Hroki listakvenna Helgi Sæmundur Helgason skrifar 26. apríl 2022 09:31 Í tilefni umræðu fjölmiðla síðustu daga um stuld listakvennanna Bryndísar Björnsdóttur og Steinunnar Gunnlaugsdóttur á verki Ásmundar Sveinssonar afa míns Fyrstu hvítu móðurinni vil ég nefna nokkur atriði. Eins og eðlilegt er hefur athygli fjölmiðla einkum beinst að þjófnaðinum á verkinu og viðmælendur lýst hneykslan sinni á honum, þ.á.m. Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra í viðtali við Bítið á Bylgjunni þann 19. apríl sl. Sama dag fjallar Eiríkur Þorláksson listfræðingur um málið í vandaðri grein í Fréttablaðinu. Greinin nefnist „Þú skalt ekki stela“ og þar segir hann m.a. að málið sé í eðli sínu einfalt því það snúist í grunninn um þjófnað. Í viðtalinu við Lilju tekur hún undir þessi orð Eiríks, frá hennar sjónarhorni er málið einfalt – það er bara ekki leyfilegt að stela. Ekki er laust við að gætt hafi svolítið háðsks tóns í umfjöllun sumra fjölmiðla um málið síðustu daga. Það er vegna þess að um of hefur verið einblínt á stuldinn sem slíkan og málið því orðið fyrst og fremst spaugilegt í hugum fólks. En jafnvel þótt mörgum finnist þetta mál ósköp einfalt og jafnvel bjánalegt þá eru á því margar hliðar eins og Eiríkur rekur svo vel í grein sinni. Það sem mig langar að vekja sérstaka athygli á er að þær Bryndís og Steinunn virðast ekki efast eitt augnablik um að það hafi verið allt í lagi að stela verkinu. Gott og vel – það má hlæja að þessu og kalla þetta rugl en staðreyndin er sú að fyrir þeim var það fullkomlega réttlætanlegt að stela verkinu. Það er vegna þess að þær eru sannfærðar um að verkið sé rasískt og það trompar glæpinn – að stela. Hver mótmælir því að réttlætanlegt sé að stela rasískri list í opinberu rými og lýsa því yfir að best færi á að eyðileggja hana eða a.m.k. fjarlægja hana? Rasísk list á einfaldlega ekkert erindi í opinberu rými og skiptir þá engu máli hvort um sögulega list er að ræða eða samtímalist. Hér má nefna að á seinni árum hefur óþol gagnvart rasískri list í almannarými aukist mjög eins og nýleg niðurbrot á styttum af herforingjum í þrælastríðinu sýna vel. Þær styttur eru rasískar af því að þær upphefja menn sem voru rasistar og iðkuðu þann ósóma í störfum sínum. Í ljósi þess sem hér hefur verið sagt má ljóst vera að kjarni þessa leiðinlega máls er ekki stuldurinn sem slíkur heldur spurningin hvort Fyrsta hvíta móðirin sé rasísk stytta. Í fyrri grein minni „Feilskot við Nýló“ sem birtist á Vísi þann 13. apríl sl. færði ég rök fyrir því að svo sé ekki. Mig langar núna að gera aðeins ítarlegri grein fyrir máli mínu og draga rökin svolítið betur saman. Rök þeirra Bryndísar og Steinunnar fyrir því að Fyrsta hvíta móðirin sé rasísk stytta felast í titli hennar, ekki myndefninu sem slíku. Í viðtali við Vísi þann 11. apríl sl. spyr blaðamaður listakonurnar hvort ekki megi deila um hvort verkið sé rasískt og svara þær því þá til að „titillinn einn og sér gefi til kynna að verkið byggist á kynþáttafordómum.“ Af þessu má ljóst vera að það er fyrst og fremst titillinn á verkinu sem stuðar listakonurnar, a.m.k. hvað hinn meinta rasisma varðar. Nú er það alveg augljóst að vísunin til hvíts húðlitar Guðríðar dugar ekki ein og sér til þess að hægt sé að draga þá ályktun að titill verksins sé rasískur. Grundvallaratriði í rasisma er mismunun, að einn kynþáttur sé öðrum fremri en ekkert í titli verksins bendir til að það sé meining þess. En ef rasisminn í verkinu er ekki augljós af titlinum gæti þá ekki samt verið að meining verksins sé rasísk? Víst er að rasismi var á miklu flugi árið 1938 þegar Ásmundur mótaði verkið. Getur ekki verið að Ásmundur hafi a.m.k. á þessum tímapunkti verið hallur undir rasisma? Því er til að svara að við sem þekktum Ásmund vitum að svo var ekki. Auðvitað eru verk Ásmundar sjálfs besti vitnisburðurinn um lífsskoðanir hans og óhætt að taka undir með Eiríki Þorlákssyni að ekkert þeirra bendi í átt til rasisma. Þá bendir Eiríkur á að ekkert í þeim heimildum sem til eru um Ásmund, þ.á.m. viðtölum, styðji þá kenningu að hann hafi verið rasisti. Eiríkur skrifar: „Þeir sem þekkja verk og sögu Ásmundar verða væntanlega forviða yfir að heyra slíka fullyrðingu; að listamaðurinn sem skapaði mörg eftirminnilegustu verk íslenskrar listasögu til heiðurs lífsbaráttu alþýðufólks og einkum kvenna (til dæmis Vatnsberann, Fýkur yfir hæðir, Móðir mín í kví kví) hafi verið rasisti?