Milner fékk vítapunktinn í kveðjugjöf Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 26. maí 2023 07:01 James Milner fékk þennan fína vítapunkt í kveðjugjöf frá vallarstarfsmönnum Liverpool. Vísir/Getty Eftir átta ára veru hjá Liverpool er James Milner á leið frá félaginu. Til að þakka honum fyrir þjónustu sína við félagið gáfu vallarstarfsmenn honum eitt stykki vítapunkt í kveðjugjöf.
Milner gekk í raðir Liverpool árið 2015 frá Manchester City. Síðan þá hefur hann leikið 229 deildarleiki fyrir félagið, en hann tilkynnti það á dögunum að yfirstandandi tímabil yrði hans síðasta með félaginu. Þessi 37 ára gamli leikmaður hefur því þegar leikið sinn seinasta heimaleik fyrir félagið. Liðið á þó einn leik eftir í deildinni; útileik gegn Southampton næstkomandi sunnudag. Þrátt fyrir að vera ekki beint mesti markaskorari ensku úrvalsdeildarinnar er James Milner þó afar örugg vítaskytta. Á ferli sínum hefur hann tekið 35 spyrnur og 30 þeirra hafa ratað í netið, en það gerir rétt tæplega 86 prósent vítanýtingu. Það má því ætla að leikmaðurinn hafi verið duglegur að æfa vítaspyrnur og það hefur greinilega eitthvað pirrað vallarstarfsmenn Liverpool. Nú þegar Milner er á förum frá félaginu ákváðu þeir að gefa honum vítapunkt í kveðjugjöf og með fylgdi kort sem sagði að nú væri komið að honum að sjá um punktinn. View this post on Instagram A post shared by James Milner (@jamesmilnerofficial) „Eftir átta ár af því að þú sért að eyðilegga vítapunktana okkar er nú komið að því að þú sjáir um einn sjálfur,“ segir á kortinu áður en leikmanninum er óskað velfarnaðar.
Enski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Fleiri fréttir Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Sjá meira