Bayern mistókst að tryggja sér titilinn Smári Jökull Jónsson skrifar 20. maí 2023 13:02 Glódís Perla var í byrjunarliði Bayern í dag. Vísir/Getty Íslendingaliðið Bayern Munchen mistókst að tryggja sér þýska meistaratitilinn í dag en liðið gerði jafntefli við Leverkusen á útivelli. Bayern er þó í góðri stöðu fyrir lokaumferðina.
Fyrir leikinn í dag var Bayern í góðri stöðu. Liðið var með fjögurra stiga forystu á Wolfsburg og gat því tryggt sér titilinn með sigri gegn Leverkusen. Glódís Perla Viggósdóttir byrjaði í vörn Bayern í dag en Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var á bekknum. Cecilía Rán Rúnarsdóttir var hins vegar ekki í leikmannahópi Bayern. Lið Bayern sótti mun meira í leiknum og átti tuttugu tilraunir að marki heimakvenna. Það gekk þó erfiðlega að koma boltanum á rammann og hvað þá í netið. Leverkusen náði að halda út og niðurstaðan í dag var markalaust jafntefli. Bayern er því með fimm stiga forskot í deildinni en Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg á leik á morgun gegn SV Meppen og getur þá minnkað muninn í tvö stig. Nái Wolfsburg ekki sigri verður Bayern meistari á morgun. Í lokaumferðinni mætir Bayern fyrrum stórliðinu Turbine Potsdam sem vann sex titla á árunum 2003-2012. Nú er Potsdam hins vegar í neðsta sæti þýsku deildarinnar, þegar fallið í næst efstu deild og því á Bayern sigurinn vísan á heimavelli í síðustu umferðinni.
Þýski boltinn Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti „Eitt ótrúlegasta augnablik sem þú sérð í hvaða íþrótt sem er“ Sport Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Fleiri fréttir Strasbourg - Breiðablik | Tekst Blikum að tryggja sig áfram? Benti á hinn íslenska Dan Burn „Við þurfum bara að keyra á þetta“ Segir Nóel Atla frábært dæmi um það þegar hlutirnir gangi upp Glódís gæti þurft að ryðja Man. Utd og Barcelona úr vegi að úrslitaleiknum Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Liðsfélagi landsliðsmanns missti unga frændur sína í sprengingu Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ Bíður eftir kallinu frá Arnari: „Myndi segja að ég væri klár“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Fótboltamaður skotinn til bana Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Fjórir frá hjá Blikum á morgun Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum KSÍ missti af meira en milljarði króna City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Man United ósátt við Marokkó og FIFA „Fyrir mér er Flamengo stærra en Real Madrid“ Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Sjá meira