West Ham og Fiorentina í úrslit Sambandsdeildarinnar eftir dramatík Smári Jökull Jónsson skrifar 18. maí 2023 23:00 David Moyes fagnaði í leikslok. Vísir/Getty West Ham og Fiorentina mætast í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar eftir að hafa unnið sigra í einvígjum sínum í undanúrslitum í kvöld.
West Ham mætti liði AZ Alkmaar í kvöld en West Ham var með 2-1 forystu eftir fyrri leik liðanna á Englandi. Leikurinn í kvöld var jafn og spennandi og reyndu heimamenn hvað þeir gátu til að ná inn markinu sem þeir þurftu til að jafna metin í einvíginu. Það gekk hins vegar erfiðlega. Lucas Paqueta skaut í stöninga á marki AZ Alkmaar í fyrri hálfleik og mark heimamanna kom aldrei í síðari hálfleiknum. Þegar heimamenn voru búnir að fjölga vel í sókninni náði Pablo Fornals að tryggja West Ham sigur með marki á fjórðu mínútu uppbótartíma og tryggja West Ham 1-0 sigur. Lærisveinar David Moyes eru því komnir í úrslitaleik í Evrópukeppni en tímabilið hefur verið erfitt hjá West Ham sem hefur verið í fallbaráttu á Englandi í vetur. Framlengt í Sviss Í hinum leik liðanna tók FC Basel á móti Fiorentina. Basel var með 2-1 forystu að loknum fyrri leiknum og Nicolas Gonzalez jafnaði metin í einvígnu þegar hann kom Fiorentina í 1-0 á 35. mínútu. Snemma í síðari hálfleik jafnaði Zeki Amdouni metin fyrir Basel en Gonzalez var aftur á ferðinni á 72. mínútu þegar hann kom Fiorentina í 2-1 og jafnaði metin í einvíginu á nýjan leik. Staðan var 2-1 að loknum venjulegum leiktíma og þurfti því að framlengja. Þegar komið var fram í níundu mínútu uppbótartíma í seinni hálfleik framlengingar skoraði síðan Antonin Barak sigurmark Fiorentina. Lokatölur 3-1 og Fiorentina komið í úrslitaleikinn eftir 4-3 sigur í einvíginu. Leikmenn Fiorentina fagna sigurmarki Antontin Barak.Vísir/Getty
Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Sjá meira