Segja forsætisráðherrann mega sitja áfram Atli Ísleifsson skrifar 3. október 2022 07:52 Frá mótmælum eftir að stjórnlagadómstóll Taílands tilkynnti um niðurstöðu sína. AP Stjórnlagadómstóll Taílands hefur úrskurðað að forsætisráðherranum Prayuth Chan-ocha sé heimilt að sitja áfram í embætti. Deilur hafa staðið um hvort hann hafi setið lengur í embætti en lög landsins gera ráð fyrir.
Dómstóllinn tilkynnti í lok ágúst síðastliðinn að forsætisráðherrann skyldi tímabundið vikið úr embætti á meðan mál hans væri til meðferðar. Nokkur fjöldi manna mótmælti fyrir utan dómstólinn á föstudaginn og hafa ýmsir hópar hótað því að standa fyrir fjöldamótmælum vegna niðurstöðunnar. Stjórnarandstaðan í Taílandi vill meina að Prayuth Chan-ocha ætti að fara frá þar sem stjórnarskrá landsins geri ráð fyrir að forsætisráðherra geti einungis setið í átta ár í embætti. Hann tók við embættinu árið 2014 eftir valdarán hersins og vildi stjórnarandstaðan meina að þessi átta ár hafi runnið sitt skeið í lok ágúst. Stuðningsmenn Prayuth, og nú stjórnlagadómstóllinn, voru hins vegar ekki sammála þessari túlkun þar sem ný stjórnarskrá hafi tekið gildi 6. apríl 2017 og því sé rétt að byrja að telja árin átta frá þeirri dagsetningu. Niðurstaða stjórnlagadómstólsins felur í sér að Prayuth gæti setið í embætti til aprílmánaðar 2025, að því gefnu að hann verði endurkjörinn, en þingkosningar eiga að fara fram í landinu í síðasta lagi í maí 2023.
Taíland Tengdar fréttir Forsætisráðherra Taílands vikið tímabundið úr embætti Æðsti dómstóll Taílands hefur tilkynnt að forsætisráðherranum Prayuth Chan-ocha hafi verið vikið tímabundið úr embætti. 24. ágúst 2022 07:51 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira
Forsætisráðherra Taílands vikið tímabundið úr embætti Æðsti dómstóll Taílands hefur tilkynnt að forsætisráðherranum Prayuth Chan-ocha hafi verið vikið tímabundið úr embætti. 24. ágúst 2022 07:51