Valskonur mörðu Fjölni og Blikar gerðu góða ferð í Breiðholtið Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 19. febrúar 2023 23:00 Kiana Johnson var stigahæst í liði Vals í kvöld. Vísir / Hulda Margrét Valskonur unnu nauman fimm stiga sigur er liðið tók á móti Fjölni í Subway-deild kvenna í kvöld, 109-104, og í Breiðholtinu vann Breiðablik öruggan 15 stiga sigur gegn heimakonum í ÍR, 64-79.
Eftir jafnan fyrsta leikhluta þar sem staðan var 23-23 að honum loknum höfðu Valskonur góð tök á leiknum er liðið tók á móti Fjölni. Heimakonur höfðu tólf stiga forskot þegar flautað var til hálfleiks og liðið náði mest 24 stiga forskoti í þriðja leikhluta. Það leit því allt út fyrir að Valur myndi vinna öruggan sigur, en gestirnir gáfust ekki upp og minnkuðu forskot heimakvenna jafnt og þétt. Fjölniskonur náðu að minnka muninn niður í eitt stig í stöðunni 99-98, en nær komust þær ekki og Valur vann að lokum nauman fimm stiga sigur, 109-104. Kiana Johnson var stigahæst í liði Vals í kvöld með 28 stig, en Brittany Dinkins dró vagnin fyrir Fjölniskonur og skoraði hvorki meira né minna en 46 stig fyrir liðið. Þetta var elleftir deildarsigur Vals í röð og liðið situr í öðru sæti deildarinnar með 34 stig eftir 20 leiki, tveimur stigum minna en topplið Keflavíkur. Fjölniskonur sitja hins vegar í sjötta sæti með tíu stig. Þá vann Breiðablik öruggan 15 stiga sigur gegn botnliði ÍR í breiðholtinu, 64-79. Gestirnir höfðu góð tök á leiknum frá fyrstu mínútu og sigur þeirra í raun aldrei í hættu. Breiðablik situr í sjöunda og næst neðsta sæti deildarinnar með sex stig eftir 19 leiki, fjórum stigum meira en ÍR sem situr á botninum.
Subway-deild kvenna ÍR Breiðablik Valur Fjölnir Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira