Tomasz Þór þvertekur fyrir að hafa beitt heimilisofbeldi Árni Sæberg skrifar 17. júlí 2022 14:12 Tomasz Þór Veruson sver af sér ásakanir um að hafa beitt fyrrverandi kærustur sínar heimilisofbeldi. Thomasz Þór Tomasz Þór Veruson fjallagarpur segist aldrei hafa beitt líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi. Í upphafi árs var hann borinn þungum ásökunum tveggja fyrrverandi kærasta hans, þar á meðal Vilborgar Örnu Gissurardóttur. „„
Af hverju að skrifa núna?“ „Til hvers að segja frá og leiðrétta?“ „Nú þegar rykið er sest og umræðan fallin í gleymsku.“ Þetta sagði ég þegar ég var hvattur til að stíga fram og nota röddina sem við öll höfum. Svarið er þó ekki flókið. Á meðan árasir, ofbeldi, sögusagnir og lygar grassera í minn garð fæ ég ekki rými til að halda áfram með líf mitt. Og hingað erum við komin,“ svo hefst aðsend grein Tomaszar Þórs, sem birtist á Vísi í dag. Mál Tomaszar var í hámæli í lok janúar eftir að kona, sem hann hafði verið í ástarsambandi með, greindi frá því í fjölmennum hópi áhugafólks um útivist á Facebook að Tomasz hefði beitt hana margvíslegu ofbeldi. Vilborg Arna Gissurardóttir pólfari steig skömmu seinna fram og sagði svipaða sögu af sambandi hennar við Tomasz. Gekkst við hluta ásakananna Tomasz gekkst við ásökunum um ofbeldi skömmu eftir að Vilborg Arna steig fram. Hann segist hafa beðið þolendur afsökunar og kveðst hafa verið á vondum stað andlega en taki þó fulla ábyrgð á hegðun sinni. „Undanfarna daga hefur verið fjallað um mig og fyrri sambönd mín á samfélags- og fréttamiðlum vegna andlegs ofbeldis og óviðeigandi framkomu af minni hálfu í garð ástvina. Ég gengst við þeim og á mér þar engar málsbætur,“ segir orðrétt í færslu Tomaszar. Í aðsendri grein í dag segist hann þó aldrei hafa beitt konurnar tvær líkamlegu ofbeldi. „En hverju var ég að biðjast afsökunar á? Ég skilgreindi framhjáhald og óheiðarlega framkomu mína í garð ástvina sem andlegt ofbeldi og gerðist sekur um það í báðum samböndum. Ég baðst afsökunar á því. Ég baðst ekki afsökunar á líkamlegu ofbeldi, kynferðisofbeldi eða kúgunartilburðum enda er ég ekki sekur um neitt slíkt. Þar sem almenningur og blaðamenn hafa greinilega skilið játningu mína á þann veg að ég væri að játa allt sem á mig hefur verið borið, tel ég nauðsynlegt að útskýra málið betur,“ segir í greininni. Í nokkuð löngu máli fer Tomasz yfir samband þeirra Vilborgar og segir það hafa verið gott og slæmt til skiptis. Árið 2017 hafi þau slitið sambúð sinni endanlega eftir mikil rifrildi og framhjáhald af hans hálfu. Því næst lýsir hann því hvernig samstarfi þeirra var háttað eftir sambandsslitin en hann starfaði hjá ferðaþjónustufyrirtæki Vilborgar. Hann segist hafa gegnist í sjálfskuldarábyrgð til þess að tryggja fjárhagslegt öryggi fyrirtækisins. Það hafi svo tekið langan tíma að losna undan þeim eftir að samstarfi þeirra lauk. Frásögnin ýmist afbökun eða hrein lygi Þá fer Tomasz yfir kynni sín af hinni konunni, þeirri sem steig fram upphaflega. „Það hófst eins og ævintýri en fljótlega fór að síga á dekkri hlið og varð það afar óheilbrigt samband. Eftir á að hyggja þá áttum við bara ekki saman,“ segir hann. Konan skrifar í færslunni á Facebook að ofbeldið hafi verið andlegt og á tímum líkamlegt og kynferðislegt. Hann hafi reglulega sakað hana um framhjáhald, ekki viljað að hún færi í vinnuferðir og reglulega hótað sjálfsvígi ef hann hafi verið ósáttur með eitthvað. Hún hafi ekki mátt birta af honum myndir á samfélagsmiðlum, sem hún komst að seinna að var vegna þess að hann var í sambandi með öðrum konum, sem þau þekktu bæði úr fjallasamfélaginu. „Mér leið alltaf eins og hann væri að fylgjast með mér, þegar ég var í vinnunni, hvað ég gerði á samfélagsmiðlum, hver væri að koma í heimsókn. [...] Ég „passaði“ mig að gera allt rétt og eftir hans höfði til a halda honum góðum,“ skrifar konan. „Sagan er að nokkru leyti afbökun á sannleikanum og að sumu leyti hrein og klár lygi. Lögmaður minn hefur gefið höfundi frásagnarinnar tækifæri til þess að leiðrétta hana en hún hefur ekki brugðist við. Ég hef íhugað að fara í meiðyrðamál en þar sem dómsmál eru tímafrek hef ég ákveðið að byrja á því að koma sjálfur á framfæri leiðréttingu,“ segir í færslu Tomaszar. Alvarlegar afleiðingar Tomasz segir að eftir að færslan var birt hafi 95 prósent af viðskiptavinum hans afbókað ferðir með nýju ferðaþjónustufyrirtæki hans innan tveggja sólarhringa. „Frásögnin sem birt var í fjölmennum hópi kvenna á Facebook tileinkuðum útivist endaði á ósk um að sniðganga mig sem og fyrirtækið mitt fyrir fullt og allt. Hjá fyrirtækinu störfuðu fimm leiðsögumenn, þrjár konur og tveir karlmenn sem átti nú að sniðganga líka fyrir störf þeirra fyrir fyrirtækið og tengsl þeirra við mig,“ segir hann. Vísir greindi frá því í janúar að hvert fyrirtækið á fætur öðru hefði hætt samstarfi við Tomasz eftir að færslan var birt. „Ég þurfti að leita aðstoðar fagaðila við að vinna úr fyrstu dögunum eftir að færslan birtist þar sem ég vissi að ég gæti ekki gert það af sjálfsdáðum,“ segir Tomasz.
Heimilisofbeldi Kynferðisofbeldi MeToo Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Sjá meira