Staðgengill Elíasar hetja Midtjylland Valur Páll Eiríksson skrifar 26. maí 2022 16:01 David Ousted varði tvær vítaspyrnur í dag. Lars Ronbog / FrontZoneSport via Getty Images Midtjylland er danskur bikarmeistari í fótbolta eftir sigur á OB í vítaspyrnukeppni eftir að liðin gerðu 0-0 jafntefli í úrslitaleiknum í Kaupmannahöfn í dag. Hinn 37 ára gamli David Ousted var hetja Midtjylland.
Hvorki Aron Elís Þrándarson, hjá OB, né Elías Rafn Ólafsson, hjá Midtjylland, voru í leikmannahópi síns liðs í dag. Elías hefur verið frá um nokkurt skeið vegna handarbrots en minni fregnir er að finna af Aroni Elís, sem var með leikmannahópi OB sem ferðaðist í leikinn í gær. Leikur liðanna var nokkuð jafn en Midtjylland þó ívið sterkari. Midtjylland lenti í 2. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í vetur, þremur stigum á eftir meisturum FC Kaupmannahafnar, en OB lenti í 8. sæti, níu stigum frá falli en 27 stigum á eftir Midtjylland. Hvorugu liðinu tókst að brjóta ísinn, hvorki í venjulegum leiktíma né í framlengingu, og þurfti því vítaspyrnukeppni til að útkljá leikinn. Þar reyndist hinn 37 ára gamli David Ousted, sem stóð milli stanga Midtjylland í fjarveru Elíasar, vera hetja Midtjylland er hann varði tvær vítaspyrnur af þeim fimm sem hann fékk á sig. Brasilíumaðurinn Evander skoraði sigurmarkið fyrir Midtjylland í 4-3 sigri þeirra í vítakeppninni. Elías Rafn vinnur því sinn fyrsta titil á ferlinum. Þjálfari hans Bo Henriksen, sem lék með Val, Fram og ÍBV hér á landi sumrin 2005 og 2006, hlýtur silfur í deild og gull í bikar á sinni fyrstu leiktíð með félagið.
Danski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Sjá meira