Strokulax Arctic Fish sennilega borist í ár á Vestfjörðum Ólafur Björn Sverrisson skrifar 30. ágúst 2023 15:19 Göt á sjókvíum komu í ljós í Patreksfirði fyrir rúmri viku. vísir/vilhelm Grunur er um að strokulax frá fiskeldisfyrirtækinu Arctic Fish hafi veiðst í nokkrum laxveiðiám á Vestfjörðum að undanförnu. Tvö göt fundust á kví fyrirtækisins í Patreksfirði fyrir rúmri viku. Matvælastofnun segir að sennilega sé ekki um stórt strok að ræða.
Greint var frá götunum 20. ágúst. Götin lágu lóðrétt sitthvoru megin við svokallaða styrktarlínu. Hvort um sig var 20x30 sentímetrar að stærð. „Við erum fyrst og fremst að rannsaka orsakir á þessum götum,“ segir Karl Steinar Óskarsson deildarstjóri fiskeldis hjá Matvælastofnun í samtali við Vísi. Hundrað eða þrjú þúsund laxar MAST fyrirskipaði að slátrað skyldi öllum rúmlega 83 þúsund fiskum sem voru í kvínni þegar talið er að götin hafi myndast. Í ljós kom að mismunur á fjölda fiska sem fór upphaflega í kvína og fjöldi slátraðra fiska var 3.462 eða 2,6 prósent. Reikna má með um 2-4 prósent skekkjumörkum þar sem fjöldi seiða í sjókví er reiknaður fjöldi á hverjum tímapunkti. Fiskur er talinn við bólusetningu í seiðastöð á landi og síðan eru dregin frá afföll sem verða eftir bólusetningu í landeldisstöð og afföll sem verða eftir útsetningu í sjókvíar, að því er fram kemur á vef MAST. Lax í teljara í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi 22. ágúst 2023. Ytri einkenni geta bent til eldisuppruna.hafrannsóknarstofnun „Það er alltaf alvarlegt þegar það strýkur fiskur en það er ekki að sjá á tölunum að þetta sé mikið magn, fjöldinn er allavega ekki í tugum þúsunda eins og einhverjir hafa sagt,“ segir Karl Steinar. „Við getum ekki fullyrt hvort það séu hundrað laxar sem sluppu eða 3.462, þetta er bara innan þessara skekkjumarka.“ MAST hafi bent á að endurskoða þurfi aðferðarfræði við talningu til að forðast slík skekkjumörk. Fiskistofa heldur utan um upplýsingar um þá eldislaxa sem hugsanlega hafa veiðst í ám á Vestfjörðum. Grunur er uppi um að sex eldislaxar hafi veiðst í net í Ósá í Patreksfirði í vikunni. Sömuleiðis hefur verið tilkynnt um fimm hugsanlega eldislaxa sem veiddust í Mjólká í Arnarfirði. Erfðagreining fer fram í kjölfarið. Guðni Magnús Eiríksson, sviðsstjóri á lax- og silungsveiðisviði hjá Fiskistofu, telur að skýrari mynd verði komin á málið eftir helgi. Leiðbeiningar af vef Hafrannsóknarstofnunar um greiningu á því hvort veiddur sé náttúrulegur fiskur eða strokufiskur úr eldi.hafrannsóknarstofnun Engin önnur göt fundist Guðni segir að stofnunin viti að eldisfiskar hafi að undanförnu borist í ár. Myndir af fiski sem líkist eldisfiski hafi sömuleiðis borist stofnuninni. Hafrannsóknarstofnun hefur gefið út leiðbeiningar um greiningu á því hvort veiddur sé náttúrulegur fiskur eða strokufiskur úr eldi. Veiðimenn eru hvattir til að leita til Fiskistofu ef grunur er um að eldislax hafi veiðst. Karl Steinar hjá Matvælastofnun segir að stofnunin hafi aflað neðansjávareftirlitsskýrslum frá öllum eldissvæðum síðustu vikuna en engin önnur göt hafa fundist. Frá árinu 2015 hafa níu tilvik komið upp þar sem göt fundust á kvíum. Stærsta slysasleppingin átti sér stað hjá laxeldisfyrirtækinu Arnarlaxi í Arnarfirði í október á síðasta ári þegar ljóst varð að fyrirtækið gat ekki gert grein fyrir afdrifum rúmlega 81 þúsund laxa hið minnsta. Matvælastofnun lagði í kjölfarið 120 milljóna króna sekt á fyrirtækið vegna brots á skyldu um að tilkynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strokfiski. „Það er hellings vinna í gangi. Þegar málið liggur ljóst fyrir komum við með frekar upplýsingar,“ segir Karl Steinar. Algengast sé að göt myndist af völdum báta eða óveðurs en það sé ólíklegt í þessu tilfelli. „Það getur ýmislegt gerst við slátrun en það eru strangir verkferlar í kringum það. Við erum að stíga fyrstu skrefin í svona rannsókn núna og skoðum allt, tökum viðtöl við starfsfólk og fleira.“
Sjókvíaeldi Fiskeldi Vesturbyggð Matvælaframleiðsla Stangveiði Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Féll í Jökulsárlón Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Fleiri fréttir Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Sjá meira