Ný innsetning íslenskra húsgagna og hönnunar í suðurstofu Bessastaða Elísabet Hanna skrifar 8. september 2022 16:31 Ttalið frá vinstri: Eyjólfur Eyjólfsson hjá Axis, Árni Grétarsson hjá GÁ húsgögnum, Geir Hilmar Oddgeirsson hjá Grein, Ninja Ómarsdóttir hjá Brákarey, Brynjar Sveinbjörnsson hjá Steinkompanýinu, Steve Christer hjá Studio Granda, Árni Sigurjónsson, formaður SI, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Stefán Sigurðsson hjá Fólk Reykjavík, Magnús J. Magnússon hjá Sólóhúsgögnum, Örn Þór Halldórsson hjá Random Ark, Birkir Snær Einarsson hjá Sólóhúsgögnum, Ástríður Birna Árnadóttir hjá Arkitýpa, Aðalheiður Dóra Þórólfsdóttir hjá Zetia og Zenus og Ásgeir Freyr Ásgeirsson hjá Zetia og Zenus. BIG Formleg opnun nýrrar innsetningar íslenskra húsgagna og hönnunar í suðurstofu Bessastaða fór fram í gær að viðstöddum forseta Íslands, fulltrúum Samtaka iðnaðarins, hönnuðum og framleiðendum.
Árið 2019 var í fyrsta skipti ein stofa Bessastaða helguð íslenskri hönnun og húsgagnagerð. Þetta er því í annað sinn sem slík innsetning fer fram. Íva Rut Viðarsdóttir, innanhússarkitekt, valdi húsgögnin og munina úr þeim tillögum sem bárust frá hönnuðum og framleiðendum og skipulagði rýmið. Við valið var haft í huga að sýna þá miklu fjölbreytni sem einkennir íslenskt handverk og hönnun, auk þess sem litið var til sjálfbærni og hringrásarhugsunar. Áformað er að þessi nýja innsetning vari í þrjú ár samkvæmt fréttatilkynningu frá Samtökum iðnaðarins. Af þeim munum sem valdir voru í rýmið eru fjórir frá FÓLK Reykjavík. Skjáskot af heimasíðunni sem opnast við skönnun á QR kóðanum.Skjáskot/Samtök iðnaðarins Samstarfið gekk vel „Samstarfið við forseta Íslands hefur verið ánægjulegt og einkennst af áhuga og velvilja. Það á að vera sjálfsagt mál að íslensk hönnun og húsgögn sjáist í öllum opinberum byggingum hér á landi og þá ekki síst þar sem almenningur og erlendir gestir fara um,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI. „Við eigum að vera stolt af því sem er hannað og framleitt hér á landi og hvetja til frekari verka á því sviði. Í auknum mæli er horft til umhverfisverndar og kolefnisfótspors og þar standa íslenskir framleiðendur framarlega.“ Gestir Bessastaða geta í framtíðinni nálgast upplýsingar á íslensku og ensku um húsgögnin og munina með því að skanna inn QR-kóða.
Tíska og hönnun Guðni Th. Jóhannesson Forseti Íslands Tengdar fréttir Mikilvægt að skapa virði úr skapandi greinum Felgur, loftpúðar, lök og fleiri ónýtir hlutir fengu framhaldslíf í nýrri íslenskri hönnun sem hönnunarmerkið Fólk kynnti á HönnunarMars frá þeim sjö hönnuðum sem þau starfa með. 29. maí 2021 07:01 Hönnuðu gólfpúða úr loftpúðum ónýtra bíla Birta Rós Brynjólfsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir, sem mynda hönnunartvíeykið Studio Flétta, sýndu á HönnunarMars nýja heimilispúða sem fara í sölu í haust. Verkefnið er hluti af hringrásarvænni hönnun þar sem úrgangi er breytt í verðmæti. 30. maí 2021 20:01 Erlent starfsfólk gæti orðið helmingur vinnuaflsins innan nokkurra áratuga Erlent starfsfólk gæti verið orðið allt að helmingi vinnuafls á Íslandi á næstu áratugum samkvæmt mati framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Þjóðin eldist og það vantar fleiri vinnandi hendur; náttúruleg fólksfjölgun dugar þar engan veginn. 3. september 2022 20:30 Guðni skellti sér strax í sokkana Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, var að venju meðal þeirra fyrstu til að klæðast Mottumarssokkum. 19. mars 2021 13:31 Bessastaðir opnir almenningi á laugardaginn Forsetasetrið að Bessastöðum verður opið almenningi á laugardaginn. Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid munu þar taka á móti gestum og býðst fólki að skoða staðinn milli klukkan 13 og 16. 16. júní 2022 11:05 Mest lesið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Gosling verður Skrattakollur Bíó og sjónvarp Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Optical Studio með vinsælan Pop Up markað með allt að 70% afslætti Lífið samstarf Fleiri fréttir Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Sjá meira
Mikilvægt að skapa virði úr skapandi greinum Felgur, loftpúðar, lök og fleiri ónýtir hlutir fengu framhaldslíf í nýrri íslenskri hönnun sem hönnunarmerkið Fólk kynnti á HönnunarMars frá þeim sjö hönnuðum sem þau starfa með. 29. maí 2021 07:01
Hönnuðu gólfpúða úr loftpúðum ónýtra bíla Birta Rós Brynjólfsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir, sem mynda hönnunartvíeykið Studio Flétta, sýndu á HönnunarMars nýja heimilispúða sem fara í sölu í haust. Verkefnið er hluti af hringrásarvænni hönnun þar sem úrgangi er breytt í verðmæti. 30. maí 2021 20:01
Erlent starfsfólk gæti orðið helmingur vinnuaflsins innan nokkurra áratuga Erlent starfsfólk gæti verið orðið allt að helmingi vinnuafls á Íslandi á næstu áratugum samkvæmt mati framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Þjóðin eldist og það vantar fleiri vinnandi hendur; náttúruleg fólksfjölgun dugar þar engan veginn. 3. september 2022 20:30
Guðni skellti sér strax í sokkana Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, var að venju meðal þeirra fyrstu til að klæðast Mottumarssokkum. 19. mars 2021 13:31
Bessastaðir opnir almenningi á laugardaginn Forsetasetrið að Bessastöðum verður opið almenningi á laugardaginn. Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid munu þar taka á móti gestum og býðst fólki að skoða staðinn milli klukkan 13 og 16. 16. júní 2022 11:05