Jói Berg og félagar steinlágu gegn Tottenham | Vandræði Chelsea halda áfram Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 2. september 2023 16:01 Heung-Min Son skoraði þrennu fyrir Tottenham í dag. Vísir/Getty Heung-Min Son var allt í öllu í liði Tottenham er liðið vann öruggan 2-5 sigur gegn Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum hans í Burnley í ensku úrvalsdeildinni í dag. Á sama tíma mátti Chelsea þola 0-1 tap gegn Nottingham Forest.
Heimamenn í Burnley byrjuðu af miklum krafti gegn Tottenham í dag og Lyle Foster kom liðinu yfir strax á fjórðu mínútu leiksins. Heung-Min Son jafnaði þó metin fyrir gestina á 16. mínútu eftir stoðsendingu frá Manor Solomon áður en Christian Romero kom Tottenham í forystu með þrumuskoti í uppbótartíma fyrri hálfleiks. James Maddison skoraði svo þriðja mark Tottenham snemma í síðari hálfleik áður en Heung-Min Son fullkomnaði þrennuna með tveimur mörkum með þriggja mínútna millibili og gulltryggði öruggan sigur Tottenham. Josh Brownhill kom inn einu sárabótarmarki fyrir Burnley á fjórðu mínútu uppbótartíma og niðurstaðan varð 2-5 sigur Tottenham sem nú situr í öðru sæti deildarinnar með tíu stig eftir fjóra leiki, en Burnley er hins vegar enn án stiga á botni deildarinnar. Þá mátti Chelsea þola 0-1 tap gegn Nottingham Forest þar sem Anthony Elanga skoraði eina mark leiksins á 48. mínútu. Heimamenn í Chelsea fengu sín færi til að jafna metin, en allt kom fyrir ekki og liðið er því aðeins með fjögur stig, tveimur stigum á eftir Nottingham Forest. Að lokum gerðu Brentford og Bournemouth 2-2 jafntefli þar sem Bryan Mbuemo reyndist hetja Brentford er hann jafnaði metin á þriðju mínútu uppbótartíma.
Enski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira