri til að koma sjónarmiðum Íslands á framfæri. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra hefur komið sjónarmiðum Íslands á framfæri við starfsbróður sinn í Ísrael.Stöð 2/Arnar „Þar á meðal þingsályktun frá Alþingi. Auðvitað ekkert síður til að hlusta eftir sjónarmiðum. Maður vill fá að heyra hvernig menn leggja mat á stöðuna. Ég hef sömuleiðis óskað eftir símtali við utanríkisráðherra Palestínu. Það var á dagskrá og við vorum að reyna að ná saman fyrir nokkrum dögum en það gekk ekki,“ segir Bjarni. Bæði hafi komið upp óvæntur fundur hjá Riyad al-Malik og símasamkiptin hafi verið erfið. Hvað er það sem Íslendingar geta gert umfram það sem við höfum nú þegar gert? „Grundvallaratriðið er að gera skilyrðislausa kröfu um að menn fari að alþjóðalögum og mannúðarlögum. Það eru þessi grundvallarréttindi sem við eigum svo mikið undir sjálf að séu virt og teljum að eigi að vísa veginn um það hvernig menn komast út úr svona stöðu,” segir utanríkisráðherra. Þá hafi fjárframlög til neyðaraðstoðar við Palestínumenn verið aukin og Útlendingastofnun sett fjölskyldusameiningar Palestínumanna hér á landi í forgang. Gífurlegt mannfall hefur verið í árásum Ísraels á Gaza. Talið er að átján þúsund óbreyttir borgarar hafi fallið í valinn, þar af um sjö þúsund börn. Þessi mynd var tekin í Rafahborg í gær.AP/Hatem Ali „Í augnablikinu virðast átökin halda áfram vegna þess að þessir deilandi aðilar eru ekki sammála um að sleppa lausum gíslum gegn föngum. Það er ágreiningur enn um það. Eins og ég les í stöðuna segja Ísraelsmenn að það sé tvennt sem þeir ætla að ná fram. Það er annars vegar að fá gíslana alla heim að nýju og hins vegar að lama starfsgetu Hamas,” segir Bjarni. Íslendingar voru fyrstir til að viðurkenna sjálfstæði Palestínu og Bjarni segir þá afstöðu ekkert hafa breyst. „Það er tveggja ríkja lausnin sem við höfum talað fyrir til þessa. Það er það sem maður er enn að horfa til að gæti skapað grundvöll fyrir betra lífi fyrir alla í þessum heimshluta,“ segir Bjarni Benediktsson.
Átök í Ísrael og Palestínu Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Palestína Ísrael Hælisleitendur Tengdar fréttir Ný ályktun um tafarlaust vopnahlé lögð fyrir á allsherjarþingi SÞ Ný ályktun verður lögð fyrir neyðarfund allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sem fram fer í dag vegna átakanna á Gasa. 12. desember 2023 06:56 Allsherjarþing SÞ hittist á neyðarfundi vegna ástandsins á Gasa Ísraelskir skriðdrekar eru komnir inn í miðbæ borgarinnar Khan Younis á Gasa svæðinu. Hart hefur verið barist í borginni um helgina auk þess sem loftárásir hafa verið gerðar ítrekað. 11. desember 2023 07:17 Kallað eftir viðskiptaþvingunum á hendur Ísraelum Átökin á Gasasvæðinu héldu áfram í dag og hafa Ísraelar tvíeflst frá því Bandaríkjamenn beittu neitunarvaldi sínu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til að koma í veg fyrir vopnahlé. Samstöðufundir fyrir Palestínu fóru fram í þremur landshlutum í dag. 11. desember 2023 00:06 Ákall um tafarlaust vopnahlé ítrekað Ákall íslenskra stjórnvalda um tafarlaust vopnahlé af mannúðarástæðum á Gaza var ítrekað í ávarpi sem Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, flutti fyrir hönd Íslands á alþjóðlegum fundi um stöðu mannúðarmála á Gaza sem fram fór í París í gær. 7. desember 2023 07:52 Guterres nýtir sér 99. ákvæðið og varar við algjöru hruni á Gasa António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur í fyrsta sinn nýtt sér 99. ákvæði sáttmála Sameinuðu þjóðanna til að vekja athygli Öryggisráðsins á yfirvofandi „hruni“ mannúðarkerfisins á Gasa. 7. desember 2023 06:42 Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira
Ný ályktun um tafarlaust vopnahlé lögð fyrir á allsherjarþingi SÞ Ný ályktun verður lögð fyrir neyðarfund allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sem fram fer í dag vegna átakanna á Gasa. 12. desember 2023 06:56
Allsherjarþing SÞ hittist á neyðarfundi vegna ástandsins á Gasa Ísraelskir skriðdrekar eru komnir inn í miðbæ borgarinnar Khan Younis á Gasa svæðinu. Hart hefur verið barist í borginni um helgina auk þess sem loftárásir hafa verið gerðar ítrekað. 11. desember 2023 07:17
Kallað eftir viðskiptaþvingunum á hendur Ísraelum Átökin á Gasasvæðinu héldu áfram í dag og hafa Ísraelar tvíeflst frá því Bandaríkjamenn beittu neitunarvaldi sínu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til að koma í veg fyrir vopnahlé. Samstöðufundir fyrir Palestínu fóru fram í þremur landshlutum í dag. 11. desember 2023 00:06
Ákall um tafarlaust vopnahlé ítrekað Ákall íslenskra stjórnvalda um tafarlaust vopnahlé af mannúðarástæðum á Gaza var ítrekað í ávarpi sem Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, flutti fyrir hönd Íslands á alþjóðlegum fundi um stöðu mannúðarmála á Gaza sem fram fór í París í gær. 7. desember 2023 07:52
Guterres nýtir sér 99. ákvæðið og varar við algjöru hruni á Gasa António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur í fyrsta sinn nýtt sér 99. ákvæði sáttmála Sameinuðu þjóðanna til að vekja athygli Öryggisráðsins á yfirvofandi „hruni“ mannúðarkerfisins á Gasa. 7. desember 2023 06:42