Ég mæli með Ragnari Þór sem formanni VR Harpa Sævarsdóttir skrifar 13. mars 2023 12:01 Nú standa yfir kosningar til stjórnar og formanns VR. Sem ritari í fráfarandi stjórn og þar áður varaformaður hef ég átt náið samstarf við Ragnar þór og kynnst því vel hvern mann hann hefur að geyma, hann er réttsýnn og sanngjarn þegar kemur að hagsmunabaráttu fyrir félagsfólk VR. Mig langar að hvetja alla sem hafa kosningarétt í VR til þess að nýta rétt sinn og veita Ragnari umboð næstu tvö árin vegna þess að ég treysti engum betur til þess að leiða félagið okkar í gegnum næstu kjarasamninga og önnur hagsmunamál félagsmanna. Ég hef verið í stjórninni frá 2014 og vil hæla Ragnari Þór sérstkaklega fyrir hversu vel hann hefur haldið utan um starf stjórnar sem formaður og sérstaklega gætt að því að hlusta eftir öllum sjónarmiðum stjórnarmanna. Í 15 manna stjórn þar sem helmingur fulltrúa er kosinn árlega er ekki sjálfgefið að þetta gangi vel og á þetta reyndi töluvert við gerð síðustu kjarasamninga þar sem samninganefndin(stjórnin) fundaði reglulega og það voru vissulega skiptar skoðanir en sameiginleg niðurstaða náðist. Ragnar Þór hefur kjarkinn sem þarf! Það hafa ekki allir kjark til þess að taka umræðuna eins og Ragnar Þór hefur gert í mörgum málum, bæði innan stjórnar þar sem hann hefur leitt áfram verkefnin þannig að tekið er tillit til allra sjónarmiða eins og kostur er og líka á samfélagsmiðlum þar sem hann hefur verið óþreytandi að vekja athygli á ýmsum hagsmunamálum sem varða samfélagið allt. Kjósum Ragnar Þór fyrir VR! Höfundur er ritari stjórnar VR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stéttarfélög Mest lesið Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Halldór 13.06.2026 Halldór Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Nú standa yfir kosningar til stjórnar og formanns VR. Sem ritari í fráfarandi stjórn og þar áður varaformaður hef ég átt náið samstarf við Ragnar þór og kynnst því vel hvern mann hann hefur að geyma, hann er réttsýnn og sanngjarn þegar kemur að hagsmunabaráttu fyrir félagsfólk VR. Mig langar að hvetja alla sem hafa kosningarétt í VR til þess að nýta rétt sinn og veita Ragnari umboð næstu tvö árin vegna þess að ég treysti engum betur til þess að leiða félagið okkar í gegnum næstu kjarasamninga og önnur hagsmunamál félagsmanna. Ég hef verið í stjórninni frá 2014 og vil hæla Ragnari Þór sérstkaklega fyrir hversu vel hann hefur haldið utan um starf stjórnar sem formaður og sérstaklega gætt að því að hlusta eftir öllum sjónarmiðum stjórnarmanna. Í 15 manna stjórn þar sem helmingur fulltrúa er kosinn árlega er ekki sjálfgefið að þetta gangi vel og á þetta reyndi töluvert við gerð síðustu kjarasamninga þar sem samninganefndin(stjórnin) fundaði reglulega og það voru vissulega skiptar skoðanir en sameiginleg niðurstaða náðist. Ragnar Þór hefur kjarkinn sem þarf! Það hafa ekki allir kjark til þess að taka umræðuna eins og Ragnar Þór hefur gert í mörgum málum, bæði innan stjórnar þar sem hann hefur leitt áfram verkefnin þannig að tekið er tillit til allra sjónarmiða eins og kostur er og líka á samfélagsmiðlum þar sem hann hefur verið óþreytandi að vekja athygli á ýmsum hagsmunamálum sem varða samfélagið allt. Kjósum Ragnar Þór fyrir VR! Höfundur er ritari stjórnar VR.
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar