Rannsaka dauða fjögurra skjaldbaka Bjarki Sigurðsson skrifar 31. ágúst 2022 19:40 Talið er að skjaldbökurnar hafi verið drepnar af veiðiþjófum. Getty Yfirvöld í Ekvador rannsaka nú dauða fjögurra risaskjaldbaka sem fundust á Galapagos-eyjum fyrr á árinu. Talið er að veiðiþjófar hafi veitt og borðað þær.
Risaskjaldbakan er í útrýmingarhættu og hefur verið í mörg ár. Bann hefur verið við veiðum á þeim á Galapagos-eyjum síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Eyjurnar, sem tilheyra Ekvador, eru eini dvalarstaður dýranna, fyrir utan þær sem búa í dýragörðum. Talið er að veiðiþjófar séu byrjaðir að veiða skjaldbökurnar í auknu mæli en kjöt þeirra er af mörgum talið afar ljúffengt. Nýlega fundust fjögur skjaldbökuhræ á eyjunum og telja yfirvöld í Ekvador að dýrin hafi verið fórnarlömb veiðiþjófa. Búið er að senda rannsóknarteymi frá umhverfisglæpateymi lögreglunnar í Ekvador og sér teymið alfarið um rannsókn málsins, með aðstoð dýralækna. Meðal þeirra sem grunaðir eru í málinu eru landverðir á eyjunni. Undirtegundir risaskjaldbökunnar eru þrettán talsins og eru þær allar í útrýmingarhættu, þó á mismunandi stigum. Ekki hefur verið greint frá því af hvaða tegund skjaldbökurnar sem fundust voru. Meðalaldur risaskjaldbaka er um það bil hundrað ár en elsta núlifandi skjaldbaka heims er skjaldbakan Jónatan sem er orðinn 190 ára gamall.
Dýr Ekvador Galapagoseyjar Mest lesið Reyndu að fá flugmann Maduros til að aðstoða við handtöku hans Erlent „Því miður er verklagið þannig“ Innlent Ökumaður stöðvaður með snjófargan á framrúðunni Innlent Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Erlent Öldungadeildin samþykkir að ógilda tollaákvarðanir Trump Erlent Viðbrögð hjólreiðamannsins að einhverju leyti skiljanleg Innlent Fjárhagsstaðan alvarleg og tímabundin ráðning ráðgjafans ekki endurnýjuð Innlent Hvasst, hlýtt og von á asahláku eða glerhálku Veður Orðin hæsta kirkja í heimi Erlent Opnun Brákarborgar frestað enn á ný Innlent Fleiri fréttir Hundruð þúsunda strangtrúaðra mótmæla herkvaðningu Orðin hæsta kirkja í heimi Öldungadeildin samþykkir að ógilda tollaákvarðanir Trump Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Reyndu að fá flugmann Maduros til að aðstoða við handtöku hans Kallar Biden ljótan að utan sem innan og vill hann í fangelsi Sjö hundruð drónum og eldflaugum skotið að Úkraínu Telja Kínverja geta fjarstýrt strætisvögnum af sömu gerð og Strætó notar Fordæmalaus eyðilegging vegna Melissu Losa hreðjatakið í eitt ár Útlit fyrir að hnífjafnt verði í Hollandi í fyrsta skipti Svipt barnabótunum vegna flugmiðakaupa Vill hefja tilraunir með kjarnavopn að nýju Fleiri handteknir vegna ránsins í Louvre „Samþykki“ tekið upp í frönskum lögum í kjölfar Pelicot málsins Útlit fyrir nauman sigur frjálslyndra og fyrsta samkynheigða forsætisráðherra landsins Fjórir látnir á Jamaíku og tuttugu í Haítí Hafa játað aðild að ráninu í Louvre Furstadæmin dæla vopnum og kínverskum drónum til Súdan Bandidos-bifhjólagengið bannað í Danmörku Prófuðu annað kjarnorkuknúið vopn Ákærðir fyrir hryðjuverk gegn ísraelska sendiráðinu í Kaupmannahöfn Segja vopnahléið aftur í gildi eftir miklar árásir Fundu flöskuskeyti frá tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar Ódæði eftir fall El Fasher: Blóðið sýnilegt úr geimnum Rak nefndina sem átti að taka fyrir viðhafnarsalinn og sigurbogann Fjórtán drepnir í árásum á meinta fíkniefnasmyglara Þriðju kosningarnar á fjórum árum Stærsti fellibylur í sögu Jamaíka Færeyingar marka leið fyrir risastór neðansjávargöng Sjá meira