Matvörugátt þriggja verslana opnar brátt Kristinn Haukur Guðnason skrifar 15. maí 2023 16:50 Verkefnið hefur tafist vegna tæknilegra mála. Neytendur munu geta borið saman verð á matvælum í sérstakri Matvörugátt sem opnuð verður innan fárra daga. Þrjár verslanir eru þátttakendur í verkefninu.
Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og Sigrún Ösp Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Rannsóknarseturs verslunarinnar, undirrituðu samning um Matvörugáttina þann 10. febrúar síðastliðinn að Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, viðstaddri. Rannsóknarsetrið heldur utan um gáttina. Matvörugáttin er hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem stuðningur við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í desember. Það er til að auka aðhald að neytendamarkaði og að almenningur geti fylgst með verði á helstu neysluvörum sem seldar eru í matvöruverslunum. Á gáttin að skapa hvata fyrir fyrirtæki til að halda aftur af verðhækkunum. Flókið verkefni Upphaflega átti Matvörugáttin að opna á „næstu vikum“ eftir undirritun en opnunin hefur tafist. Sigrún Ösp segir að verkefnið hafi reynst tæknilega flóknara en búist var við, en stjórnvöld lögðu tíu milljónir króna í það. „Það eru margir aðilar sem koma að gáttinni og það tók lengri tíma að smíða hana en gert var ráð fyrir,“ segir Sigrún Ösp. Verkefnið sé vandasamt en sem betur fer líti út fyrir að allt muni smella saman á næstu dögum. Sigrún Ösp segir að þrjár stórar matvöruverslanir verði í gáttinni. Það eru Bónus, Krónan og Nettó. Í gáttinni verður hægt að sjá verðsamanburð á milli verslananna og neytendur munu geta reiknað verðið á sinni innkaupakörfu í henni.
Neytendur Verslun Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira