Donald Tusk kjörinn forsætisráðherra Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. desember 2023 17:11 Donald Tusk var forsætisráðherra Póllands á árunum 2007 til 2014 og svo forseti leiðtogaráðs Evrópusamnbandsins á árunum 2014 til 2019. AP Donald Tusk hefur verið kjörinn forsætisráðherra Póllands eftir Mateusz Morawiecky fékk ekki meirihluta í pólska þinginu í dag til að leiða næstu ríkisstjórn landsins. Flokkur Tusk hefur verið níu ár í minnihluta pólska þingsins.
Þingkosningar fóru fram í Póllandi í október en Morawiecki hefur verið forsætisráðherra frá árinu 2017. Ólíklegt þótti að meirihluti legði blessun sína yfir tillögu hans enda missti flokkur Morawiecki, Lög og réttur, og stuðningsflokkar hans þingmeirihluta sinn í kosningunum. Andrzej Duda, forseti Póllands, veitti Morawiecky stjórnarmyndunarumboð þrátt fyrir að ríkisstjórnin hefði misst meirihluta á þingi. Tillaga hans í þinginu féll nokkuð afgerandi í dag; 266 þingmenn greiddu atkvæði gegn tillögu Morawiecky en 190 með. Tusk varð það heillin Stjórnarmyndunarumboðið fór þá yfir til Donalds Tusk, formanns Borgaravettvangs og fyrrverandi forsætisráðherra. Í kosningu um að Tusk yrði forsætisráðherra kusu 248 með honum en 201 gegn honum. Hann er því forsætisráðherra landsins á ný eftir að hafa setið í embættinu frá 2007 til 2014. Tusk, sem einnig er fyrrverandi forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, leiddi bandalag mið- og vinstriflokka í kosningunum sem saman tryggðu sér meirihluta í kosningunum. Lög og réttur, flokkur Morawiecki, sem hefur stjórnað landinu síðustu átta ár, er þó áfram stærsti flokkurinn á þingi. Borgaravettvangur Tusk og stuðningsflokkar skrifuðu í síðasta mánuði undir samning um stjórnarmyndun. Þar segir meðal annars að stefnt sé að því að bæta samskiptin við Evrópusambandið, en samband ESB og Póllands hafa verið stirð síðustu ár, meðal annars vegna afskipta pólskra stjórnvalda af dómstólum í landinu, Tusk var forsætisráðherra Póllands á árunum 2007 til 2014 og svo forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins á árunum 2014 til 2019. Hann sneri aftur í pólsk stjórnmál árið 2021 þegar hann tók við formennsku í Borgaravettvangi. Frétt Guardian.
Pólland Kosningar í Póllandi Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira