Skilaboðin frá COP22 voru skýr; verndum líffræðilegan fjölbreytileika, endurreisum vistkerfi Jódís Skúladóttir skrifar 6. janúar 2023 17:01 Án þess að lög og reglur hafi verið mótaðar eru nú gríðarleg áform uppi um vindmyllugarða allt í kringum landið og sveitarfélög, sem alla jafna standa svo höllum fæti fjárhagslega að þau geta hvorki tryggt fjármagn í grunnstoðir eins og skólarekstur og málefni fatlaðra setja nú milljónir á milljónir ofan í þessa rússnesku rúllettu sem samningar við erlenda fjárfesta eru. Og undir eru lagðar auðlindir þjóðarinnar, án þess að hugað sé til framtíðar. Því er haldið fram að meintur orkuskortur landsins kalli á frekari orkuöflun með því að beisla vindinn og vatnið og teyma þannig náttúruöflin við hæl. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur skýrt fram að þeirrar orku sem aflað verður skuli forgangsraðað í innlend orkuskipti. Eðlileg forgangsröðun ætti auðvitað að vera í þá átt að bæta flutningskerfi, tryggja heimilum og fyrirtækjum orku og styðja í hvívetna við réttlát orkuskipti innanlands. Þessi yfirlýsing stjórnvalda eru fjarri því að auðlindir okkar séu gefnar erlendum fjárfestum til þess eins að hér verði orkumarkaður, sem síðan verði stjórnað erlendis frá í framtíðinni. Það eina græna sem finnst í umræðunni um uppbyggingu vindorkuvera, og haldið er á lofti af fjárfestunum sjálfum og innlendum pótintátum þeirra, er grænan í grænþvottinum sem þvegið hefur vindorkuver og áhrif þeirra um heim allan. Það eru nokkur atriði sem mikilvægt er að hafa í huga í umræðunni allri, svona þegar horft er yfir freyðandi grænþvottalöginn: • Með uppbyggingu vindorkuvera erum við að hluta að fórna óspilltum víðernum landsins (meira en gert hefur verið), það er óafturkræf aðgerð m.t.t. jarðrasks og mengunar sem hlýst m.a. af plastögnum vegna niðurbrots á spöðum veranna. Og í beinni andstöðu við vilja Sameinuðu þjóðanna og heimsins alls í baráttunni við loftslagsbreytingar, verndun líffræðilegs fjölbreytileika og endurreisn vistkerfa. • Það að ræsa vinnuvélarnar í þeim tilgangi að bjóða erlendum fjárfestum og fyrirtækjum óheftan aðgang að auðlindum þjóðarinnar er óafturkræft og fyrir því er engin stoð í lögum. Slíkt hefur gríðarlegar afleiðingar á orkuinnviði lands og þjóðar um ókomna tíð, við missum þar með stjórn landsins á orkuöryggi og orkuverði til innlendrar notkunar. • Sá hræðslu- og samviskuáróður sem stundaður er með stríðið í Úkraínu að vopni og alvarlegan orkuskort í Evrópu er fyrirsláttur sem miðlað er til landeigenda sem ekki dugar að veifa seðlabúnti framan í. Með allri orku sem mögulegt væri að afla á Íslandi og send yrði um sæstreng til Evrópu yrði það einungis dropi í hafið og leysti engan vanda en gerbreyta um ókomna tíð ásýnd okkar fallega lands. Ein af okkar stærstu efnahagslegu stoðum er koma hingað fyrst og fremst til að upplifa ósnortin víðerni og sérstaka náttúrufegurð landsins. Okkar styrkur er fyrst og fremst bundinn í því að flytja út þekkingu og vera fyrirmynd í sjálfbærri nýtingu lands og auðlinda. Grunngildi okkar í VG eru verndun íslenskrar náttúru og hefur alltaf verið. Við höfum barist og munum áfram berjast fyrir hönd umhverfisins, gegn mengandi stóriðju og gegn glæfralegu framferði erlends stór-kapitals. Skilvirkari nýting auðlinda dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda, hægir á tapi líffræðilegrar fjölbreytni og dregur úr mengun. Auðlindanýting, hvort sem er innan sjávarútvegs, landbúnaðar, orkugeirans eða annars, skal byggjast á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og ávallt grundvallast á því að auðlindirnar séu þjóðareign og arðurinn eigi að nýtast fólkinu í landinu. Nú skulum við standa saman vörð um auðlindir landsins og tryggja að okkar kynslóðir skili þeim í betra ástandi til komandi kynslóða. Þau eiga það skilið. Höfundur er þingmaður VG. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinstri græn Alþingi Umhverfismál Orkumál Jódís Skúladóttir Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna (COP) Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar