Leicester og Roma skildu jöfn | Feyenoord með forystu eftir fimm marka leik Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 28. apríl 2022 20:58 Leicester náði að jafna gegn Roma. Michael Regan/Getty Images Leicester og Roma gerðu 1-1 jafntefli í fyrri undanúrslitaviðureign liðanna í undanúrslitum Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Á sama tíma vann Feyenoord 3-2 sigur gegn Marseille.
Lorenzo Pellegrini kom Rómverjum yfir gegn Leicester með góðu marki eftir 15 mínútna leik og sá til þess að staðan var 0-1 þegar flautað var til hálfleiks. Heimamenn í Leicester gáfust þó ekki upp og þeir jöfnuðu metin þegar rúmar tuttugu mínútur voru til leiksloka þegar Gianluca Mancini varð fyrir því óláni að setja boltann í sitt eigið net. Það reyndist seinasta mark leiksins og niðurstaðan varð því 1-1 jafntefli. Liðin fara því með jafna stöðu í síðari leikinn sem fram fer eftir viku í Róm. We will head to Rome all square ⚖️#LeiRma #UECL pic.twitter.com/E4bRfIy895— Leicester City (@LCFC) April 28, 2022 Í hinum undanúrslitaleik kvöldsins höfðu heimamenn í Feyenoord betur er liðið tók á móti Marseille. Cyriel Dessers og Luis Sinisterra komu heimamönnum í 2-0 snemma leiks áður en Ahmadou Bamba Dieng og Gerson jöfnuðu metin fyrir gestina áður en fyrri hálfleikur var úti. Það var svo Cyriel Dessers sem skoraði þriðja mark heimamanna og tryggði þeim 3-2 sigur og Hollendingarnir fara því með forystu í síðari leikinn sem fram fer í Frakklandi að viku liðinni.
Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira