Sjáðu markið: Sveinn Aron á skotskónum þegar Elfsborg jók forystu sína Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. júlí 2023 15:16 Sveinn Aron var á skotskónum í dag. Twitter@IFElfsborg1904 Elfsborg jók forystu sína í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með 4-0 útisigri á Djurgården. Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði fjórða mark Elfsborg og Hákon Rafn Valdimarsson stóð vaktina milli stanganna.
Sigur gestanna var aldrei í hættu en Alexander Bernhardsson kom Elfsborg yfir strax á 3. mínútu. Þegar 20 mínútur voru liðnar hafði Jeppe Okkels tvöfaldað forystuna með marki úr vítaspyrnu og Okkels gerði í raun út um leikinn áður en fyrri hálfleik var lokið. Staðan 0-3 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Sveinn Aron kom inn af bekknum á 64. mínútu og það tók hann ekki langan tíma að komast á blað. Innan við tveimur mínútum eftir að koma inn af bekknum hafði Sveinn Aron skoraði fjórða mark gestanna. Markið skoraði hann með hægri fótar skoti eftir að Elfsborg vann boltann upp við vítateig heimamanna. Staðan orðin 4-0 og reyndust það lokatölur. 4-0 till IF Elfsborg på Tele2! Sveinn Aron Gudjohnsen Se matchen på https://t.co/ocJJkbIhfX pic.twitter.com/qIjX9sR1vs— discovery+ sport (@dplus_sportSE) July 22, 2023 Elfsborg trónir nú á toppi deildarinnar með 39 stig að loknum 16 leikjum. Valgeir Lunddal Friðriksson og félagar í meistaraliði Häcken eru í 2. sæti með 35 stig. Häcken leikur síðar í dag og getur minnkað muninn niður í eitt stig.
Fótbolti Sænski boltinn Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Fleiri fréttir Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Sjá meira