“ Ég hef nú fært rök gegn þeirri skoðun að Fyrsta hvíta móðirin sé rasískt verk. Þær Bryndís og Steinunn eru annarrar skoðunar og að sjálfsögðu hafa þær fullan rétt til þess. Ef þær upplifa verkið sem rasískt þá verður svo að vera. Þær geta sjálfar útskýrt hvað þær eiga við með því. Skilaboðin með hinu nýja verki þeirra við Nýló Farangursheimild eru hins vegar ekki aðeins þau að verkið sé rasískt heldur sé sá skilningur á verkinu hinn eini rétti og þar með sá skilningur sem Ásmundur sjálfur lagði í verkið á sínum tíma. Eða hvernig á að skilja yfirlýsingu listakvennanna um að best færi á því að eyðileggja verkið (breyta því í geimrusl) öðruvísi en sem svo að engin önnur túlkun á verkinu en þeirra eigin komi til greina? Hrokinn sem birtist í þessari afstöðu listakvennanna er yfirgengilegur. Er til of mikils mælst að þær biðjist afsökunar á verki sínu? Höfundur er framhaldsskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur stolið Styttur og útilistaverk Menning Snæfellsbær Tengdar fréttir Feilskot við Nýló Árið 1938 mótaði afi minn Ásmundur Sveinsson myndhöggvari mynd sem hann kallaði Fyrsta hvíta móðirin. Verk þetta sýnir Guðríði Þorbjarnardóttur en talið er að hún hafi verið fyrsta evrópska konan sem ól barn í Ameríku og var það um árið 1000. 13. apríl 2022 17:01 Mest lesið Flokkur fólksins eða flokkun fólksins? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi? Sævar Þór Jónsson Skoðun Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3 Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Horfumst í augu Kristín Thoroddsen Skoðun 30 silfurpeningar dýralækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýralæknum, 2023 Ole Anton Bieltvedt Skoðun Lægjum öldurnar Halla Hrund Logadóttir Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir Skoðun Skólarnir lokaðir - myglan vinnur Guðmundur Þórir Sigurðsson Skoðun Er aldur bara tala? Teitur Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun Skólarnir lokaðir - myglan vinnur Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar Skoðun Flokkur fólksins eða flokkun fólksins? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3 Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Horfumst í augu Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun 30 silfurpeningar dýralækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýralæknum, 2023 Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar Skoðun Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar Skoðun Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Er aldur bara tala? Teitur Guðmundsson skrifar Skoðun Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Frans páfi kvaddur eða meðtekinn? Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Lægjum öldurnar Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Að hata einhvern sem þú þarft á að halda? Katrín Pétursdóttir skrifar Skoðun Íslenskar pyndingar Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun SFS, Exit og norska leiðin þeirra Jón Kaldal skrifar Skoðun Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti? Bryndís Schram skrifar Skoðun Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með? Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist! Katarzyna Kubiś skrifar Skoðun Menntun fyrir öll – nema okkur Haukur Guðmundsson skrifar Skoðun Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika Davíð Bergmann skrifar Skoðun Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar? Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Að sækja gullið (okkar) Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Til hamingju blaðamenn! Hjálmar Jónsson skrifar Skoðun Stormur í Þjóðleikhúsinu Bubbi Morthens skrifar Skoðun Börn í skugga stríðs Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra? Ævar Harðarson skrifar Sjá meira
Feilskot við Nýló Árið 1938 mótaði afi minn Ásmundur Sveinsson myndhöggvari mynd sem hann kallaði Fyrsta hvíta móðirin. Verk þetta sýnir Guðríði Þorbjarnardóttur en talið er að hún hafi verið fyrsta evrópska konan sem ól barn í Ameríku og var það um árið 1000. 13. apríl 2022 17:01
30 silfurpeningar dýralækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýralæknum, 2023 Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar
Skoðun 30 silfurpeningar dýralækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýralæknum, 2023 Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar
30 silfurpeningar dýralækna? 125.000 lítrar af blóði tappaðir af 4088 merum (með valdi), af eiðsvörðum dýralæknum, 2023 Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir Skoðun