Hættir í kjölfar hins umdeilda áramótaávarps Atli Ísleifsson skrifar 16. janúar 2023 09:27 Christine Lambrecht hefur sætt mikilli gagnrýni síðustu daga. EPA Þýski varnarmálaráðherrann Christine Lambrecht hefur farið þess á leit við Olaf Scholz kanslara að óska eftir lausn frá embætti.
Lambrecht hefur sætt mikilli gagnrýni síðustu daga í kjölfar áramótakveðju sinnar á samfélagsmiðlum þar sem hún óskaði stuðningsmönnum sínum og Þjóðverjum öllum gleðilegs nýs árs undir flugeldagný. Í ávarpinu ræddi Lambrecht meðal annars um innrás Rússa í Úkraínu á meðan flugeldar springa í bakgrunni. Afsögn Lambrecht hefur legið í loftinu um nokkurt skeið, en þýska blaðið Bild greindi frá því á föstudaginn að ráðherrann myndi segja af sér. „Þvílíkt ár, árið 2022,“ sagði ráðherrann í ávarpinu. „Það hefur fært okkur ótrúlegar áskoranir. Í miðri Evrópu geisar styrjöld. Í tengslum við styrjöldina varð ég fyrir margvíslegum hughrifum, ég fékk að hitta alls konar áhugavert og flott fólk og fyrir það er ég hjartanlega þakklát.“ Ráðherrann minntist sérstaklega á þau persónulegu kynni sem hún hafi haft af áhugaverðum persónum í tengslum við styrjöldina. Hafa margir sagt nálgunina vera ósmekklega og gera lítið úr alvöru málsins.
Þýskaland Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Játar innbrot í búin Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Innlent Fleiri fréttir Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Sjá meira